Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Side 14

Frjáls verslun - 01.07.1972, Side 14
voru á þá leið, að 42% voru því meðmælt, 42% á móti en 16% hcfðu ekki ákveðna skoð- un. Þannig eru þeir jafnmarg- ir, sem eru með og á móti. Almennt er það yngra fólk- ið, sem tekur beinum auglýs- ingum á jákvæðan hátt, 55% þeirra, sem yngri eru en 30 ára, eru með en 36% þeirra, sem komnir eru yfir fimmtugt. Þessar niðurstöður eru þó ekki taldar sanna að svörin í þessum tilfellum segi endan- lega til um afstöðu fólksins til beinu auglýsinganna. Þegar betur er litið á afstöðu almennings kemur nefnilega í ljós að matið á auglýsingum er mjög ólíkt. Þannig vilja 8 af hverjum 10 fá kynningar- lista frá ríki eða bæ. Yfir helmingur allra eru með því að fá auglýsingablöð frá vöru- húsum, verzlanakeðjum eða bílasölum. En aðeins 2 af 10 vilja fá auglýsingaefni frá bókabúðum eða áskriftartilboð frá blöðum og tímaritum í gegnum bréfarifuna. Jafnvei þeir, sem almennt talað eru á móti beinum aug- lýsingum líta afar jákvætt á þær í vissum tilvikum. Niðurstöður þessarar könn- unar í Svíþjóð leiddu sem sé í ljós, að almenningur skiptist í tvo nokkurn veginn jafnstóra hópa í afstöðunni til beinna auglýsinga. Innan beggja hópa gætir þó sérafstöðu til vissra tegunda af auglýsingum. Þá er augljóst, að ungt fólk er mun opnara fyrir beinu auglýsing- unum en hinir eldri. fyrir margs konar hreyfingu Velferð: Volvo-starfsmenn siappa af Félagsheimili VOLVO, Sörresgárden. Stærsta félagsheimili, sem fyrirtæki í Svíþjóð hefur reist fyrir starfsmenn sína, stendur nú tilbúið til notkunar. Hinn 8. júní var vígt félagsheimili Volvo-starfsmanna og fjöl- skyldna þeirra í nágrenni Volvo-verksmiðjanna i Tors- landa, skammt fyrir utan Gautaborg. í féiagsheimilinu er aðstaða til líkamsræktar, náms og all- mennrar afþreyingar. Það hef- ur kostað alls um 13 milljónir sænskra króna, þar af nam byggingarkostnaður um 11 milljónum. í heimilinu eru meðal annars sundlaug, bowl- ing-salur, íþróttasalur, böð, 17 kennslustofur, þar af tveir fyr- irlestrarsalir, sem taka 100 manns hvor, og að auki stór sameiginiegur samkomusalur og veitingastofa. Þegar byggingaframkvæmdir hófust í júní 1970, hafði verið unnið í heilt ár að skipulagn- ingu húsakynnanna. Voru full- trúar starfsmanna hjá Volvo hafðir með í ráðum frá upp- hafi. FIMM EININGAR. Félagsheimilið er fimm bygg- ingaeiningar. f einni er sund- höllin með 25 metra laug og sex brautum. Tengt sundhöll- inni er þjálfunarherbergi, þar sem menn geta hjólað, róið eða sippað. A svölum ofan við sundlaugina er veitingastofa fyrir baðgesti. í annarri einingu er íþrótta- saulurinn fyrirferðarmestur. Hann er af alþjóðlegri stærð, 42x23 metrar, og þar geta all- ir áhugamenn um handbolta, tennis, badminton, volleybolta og frjálsar íþróttir hjá Volvo æft sig og keppt. í íþróttasaln- um er líka áhorfendasvæði. Undir salnum eru bowling- brautir, átta talsins með sjálf- virkum búnaði. Og í bowling- salnum er líka veitingaaðstaða og_ áhorfendasvæði. í tengiálmu milli sundhallar og íþróttasalar eru búningsher- bergi og baðherbergi, sem rúma 50 manns í einu. Þar er þjálfunarsalur með tækjum fyrir margs konar hreyfingu og áreynslu og þar geta fim- leikamenn og ræðarar líka æft sig. 17 KENNSLUSTOFUR. í kennsluálmunni eru 17 stofur, mismunandi stórar. Þær tvær stærstu rúma 100 manns hvor en þær minni taka allt að 16 manns. Stofurnar eru byggðar með það fyrir augum að þær megi nota í mjög marg- vislegum tilgangi. Þær henta vel fyrir fundi og ráðstefnur og eru útbúnar ýmsum tækj- um til myndsýninga og hljóm- burðar. Aðalveitingastofa hússins er í því miðju og er aðalsam- 14 FV 6-7 1972

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.