Frjáls verslun - 01.07.1972, Blaðsíða 42
VIII BLAÐAUKI
FV 6-7 1972
ísafjörður:
■ Hér er það vinnugleðin
knýr mann áfram
*
— segir kaupmaðurinn á Isafirði
— Það er áreiðanlegt, að
enginn leggur út í langvarandi
verzlunarrekstur á stað eins og
á ísafirði, ef gróðasjónarmið
er honum efst í huga. Hér er
það vinnugleðin sem knýr
mann áfram og ekkert annað,
sagði tJIfar Ágústsson, eigandi
verzlunarinnar Hamra.borgar á
ísafirði í viðtali við FV.
Úlfar tók við rekstri Hamra-
borgar fyrir rúmum tveimur
árum en hafði áður verið þátt-
takandi í rekstri þriggja verzl-
ana á vegum þessa sama fyrir-
tækis. Kom í ljós, að grund-
völlur var ekki fyrir svo um-
fangsmikilli starfsemi og tóku
þá Úlfar og félagi hans, sem
unnið höfðu báðir að verzlun-
inni, við fyrirtækinu. Hamra-
borg er til húsa í Hafnarstræti
7 á ísafirði, og er hún ein af
níu matvöruverzlunum á staðn-
um. Kaupfélagið rekur þrjár
verzlanir á ísafirði og í Hnífs-
dal, en miðað við veltu mun
Hamraborg koma næst á eft-
ir kaupfélaginu.
Og hvernig er svo að reka
verzlun á ísafirði?
— Þetta er eilíft púl, svar-
ar Úlfar. Þó að verzlunarrekst-
urinn hjá okkur gangi betur
þessa stundina en áður getur
verzlunin tæpast borið allan
þann kostnað, sem hún verður
að standa undir. Konan mín
og sonur vinna mikið í búð-
inni með mér og það er oft
ærið langur vinnudagur hjá
fjölskyldunni. Ég geri ráð fyr-
ir, að minn vinnutími sé um
80 stundir á viku, konan mín
vinnur um 30 tíma og sonur-
inn 20, en það er ekki um það
að ræða, að við höfum venju-
legt tímakaup upp úr þessu.
Við erum í allt annarri að-
stöðu en kaupmaðurinn syðra.
Hér leggjast um 20% á vör-
una í flutningskostnáð og því
er svo háttað, að ef við kaup-
menn flytjum vöruna beint frá
heildsala i Reykjavík er okk-
ur óheimil álagning á inn-
kaupsverð ásamt flutnings-
kostnaði heldur bætist hann
aðeins einfaldur við. Ef heild-
verzlun á ísafirði kaupir hins
vegar inn vörur að sunnan er
álagningin reiknuð á samanlagt
innkauDSverð og flutnings-
kostnað.
Úlfar Ágústsson.
Hér á ísafirði verðum við
líka að hafa tvöfaldan vöru-
lager á við það, sem tíðkast í
Reykjavík. Astæðan er sú, að
aldrei er hægt að treysta því,
að vörurnar berist okkur
reglulega að sunnan. Ríkisskip
á að halda uppi reglulegri á-
ætlun hingað þannig að skipin
komi á tíu daga fresti en áætl-
unin stenzt sjaldnast og líða
oft tvær vikur ef ekki meira
milli ferða. Viðkvæma vöru,
eips og kjöt og unnar kjötvör-
ur t.d. er ekki hægt að flytja
með skipunum, því að oftast
verður að panta flutninginn
sem
með viku fyrirvara og koma
honum til geymslu hjá Ríkis-
skipi í Reykjavík. Þess vegna
flytjum við viðkvæmustu teg-
undir matvöru í flugvél, en sá
böggull fylgir skammrifi að í
flugfragtinni er verðið á hvert
kíló kr. 8.50 en verðlagsyfir-
völd viðurkenna ekki nema 4
krónur í flutning á hvert kíló.
Mismuninn, kr. 4.50, verðum
við þess vegna að taka af á-
lagningunni sem okkur er ætl-
uð.
Hvað um opnunartímann á
Ísaíirði?
Verzlanir eru lokaðar á
mánudagsmorgnum, opnar 9—
6 aðra daga nema laugardaga
en þá er opið fyrir hádegi.
Líkur eru til að þetta breytist
um áramót og verzlanir á ísa-
firði verði þá lokaðar á laug-
ardögum.
— Ég tel upp á, að það sé ó-
hjákvæmilegt að rjúfa tengslin
milli samningsbundins vinnu-
tíma verzlunarfólks og opnun-
artíma sölubúða. Það er frá-
leitt að hafa lokað tvo heila
daga í viku í útgerðarbæ eins
og ísafirði. Verzlunin, hvar
sem hún er rekin, er þjónusta
við fólk og það er ekki hægt
að skella í lás á það á hinum
ólíklegustu tímum. Ég hef op-
ið hjá mér í Hamraborg alla
sunnudagsmorgna og afgreiði
þá sjálfur. Það hefur sýnt sig,
að sú þjónusta er bráðnauðsyn-
leg konunum, sem vinna í fisk-
vinnslunni. Þær eru í ákvæð-
isvinnu en bregða sér heim í
matartíma og nota hann til að
elda ofan í heimilisfólkið.
Kaffitímann hafa þær svo not-
að til að verzla. Það kemur
sér þess vegna greinilega vel,
þegar Hamraborg er opin á
sunnudögum og aldrei sé ég
jafn þakkláta viðskiptavini.
Það er ánægjulegt að geta
veitt slíka þjónustu, sagði Úlf-
ar að lokum.