Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 29

Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 29
bindingum, sem tengdar eru öflun fasteigna eða annarra fjármuna, sem ætla má að hækki í verði með almenn- um verðlagsbreytingum. 3. Sé miðað við greiðslu í einu lagi eftir á, skal fjárskuld- bindingin ekki gerð til skemmri tíma en þriggja ára, en lán með jöfnum af- borgunum ekki til skemmri tíma en fimm ára. 4. Eigi má reka peningavið- skipti með þeim hætti að endurlána með verðtrygg- ingu fé fengið með öðrum kjörum. 5. Verðtryggðar kröfur og skuldbindingar skulu ætíð skráðar á nafn. (Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs eru undanþegin framtals- skyldu). Sérstaklega er ástæða til að benda á, að yfirleitt er bann- að að iána gegn verðtryggingu í einu eða öðru formi, t. d. með vísitöluákvæðum, gengistrygg- ingu o. s. frv. Má þar minna á dómsúrskurði í sambandi við lán eins tryggingarfélags og sölu á alfræðibókum. VERÐTRYGGÐ SPARISKÍR- TEINI OG SKULDABRÉF Árið 1959 voru gefin út skuldabréf Rafveitna ríkisins vegna Sogsvirkjunar, að upp- hæð 30 millj. kr. til fimm ára með vísitölu rafmagnsverðs í Reykjavík sem verðtryggingu. Stærsti útgáfuaðilinn hefur þó verið Húsnæðismálastjórn í gegnum veðdeild Landsbank- ans. I nóvember 1955 voru fyrst veitt vísitölubundin lán og miðuðust þau við fulla framfærsluvísitölu, en jafn- framt voru venjuleg lán veitt áfram. Árið 1964 var ákveðið, að í staðinn skyldi miðað við fulla kaupgjaldsvísitölu, en ár- ið 1968 var því breytt í hálfa kaupgjaldsvísitölu. Á nýaf- stöðnu þingi var síðan ákveð- ið að fella vísitöluákvæðið niður og miða við nafnvexti, sem aldrei yrðu hærri en 7%% að meðtöldum kostnaði. Vísitölubinding lánanna varð talsvert hitamál. Ekki er hægt að segja, að lántakendur hafi skaðazt á lánunum, en sýna má fram á, að þau voru óhagstæðari en venjuleg líf- eyrissjóðslán. Var því í raun um mismunun að ræða, sem þó er loðið hugtak á ófull- komnum lánamarkaði, þegar ýmsir aðrir hefðu viljað borga vísitöluálagið, og jafnvel meira en það, til að fá lánin. Sparimerkin voru látin fylgja vísitölukjörum Húsnæð- ismálastjórnarlána og mun stofninn nú nema um 700 millj. kr. auk vísitöluálags, sem var 72 milljónir um s.l. áramót og 120 millj. í spari- merkjum, sem eru í umferð. Húsnæðismálastjórn hefur heimild til að varðveita fé með vísitölukjörum, en betta hef- ur ekki komið til fram- kvæmda. Síðan 1964 hafa spariskír- teini og skuldabréf ríkissjóðs verið seld með verðtryggingu með milligöngu Seðlabanka ís- lands. Voru þau upphaflega með 6% vöxtum fyrstu 4-5 ár- in. en 7,2% meðalvöxtum og fullri byggingarvísitölu á höf- uðstól, vexti og vaxtavexti. Verða þetta að teljast hagstæð kjör, sem e. t. v. var nauðsyn- legt til að brjóta ísinn. Alls hafa verið gefin út bréf fyrir um 1 milljarð frá 1964, þar af um200 millj. kr. á þessu ári, og von á meiru. Samansafnaðar verðbætur munu nema rösk- lega 1/2 milljarði. 95 millj. voru seldar með vísitölutryggingu í happdrætt- isláninu vegna hringvegs á s.l. ári. Þá hefur nýlega komið til tals, að Byggingasjóður ríkis- ins seldi lífeyrissjóðunum vísi- tölubréf fyrir 150-300 millj. kr. GENGISTRYGGÐ LÁN Aðeins fáeinir sjóðir munu veita gengistryggð lán, fyrst og fremst Iðnþróunarsjóður og Fiskveiðasjóður að 3/5 hlut- um. Útistandandi lán af þessu tagi munu nema um 400 millj. kr. hjá Iðnþróunarsjóði, en er- lendar skuldir Fiskveiðasjóðs munu vera meiri en þetta. Þá tóku Atvinnumálanefnd- irnar erlend lán og endurlán- uðu með gengistryggingu og ./tvinnujöfnunarsjóður mun lána með sama hætti, svo og Lánasjóður íslenzkra sveitar- félaga. Ferðamálasjóður lánar erlend lán gegn gengistrygg- ingu og innlend gegn verð- tryggingu. Þá fær Fram- kvæmdasjóður nú einnig til ráðstöfunar innlent vísitölufé, sem væntanlega verður endur- lánað öðrum sjóðum með verð- tryggingu í einu eða öðru formi, en hann er sem kunn- ugt er „sjóður sjóðanna“ og hefur endurlánað erlent fé. SKATTALÖGIN í skattalögunum er nú ákvæði um, að atvinnufyrir- tæki megi á árunum 1971-1972 endurmeta fyrnanlegar eignir, samkvæmt nánari reglum. í lögum um tekjustofna sveitar- félaga er heimildarákvæði um að breyta megi fasteignamati til samræmis við ríkjandi verðlag hverju sinni. Þá er svo kveðið á um í lögum um almannatryggingar, að ráð- Víðtœkari verðtrygging á sparifé, lánum, lífeyri og afskriftum myndi beina fjármagninu í ceskilegri farveg. FV 6-7 1972 29

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.