Frjáls verslun - 01.07.1972, Blaðsíða 31
herra skuli innan sex mánaða
frá breytingu á vikukaupi
í almennri verkamannavinnu
breyta upphæðum bóta í sam-
ræmi við það. Fjölskyldubæt-
ur eru undanþegnar þessu
ákvæði, en hækkun þeirra fer
eftir ákvörðun ríkisstjórnar á
hverjum tíma.
Á AÐ TAKA UPP VÍÐTÆK-
ARI VERÐTRYGGINGU?
Það er nokkuð snúið mál,
hvort færa eigi út gildissvið
verðtryggingar eða ekki. Höf-
uðókosturinn við þá vísitölu-
bindingu, sem er við lýði, er
sá, að hún er aðeins á vissum
sviðum, sem veldur mismun-
un. Þannig hefur ríkisvaldið í
hendi sér að yfirbjóða á lána-
markaðnum, og upp er að rísa
tvöfaldur, ef ekki þrefaldur
lánamarkaður, sá ríkisverð-
tryggði, sá ótryggði og sá
gengistryggði. Þetta skapar
ýmis vandkvæði, og með því
að einskorða vísitölu við tekj-
ur, en taka ekki með fjár-
skuldbindingar launþega, er
hallað á lánveitendur. Þar fyr-
ir utan krefst kaupgjaldsvísi-
talan sjálf endurskoðunar,
vegna þess, að óeðlilegt er að
hafa eina tegund skatta í
henni, en ekki aðra og binda
þannig hendur ríkisvaldsins
um tekjuöflun.
Menn hafa að sjálfsögðu
miðað aðgerðir sínar við ríkj-
andi kerfi og skyndileg aukn-
ing skuldabyrði vegna verð-
tryggingar gæti orðið mörgum
þung í skauti.
Að sumu leyti var þetta ein-
mitt ástæðan fyrir því, að
bæði launþegar og vinnuveit-
endur höfnuðu gengishækkun-
arleiðinni eigi alls fyrir löngu.
Ég tel þó, að víðtækari verð-
trygging á sparifé, lánum, líf-
eyri, afskriftum o. fl. mundi
jafna ríkjandi mismunun á
ýmsum sviðum og beina fjár-
magninu í æskilegri farvegi að
sumu leyti en verið hefur.
Verðtryggingin þyi'fti ekki að
vera alger og hana yrði að
innleiða skipulega, jafnvel í
áföngum. (í sjálfu sér er
venjuleg vísitöluuppbót, sem
kemur eftir á, aldrei full verð-
trygging). Tryggja verður, að
hver visitala elti ekki aðra um
of, þannig, að verr væri af stað
farið en heima setið. Sömuleið-
is yrði að vanda alla skatta-
lega meðferð.
Með þessu móti yrði leitazt
við að draga úr skaðlegum —
og stundum tilviljunarkennd-
um — afleiðingum verðbólg-
unnar, fremur en uppræta
hana sjálfa. Jafnvel þótt víð-
tæk verðtrygging stæði ekki
nema skamma hríð, gæti hún
sýnt mönnum fram á fánýti
vei'ðbólgunnar. Þess vegna tel
ég, að tilraunin sé vei þess
virði að gera hana, og að hún
geti gert sitt gagn.
Fjölbreytilegasta sælgætið • SELJUM
LINDA HF., Akureyri, framleiðir fjölbreyti- SÆNGUR
legasta sælgætið á landinu, enda vörur hennar OG KODDA.
eftirsóttar. Allir verzlunarmenn •
nota hið næringarmikla súkkulaði frá ENDURNÝJUM
LINDU. Það eykur þrótt og gefur möguleika GÖMLU
á vinningi í harðri samkeppni viðskipta- lífsins. SÆNGURNAR.
^>úl?l>u.íacíiuerhimlkjan, oCincla hí. DÚN- OG
FIÐURHREINSUNIN
VATNSSTÍG 3, REYKJAVÍK.
SÍMI 18740.
FV 6-7 1972
31