Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Qupperneq 38

Frjáls verslun - 01.07.1972, Qupperneq 38
IV BLAÐAUKI FV 6-7 1972 veiðar. Á sumrin hafa hand- færabátar líka selt hráefni til frystihússins. Mjög miklar sveiflur eru í mannafla hjá Hjálmi h.f., en á síðasta ári voru greiddar 19 milljónir króna í laun. Hvað framleiðslu- magn snertir er Hjálmur h.f. fimmti í röðinni af frystihús- um innan SH á Vestfjörðum. Þau eru 12 samtals. Línuveið- ar Flateyrarbáta hafa tryggt Hjálmi h.f. gott hráefni og hefur mjög hátt hlutfall farið í neytendaumbúðir. GRÁLÚÐA í SUMAR. Yfir sumarmánuðina er það aðallega grálúða, sem unnin er í frystihúsinu. Veiði hennar hófst ekki fyrir alvöru fyrr en 1970 en Þjóðverjar og fleiri höfðu þá veitt hana lengi. Fer grálúðan einkanlega á mark- að í Sovétríkjunum og Þýzka- landi. Vestfjarðarbátar hafa að undanförnu orðið fyrir gífur- legu veiðarfæratjóni vegna á- gangs togaranna og hafa þeir stundum hreinsað allt, sem bátarnir hafa verið með á Grænlandskantinum. Varðandi nýja nytjafiska hefur hörpudiskur verið veidd- ur í nokkra mánuði í Arnar- firði og verkaður hjá kaup- félaginu á Flateyri en þrátt fyrir hagstæða verðlagsþróun hefur orðið tap á vinnslunni. 12—13 MILLJÓNA FJÁRFESTING í ÁR. Samkvæmt upplýsingum Ein- ars Odds ætlar Hjálmur h. f. að fjárfesta 12—13 milljónir á þessu ári í fasteignum og vél- um. Verða gerðar nýjar fisk- þrær í móttöku og byggðir upp nýir frystiklefar fyrir lyftara og palla. Þá er og unnið að endurbótum á beinamjölsverk- smiðjunni. Hjá sveitarfélaginu er áform- að að hraða því að steypa á hafnarsvæðinu fyrir framan frystihúsið og halda svo á- fram undirbúningi að varan- legri gatnagerð í þorpinu. Þá ætlar sveitarfélagið að byggja litlar íbúðarblokkir með leigu- íbúðum, því tilfinnanlegur hús- næðisskortur er á Flateyri. Af öðrum opinberum fram- kvæmdum á staðnum má nefna stækkun á stálþili sem byrjað var á í höfninni 1967. Verður varið 3 milljónum króna til þessarar frarnkvæmda í ár. íbúar á Flateyri eru nú um 460 talsins. Suðureyri: IMýtt frystihús í byggingu ■ eitt hið fullkomasta á landinu 1 fiskmóttökunni er fiskurinn settur í stíur. Á Suðureyri við Súganda- fjörð er nú í byggingu nýtt frystihús, sem verður eitt hið fullkomnasta á íslandi enda gert í samræmi við þær ströngu kröfur um hreinlæti og hollustuhætti, sem Bandaríkja- menn gera til matvælavinnslu- stöðva er framleiða fyrir mark- aðinn vestan hafs. Verður hús- ið væntanlega fullbúið í ágúst- lok og er reiknað með að heild- arkostnaður við byggingu þess nemi um 100 milljónum króna. Það var í maí í fyrra, sem frystihúsið á Suðureyri skemmdist mikið af eldi og stóðu eigendur hússins þá frammi fyrir þeirri ákvörðun, hvort hefja ætti lagfæringar á gamla húsinu eða byggja nýtt. Endurbæturnar myndu hafa kostað um 30 milljónir en að yfirveguðu ráði var hafizt handa við nýbyggingu. Mælt var út fyrir grunni frystihússins nýja hinn 30. júní og hafa framkvæmdir gengið mjög vel. Húsið er tæpir 2000 fermetrar að stærð, ein hæð en tvær að hluta, og eru verbúðir þar á efri hæðinni. FYLLSTA HREINLÆTIS GÆTT. Frystihúsið er reist úr stál- grindum og hlaðið úr vikur- steini. Allar teikningar hafa verið bornar undir sérfræðinga rannsóknarstofnunar fiskiðnað- arins og verða í húsinu ýmis nýmæli, sem ekki hafa al- mennt þekkzt hér áður. Á gólf og veggi er notað terrasó-plast, sem er varanlegra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.