Frjáls verslun - 01.07.1972, Blaðsíða 49
Efnagerðin Vilko
Aðlögun að íslenzkum smekk
er undirstaðan
— Samkeppnisaðstaða okkar
gagnvart innflutningi byggist
fyrst og fremst á því að við
breytum uppskriftunum til
samræmis við íslenzkan
smekk, sagði Hallgrímur Mar-
inósson framkvæmdastjóri efna-
gerðarinnar Vilko. Þrátt fyrir
að verðið sé heldur hærra á
okkar framleiðslu en þeirri inn-
fluttu, tekur fólk henni greini-
lega vel, því að fyrstu fimm
mánuði þessa árs hefur salan
aukizt um 50%.
Vilko framleiðir sjö tegund-
ir af ávaxtasúpum, átta tegund-
ir af þurrkuðum ávöxtum, og
á döfinni er að hefja fram-
leiðslu á kraftsúpum og instaut
búðingum, sem ekki þarf að
hita og tiibúnir eru um leið og
þeir hafa verið hrærðir.
HRÁEFNIÐ ALLT ERLENT
Hráefnið er allt keypt er-
lendis fra, enda vex ekkert af
því hér, en umbúðirnar eru ís-
lenzkar. Aðalhráefnin eru
krydd, salat, sykur og ávextir.
Verksmiðjan hefur gert tilraun
með að vinna úr íslenzkum blá-
berjum, en hún gafst ekki
nægilega vel. Þau voru erfiðari
í meðförum en þau innfluttu,
auk þess sem þau innihalda
minna af C-vítamíni.
Erlenda hráefnið er blandað
hér eftir erlendum uppskrift-
um, sem breytt hefur verið mið-
að við íslenzkan smekk, sem
er aðallega fólgið í því að hafa
minni sykur og meiri ávexti
en erlendu uppskriftirnar
segja til um. Að sögn Hallgrims
hefur fólk tekið þessum breyt-
ingum mjög vel, eins og sölu-
aukningin sannar reyndar.
LÍTILL MARKAÐUR GERIR
FRAMLEIÐSLUNA DÝRA
Hinn smái markaður sern hér
er, gerir það að verkum, að
framleiðslan verður dýr. Hrá-
efni er keypt inn í smáum ein-
ingum, sem er mun dýrara en
ef meira væri keypt í einu.
Tæki, sem til þarí, eru miðuð
við meiri framleiðslu og eru
dýr, og fjölbreytnin er einnig
kostnaðarsöm, þar sem alltaí
fer einhver tími í að skipta um
verkefni. Af þessum sökum
þurfa framleiðendurnir að hafa
fleiri krónur nettó af sölunni
en stórir aðilar.
Vilko blandar einnig þurrk-
aða ávexti, sem fyrr segir, en
þurrkun er elzta þekkta aðferð
við geymslu matvæla, og er orð-
in það þróuð, að ávextirnir
missa lítið sem ekkert af nær-
ingargildi sínu við hana. Þess
vegna er mun meira næringar-
gildi í sama rúmmáli þurrk-
aðra ávaxta en nýrra. Tvær
aprikósur nýjar, hafa t. d. sama
rúmmál og 20 þurrkaðar, en
þær þurrkuðu hafa 10 sinnum
meira næringargildi.
Varðandi útflutningsmögu-
leika á framleiðslunni sagði
Hallgrímur, að ekki væri Líma-
bært að hugsa um það að svo
stöddu, hins vegar hefði fyrir-
tækinu borizt tilboð erlendis
frá um allmikla framleiðslu á
ákveðinni sértegund frá Vilko,
en ekki væru enn möguleikar
á að sinna því. —
Sölufélag garðyrkjumanna:
IVIöguleikar íslenzkrar
garðyrkju eru geysi-
miklir
— Möguleikar íslenzkrar
garðyrkju eru geysilegir vegna
nægs jarðhita og stóraukinnar
rafvæðingar, sagði Þorvaldur
Þorsteinsson, forstjóri Sölufé-
lags garðyrkjumanna. Sölufé-
lagið var stofnað árið 1940 og
er samtök gróðurhúsaeigenda
FV 6-7 1972
um land allt.
Félagið nær til ylræktar
grænmetis, en ekki blóma.
Framleiðsla og neyzla hefur
farið stöðugt vaxandi frá stofn-
un félagsins og hefur aukningin
verið 7 til 8% á ári að undan
förnu. í fyrstu var fólk nokkuð
41