Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 57

Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 57
Ölgeröin Egill Skallagrímsson: 01 og gos ekki lengur lúxusvara, heldur vanavara — Neyzla gosdrykkja fer mjög vaxandi um allt land og virðist vera sem fólk líti ekki lengur á gosdrykki sem Iúxusvöru heldur fremur vanavöru, sagði Tómas Tómasson framkvæmda- stjóri Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar. Verksmiðjan framleiðir nú um 15 tegundir öls og gos- drykkja, og fer neyzla allra tegunda vaxandi. Verksmiðj- an getur nú tappað á 1200 flöskur á klukkutíma, en þrátt fyrir það hefur hún vart undan, þegar mest er að gera, sem er á sumrin. Þá er framleitt 15 til 20% meira en á veturna. Að öðru leyti eru litlar sveiflur í neyzlunni nema hvað hún er nokkuð mismunandi á hverjum stað fyi'ir sig eftir árstíðum, sem þá er gjarnan í tengslum við breytt og tímabundið at- vinnuástand, svo sem vertíðina. Tómas sagði, að þessar sveiflur sköpuðu óveruleg vandamái, því að reynzlan væri búin að leiða í ljós, hvernig þær fæiu um landið og kæmu þær því ekki á óvart. FJÖLBREYTNIN DÝR Varðandi þessa miklu fjöl- breytni í framleiðslunni, sagði Tómas, að hún væri að vísu nokkuð dýr, en að sama skapi nauðsynleg til þess að geta veitt góða þjónustu. Smekkur manna væri óendanlega fjölbreyttur. Verð gosdrykkja og öls hér er samt sem áður svipað eða lægra en víðast erlendis og taldi Tómas það í rauninni oro- ið of lágt, þar sem framleiðslu- kostnaðurinn hefði vaxið gíf- urlega að undanförnu, en gos- drykkirnir mjög óverulega. Gosdrykkjaframleiðendur fóru fram á verðhækkun til sam- ræmis við kostnaðarhækkan- irnar, en fengu ekki nema ht- inn hluta þess. NÝJUNGAR ALLTAF í ATHUGUN Tómas sagði, að engar sér- stakar nýjungar væru á næst- unni þótt ýmsar hugmyndir væru alltaf á döfinni, því aldr- ei væri lagt út í neitt nýtt fyrr en að þaulathuguðu máli, bæði með hliðsjón af eðli drykkjar- ins og fjármálahliðinni. Öllu öli og gosdrykkjum hjá Agli Skallagrímssyni er enn tappað á glerflöskur, og bjóst Tómas við að svo yrði í framtíðinni, a. m. k. væri ekki enn komið neitt það fram sem leyst gæti þær af hólmi, þótt ýmislegt hefði verið reynt og notað, — Ölgerðarmenn eru ekki hrifnir af plasti eða blikkum- búðum, auk þess sem mikið rusl skapast af þeim, en fóik geymir frekar flöskurnar og selur, segir Tómas. í fyrrasum- ar hvatti ölgerðin ferðafólk til þess að kasta ekki flöskunum á víðavangi, heldur skila þeirn og gaf það góða raun í tvenn- um skilningi, minni verðmæti fóru í súginn og landið varð hreinna á eftir. Varðandi skaðsemi gos- drykkja, sagði Tómas, að það væri tómt mál að tala um, peir væru allir næringarríkir og væru margir hinir mestu heilsu- bótardrykkir. Efnagerðin Valur: Samkeppni við innflutning erfið „Samkeppnisaðstaðan er mjög erfið,“ sagði Friðþjófur Þor- steinsson, forstjóri efnagerðar- innar Vals. Það er ekki einung- is, að við séum ekkert tollvernd- aðir þrátt fyrir að um íslenzk- an iðnað sé að ræða, heldur gengur erfiðlega að fá nauðsyn- leg lán, svo að innflytjendur, sem keppa við okkur, hafa full- komna samkeppnisaðstöðu. Efnagerðin Valur er einhver sú stærsta hér á landi og fram- leiðir m. a. margar tegundir sultu, saft, djús, íssósur, marmi- laði, remolaði, búðinga, l^rydd og fleira. Verð á þessum vörum er ýmist svipað eða heldur lægra en á sambærilegum inn- fluttum vörum. FÓLK VELUR ÍSLENZKT Þrátt fyrir óverulegan verðmis- mun, sagði Friðþjófur, að FV 6-7 1972 49

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.