Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Qupperneq 19

Frjáls verslun - 01.07.1972, Qupperneq 19
Greinar og viötöl Guðmundur H. Garðarsson um verðbólguna: „Afieiðingarnar geta stórfellt atvinnuleysi á næsta ári” Óðaverðbólga, sem nú er í algleymingi, hefur verulega rýrt þær kjarabætur, sem launþegar fengu með samning- unum í desember í fyrra. Fyrir verzlunarmenn voru þess- ir samningar mjög mikilvægir en hvernig er viðhorf þeirra til kjaramálanna'í dag, rúmu hálfu ári seinna? Frjáls verzlun ræðir við Guðmund H. Garðarsson, for- mann Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, um málefni launþegastéttanna og félagsmál V.R. sérstaklega. FV: — Hvert er þitt mat á stöðu launþegans í dag? Hefur kaupmáttur launa almennt aldrei verið hærri en nú, eins og menn sögðu á þingi Verka- mannasambands íslands á dög- unum? GG: — Staða launþegans hefur stórversnað undanfarna mánuði vegna gífurlegrar verð- bólguskriðu, sem skollið hefur yfir. Þrátt fyrir aukna krónu- tölu, sem hver og einn fær í sinn hlut, er það mín skoðun, að verðbólgan sé á undan að éta kauphækkunina upp. Þetta er vitaskuld mjög alvarlegur hlutur og einnig ber að líta á þá hættu, sem er á því, að staða fyrirtækjanna, er sjá fólkinu fyrir atvinnu, veikist mjög alvarlega. Afleiðingarnar geta orðið stórfellt atvinnu- leysi þegar á næsta ári. Ég furða mig mjög á yfir- lýsingu Verkamannasambands- ins og hún minnir helzt á hugsunarhátt þeirra manna, sem ,lifa á veltunni“ eins og kallað er, tapa stórfé og stofna sér í skuldir en hirða peninga, sem fást með aukinni sölu, til eigin neyzlu. Fulltrúar Verkamannasambandsins virð- ast alls ekki hafa gert sér grein fyrir raunverulegri stöðu þess- ara mála, því að ég ætla ekki að væna þá um vísvitandi blekkingar. FV: — Það hefur komið fram hörð gagnrýni á ríkis- stjórnina fyrir að hafa fyrir- fram gefið loforð um 20% kaupmáttaraukningu á tveim- ur árum án hess að kanna ástand efnahagsmálanna. til neinnar hlítar. Ert þú þeirrar skoðunar, að einhverja aðra leið hcfði átt a.ð fara við samningagerðina í fyrra en þá, sem varð ofan á? GG: — Ég er þeirrar skoð- unar, að jafnar, hóflegar, ár- legar kauphækkanir í sam- ræmi við nettóaukningu þjóð- arframleiðslunnar, sé hin eina skynsamlega stefna í launapóli- tík. Allar meiriháttar stökk- breytingar eru ætíð hættuleg- ar, — bæði kynda þær undir óðaverðbólgu og skapa nsa aukna hættu á atvinnuleysi, þegar greiðsluþol atvinnufyrir- tækjanna brestur. Hinu eru ekki að leyna, að fyrir þeim, sem vilja hefta atvinnulífið í viðjum sósíalisma er það aðeins áfangi að settu marki, að leggja svo miklar byrðar á atvinnuvegina á óða- verðbólgutímum að grundvöll- ur fyrir einkarekstri bresti. Það má vel vera, að þetta sé einmitt markmið sumra stuðn- ingsmanna þeirrar ríkisstjórn- ar, er nú fer með völd á ís- landi. Gleggsta dæmi þessu til sönnunar er afgreiðsla álagn- orðið þegar ingarmála verzlunarinnar. Á sama tíma, sem smásöluverzl- unin fær að hækka álagningu um 1% samþykkir ríkisstjórn- in að álögur á launþega hækki í hinum ýmsu myndum um tugi prósenta. „STAKFSFÓLKIÐ FJAR- LÆGIST FYRIRTÆKIN '. FV: — Nú eru verzluna.r- inenn annars vegar og kaup- inenn eða. þjónustufyrirtæki hins vegar tveir andstæðir hagsmunahópar, launþegar og a.tvinnurekendur. Við höfuni fyrir okkur ótal dæmi um erj- ur milli slíkra hagsmunaheilda á vinnumarkaðinum. Lifir og starfa.r verzlunarfólk í anda hinnar frjálsu verzlunar og telur sig því eiga samleið með atvinnurekendum mcir en ger- ist í öðrum greinum eða hefur verzlunarfólk ka.nnski fjar- lægzt hugsjónina? GG: — Þetta er ekki hægt að alhæfa. Ég held að starfs- fólkið hafi ákveðna tilhneig- ingu til að fjarlægjast fyrir- tækið sem slíkt, hvort sem það er einkafyrirtæki, samvinnu- fyrirtæki eða ríkisstofnun. Til skamms tíma hefur verið á- berandi samstaða milli laun- þega og vinnuveitenda innan verzlunarinnar um að einka- reksturinn ætti að vera hið ríkjandi eignarform. Dæmi um samstarf í þessari atvinnu- grein má taka af Flugfélagi ís- FV 6-7 1972 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.