Frjáls verslun - 01.01.1972, Síða 57
Fjölmiðlar
Tímamót hjá Frjálsri verzlun
Flutt í nýtt húsnæði — l\iýr ritstjéri ráðinn
Fyrir tæpum fimm árum
urðu þáttaskil í útgáfu tíma-
ritsins Frjálsrar verzlunar.
Fram til þess tíma, frá árinu
1939, höfðu ýmsir áhugamenn
úr samtökum kaupsýslu- og
verzlunarmanna haft útgáfuna
með höndum í frístundum. En
vegna þess hve menn eru al-
mennt önnum kafnir nú á dög-
um kom í ljós, að breyting á
starfstilhögun var eðlileg.
>að voru nokkrir ungir menn
undir forystu Jóhanns Briem,
sem tóku að sér útgáfu Frjálsr-
ar verzlunar sumarið 1967. Um
leið var ákveðið, að tímaritið
skyldi ekki einungis vera fé-
lagsblað verzlunarmanna, held-
ur ná til víðari lesendahóps, og
ennfremur voru á því gerðar
verulegar útlitsbreytingar.
Blaðið varð almennur vettvang-
ur hins frjálsa framtaks á ís-
landi.
Á ERINDI VÍÐA.
Ljóst var, að hagsmunamál
hinna ýmsu lesenda voru ólík
en þó að mörgu leyti skyld. Hin-
ir nýju útgefendur settu sér
það mark að reyna að gefa út
vel skrifað blað og fjalla um
þjóðmál, viðskipti og atvinnu-
og efna'hagsmál auk fjölmargra
annarra málaflokka á ábyrgan
hátt. Efni blaðsins var slíkt, að
það átti erindi til miklu fleiri
en þeirra, sem í daglegu starfi
voru meira eða minna viðriðnir
þau mál, sem um var fjallað í
Frjálsri verzlun. Áskrifenda-
söfnun var því hafin í stórum
stíl um land allt og mönnum
gefinn kostur á kynningar-
áskrift um skeið. Á stuttum
tíma var verulegum fjárhæðum
varið til kynningarstarfsemi og
sífellt bættust við nýir, fastir
áskrifendur.
GÓÐ SAMVINNA.
Þegar við breytinguna 1967
hófst mjög náið og ánægjulegt
samstai'f hinna nýju útgefenda
við ýmis félög og samtök, sér-
staklega Verzlunarráð íslands,
Jóhann Briem:
F ramkvœmdastj órn.
Markús örn Antonsson:
Ritstjórn.
sem hefur haft mikinn skilning
á þörf fyrir þann vettvang, sem
Frjáls verzlun er. Blaðið hefur
líka lagt sig fram um að kynna
sjónarmið verzlunarinnar, m.a.
í viðtölum við ýmsa athafna-
menn í fyrirtækjarekstri.
Útgáfa Frjálsrar verzlunar
hefur ekki verið og er ekki
dans á rósum. Hún hefur þvert
á móti reynzt mjög erfið á
stundum. Þess vegna hefur fyr-
irtækið Frjálst Framtak h.f.,
sem að Frjálsri verzlun stendur,
hafið útgáfu nokkurra rita ann-
arra til að treysta enn betur
fjárhagsgrundvöll fyrir Frjálsa
verzlun. Þessi rit eru viðskipta-
skrárnar íslenzk fyrirtæki og
Inside Iceland, auk handbókar
fyrir ferðamenn, sem nefnist
Iceland in a Hurry.
FLUTT í NÝ HÚSAKYNNI.
Um síðustu áramót flutti
Frjálst framtak h.f. alla starf-
semi sína í ný húsakynni að
Laugavegi 178, þar sem rit-
stjórnarskrifstofur Vísis voru
áður. Hefur öll starfsaðstaða
hjá blaðinu stórum batnað við
flutningana. Um áramótin urðu
einnig þær breytingar hjá blað-
inu, að Markús Örn Antonsson
var ráðinn ritstjóri þess. Mark-
ús hefur mikla reynslu sem
blaðamaður og fréttamaður,
fyrst hjá Morgunblaðinu og síð-
ar í sjónvarpi, og vænta útgef-
endur sér mikils af starfi hans
fyrir blaðið.
ÁTTA FASTIR STARFSMENN.
Hjá Frjálsri verzlun og fyrir-
tækinu Frjálsu framtaki h.f.
eru fastráðnir starfsmenn nú
átta talsins. Er það allt ungt og
dugmikið fólk og mun meðal-
aldur starfsmanna vera um 26
ár. En auk þessa fastráðna fólks
koma fjölmargir aðrir við sögu
hvers blaðs. blaðamenn og
greinahöfundar, ljósmyndarar,
prentarar, sölumenn og inn-
heimtufólk. Það er áberandi,
hversu annt þessu unga starfs-
liði er um hag blaðsins. And-
FV 1 1972
53