Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Blaðsíða 41

Frjáls verslun - 01.07.1972, Blaðsíða 41
FV 6-7 1972 BLAÐAUKI VII Fer&amál: Sívaxandi flutningar farþega og bíla með Fagranesinu — Það er greinilegt, að ferðamenn kunna mjög vel að meta jþá þjónustu, sem við veitum með ferðum Fagraness- ins inn í Djúp. Farþegafjöld- inn hefur farið vaxandi á síðustu árum og það er eft- irtektarvert, hvað margir hafa látið flytja bíla sína á milli ísafjarðar og Ögurs, þar sem komið er að nýju í akvega- samband suður um land. í fyrra fluttum við 1100 bíla og milli 5—6000 farþega, sagði Hinrik Matthíasson, forstjóri Djúpbátsins á ísafirði í viðtali við FV. Fagranesið hóf ferðir árið 1963 og hefur síðan haldið uppi samgöngum við ýmsa staði í Djúpinu og verið Hka í mjólkurflutningum milli ísa- fjarðar og Önundarfjarðar á vetrum. Það er aðeins í 'LVi mánuð á árinu, sem verulegir flutn- ingar eru með bátnum að sögn Hinriks, eða frá byrjun júlí til miðs sept. Þá taka við flutning- ar á sláturfé um nokkurt skeið og síðan hefjast vetrarferðirn- ar, sem fremur er dauft yfir. í sumaráætlun Djúpbátsins eru ferðir alla daga til Ögurs, nema sunnudaga, en sigling- in þangað frá Isafirði tekur hálfa aðra klukkustund. Einn- ig er farið einu sinni í viku að Bæjum. Full ástæða er til þess fyrir ferðafólk að panta pláss fyrir sig og bílinn með nokkrum fyrirvara, því að oft hefur orðið að vísa fólki frá, ef það hefur ekki haft fyrir því að tilkynna um komu sína með nokkrum fyrirvara. Fargjaldið í Ögur er kr. 180 en fyrir bílinn er tekið eftir- farandi flutningsgjald, sem ákveðst af stærð. Fyrir 4ra manna bíl: kr. 530, fyrir 5- manna bíl kr. 640 og fyrir 6 manna bíl kr. 720. Á bátnum er hægt að fá keyptan mat og aðrar veitingar. Séu farnar svokallaðar mjólkurferðir með bátnum um Djúpið, sem taka 11—12 tíma kosta þær 390 kr. fyrir manninn. — Við leggjum áherzlu á, að fólk láti okkur vita af komu sinni og er til dæmis hægt að gera það í Bjarkarlundi á leiðinni vestur, sagði Hinrik. Einnig vil ég vekja athygli á því, að ekki er síður skemmti- legt að aka fyrst að Ögri og taka bátinn til ísafjarðar en að fara hina leiðina. Við höfum oftast mjög gott rúm fyrir bíla og fólk, þegar við snúum aftur frá Ögri til ísafjarðar. Gistirýmið er ekki mikið Zrir ferðafólk á Vestfjörðum. gæt aðstaða er þó í Bjarkar- lundi og í Flókalundi í Vatns- firði. Hægt er að fá inni á einkaheimilum á Patreksfirði og á Þingeyri er gistihús _ og sömuleiðis á Rafnseyri. Á ísa- firði eru tveir gististaðir en báðir litlir. Fyrir þá sem ferð- ast með tjald með sér hefur verið opnað tjaldstæði í Tungu- dal, um 3 kílómetra fyrir inn- an ísafjarðarkaupstað. Er þar vörður á tjaldstæðinu. Inni í Reykjanesi í Djúpi er nú rekinn gististaður í skólan- um og er þar um að ræða svefnpokagistingu einkanlega en það er líka hægt að fá upp- búin rúm þar. í Reykjanesi er líka seldur matur og þar er upphituð sundlaug, sagði Hin- rik Matthíasson, að sérstök á- stæða væri til að benda fólki á þessa ágætu aðstöðu. KAIIPUM FISK ALHLIDA ÚTGERÐARÞJÓNUSTA Hraðf rystihús Fiskverkun Fiskimjölsverksmiðja HJÁLMUR HF. Flateyri. Símar 94-7700, 94-7702.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.