Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Qupperneq 25

Frjáls verslun - 01.07.1972, Qupperneq 25
vetur, og ennfremur, hvaða leiðir séu færar til að hin frjálsa verzlun geti tryggt neytendunum sömu góðu þjón- ustuna og áður að því er opn- unartíma varðar. GG: — Vinnutímastytting hefur alls staðar orðið á hin- um síðari árum. Ég vil hins vegar ekkert um það segja, hvort íslendingar hafi efni á þessari styttingu, sem nýverið var lögbundin. í fljótu bragði vii'ðist mér að helztu áhrif hennar verði hærri framleiðslu- kostnaður vegna dýrari vinnu- stunda umfram hinar 40 stund- ir. Það skulum við líka hafa hugfast, að þjóðin hefur orðið að vinna mikið og lengi til að komast á það lífskjarastig, sem við njótum, og ég geri ekki ráð fyrir að það viðhorf breyt- ist í bráð. Hvað opnunartíma sölubúða snertir hef ég alltaf haft þá skoðun, að hér þurfi að koma á skiptiverzlun, — þjónustu, sem neytendur óska eftir og væru tilbúnir að greiða fyrir. Þetta fyrirkomulag er á lyfja- verzluninni. En þarna er iíka vikið að heildarskipulagi smá- söluverzlunarinnar, því að eftir því sem verzlanir eru stærri er auðveldara að koma skipti- verzlun við en í smærri búð- um er hún óhagkvæm nema eigendurnir komi með í mynd- ina að verulegu leyti. FV: — Hverjum augum lit- ur forustumaður í launþega- hreyfingunni innan verzlunar- innar á hækkun álagningar í smásöluverzlun? GG: — Ég játa, að ég er ekki nógu kunnugur einstökum atriðum í rekstri fyrirtækj- anna en margt bendir til þess að smásöluverzlunin hafi búið við mjög þröngan kost undan- farið. Verzlunin verður hik- laust að hafa réttan starfs- grundvöll eins og aðrar at- vinnugreinar. Það er hjákát- legt, pegar svokallaðir vinstri menn býsnast yfir því að á- lagningargrundvöllur verzlun- arinnar hækki um 6—10% og finnst það óhæfa á sama tíma og þeir rétta upp höndina með glöðu geði til að samþykkja skattahækkanir, sem nema kannski tugum þúsunda á hvern skattborgara. Sem dæmi um hvað felst í hækkun álagningarprósentu mætti nefna, að 10% hækkun gerir 1% hækkun á álagningu, t.d. úr 10% í 11% en það jafngildir eins stigs hækkun kaupgjaldsvísitölu. Hugsanleg skýring á hvað kjör afgreiðslu- fólks hafa verið léleg er ein- mitt sú, hvað starfsgrundvöll- ur smásöluverzlunarinnar er slæmur. „KVARTANIR TIL FÉLAGS- INS HAFA STÓRAUKIZT *. FV: — Ber mikið á kvörtun- um félagsmanna í VR vegna þess að þeir telji sig hlunn- farna í viðskiptum við vinnu- veitendur? GG: — Kvartanir af því tagi hafa stóraukizt undanfarið. Þær stafa fyrst og fremst af meintum vanefndum, að fólk telji sig ekki vera í réttum launaflokkum. Þá eru nokkur brögð að því, að menn fá ekki greidda yfirvinnu. Mörg þessara mála eru leyst í fullri vinsemd deiluaðila enda er lögð áherzla á það af hálfu starfsmanna V.R. að slík- um ágreiningi sé eytt. Ef það tekzt hins vegar ekki, er mál- ið falið sérstökum lögfræðingi V.R., sem rekur það fyrir dóm- stólum. Fjölgun kvartana tel ég að eigi fyrst og fremst rætur að rekja til þess, að félagsmenn, sem nú eru hátt á fimmta þúsund, leita í mun ríkari mæli en áður til félags- ins, þ.e.a.s. að ekki er vist að um versnandi sambúð vinnu- veitenda og starfsfólks sé nauð- synlega að ræða heldur sé oít- ar vakin athygli á því nú en áður var. FV: — Hvað er helzt á döfinni í innanfélagsmálum V.R. öðrum en þeim, sem nefnd hafa verið? GG: — Það stendur til að stórefla sambandið við ein- staka félagsmenn og í því augnamiði er ráðgert að hefja útgáfu á félagsblaði í nýju formi og láta það koma reglu- lega út, t.d. á tveggja mánaða fresti. Jafnframt verður fræðslustarfsemi aukin fyrir milligöngu blaðsins og með fundum og námskeiðum. Félagið leggur líka ríka á- herzlu á að skapa félagsmönn- um tækifæri til afþreyingar í orlofi sínu og á nú fjögur sum- arhús, tvö i Ölfusborgum og tvö að Illugastöðum í Fnjóska- dal. Drög hafa verið lögð að því að fá þrjú til viðbótar, eitt í Fnjóskadal, annað í sum- arbústaðahverfi í Vatnsfirði og hið þriðja á Austurlandi. Að- sókn að sumarbústöðunum hef- ur verið gífurleg og við hvergi nærri getað annað eftirspurn. Endurskipulagning félagsins er líka ofarlega á baugi. Við- horfin hafa mikið breytzt. Inn- an jafnstórs félags eru afar- mismunandi starfshópar. Hugs- anlega verður því lagt út í aukna deildaskiptingu með við- eigandi breytingum á stjórn og trúnaðarmannakerfi félagsins. FV: — Er það hollt fyrir launþegahreyfinguna, að for- ustumenn henna.r á borð við þig heyi baráttu á hinum póli- tíska vettvangi jafnframt störf- um sínum í þágu umbjóðend- anna? Getur hið pólitíska starf hugsanlega haft neikvæð áhrif á árangur kjarabarátt- unnar, þegar við pólitíska and- stæðinga. er að eiga í ríkis- stjórn eða á öðrum vettvangi, og þarna á ég ekki aðeins við þig heldur ennfremur menn á borð við Björn Jónsson og Eð- varð Sigurðsson? GG: — Það er óumflýjanlegt, að þeir menn, sem veita stærri launþegafélögunum forystu og einnig leiðtogar samtaka vinnu- veitenda, séu þátttakendur í stjórnmálastarfinu ásamt öðr- um, sem ekki eru stéttbundnir. í lýðræðislegu þjóðfélagi er stöðugt verið að reyna að koma á jafnvægi, raunverulega sátt- um milli stríðandi afla til að viðhalda og vernda frelsi einstaklingsins. Þá verða þeir, sem valdir eru til forystu og ábyrgðarstarfa í fjöldahreyfing- um að geta skýrt og túlkað afstöðu umbjóðendanna jafn- framt sem þeir berjast fyrir ákvarðanatöku félagsmönnum í hag. Ég er líka á móti alræði einnar stéttar eða fárra stétta og líka andmæltui' því að verkalýðshreyfingin sem slík eigi að fylgja ákveðnum flokki að málum. Það sem aðallega skilur á milli Sjálfstæðis- manna, forystu launþegasam- takanna og vinstri manna, er einmitt grundvallarágreiningur um eignaraðild að fyrirtækjun- um. Við Sjálfstæðismenn erum þeirrar skoðunar, að möguleik- ar fólksins til betri lífskjara séu bezt tryggðir, ef atvinnu- rekstur er sem mest í höndum einkaaðila en ekki ríkisstofn- ana, Þetta er margsannað mál. Við berjumst mjög eindregið gegn þjóðnýtingu fyrirtækja, því að reynslan hefur verið sú, að þar sem fyrirtækjarekstur- inn er á valdi ríkisins eru lífs- kjör lakari og ósjálfstæði fólks- ins meira. © 25 FV 6-7 1972
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.