Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 47

Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 47
Brauðneyzla hefur farið tais- vert vaxandi að undanförnu og rakti Gunnar það m. a. til þess, að það færist nú í vöxt, að fólk fái sér ekki fulla máltíð í há- deginu, heldur borði snarl svo sem brauðsneiðar o. fl. í brauði er m. a. hveiti, rúgmjöl, egg, smjör og sykur sem eru nátt- úrleg hráefni. Fjölbreytni i bakstri eykst lítið. Fransk- brauð og rúgbrauð eru vinsæl- ustu brauðin, og snúðar og vin- arbrauð eru vinsælustu kökurn- ar. Lítið er bakað af smákök- um, og rjómatertur eru nær al- veg að hverfa. VERÐLAG Á BRAUÐI OF LÁGT Varðandi verðlag á brauöi, sagði Gunnar að það væri of lágt til þess að hægt væri að baka verulega góð brauð. — Verðlagseftirlitið ákveður há- marksverð á brauðum, sem ég álít að sé of lágt, sagði hann, og til þess að tapa ekki á brauð- bakstrinum verða bakarar að gera þau á ódýrari máta en skyldi. Mikil tækniþróun hefur orðið innan bakaraiðninnar síðustu ár. Stórvirk tæki eru nú orðin til flestra hluta, og vinna þau vandaða vinnu. Sem dæmi um sparnað vélvæðingarinnar nefndi Gunnar, að tilbúningur ákveðins magns af tvíbökum, sem áður tók þrjá til fjóra tíma, tæki nú 15 til 20 mínútur. Hreinlæti hefur einnig stór- batnað með tilkomu þessara véla auk þess sem strangt eítir- lit er nú með öllum bakstri. O. Johnson & Kaaber: íslendingar drekka mikið kaffi og sterkt -—- íslendingar eru með hæstu kaffineyzluþjcðum í heimi miðað við fólksfjölda, og drekka sterkt kaffi, sagði Ólaf- ur Jcnsson, forstjóri O. Johns- son og Kaaber. Þrjár tegundir kaffibauna eru til í heiminum, en fjöldi afbrigða er til af hverri baun. Þær heita Arabica og Robusta, sem eru vinsælastar, og Liber- ica sem er mjög lítið notuð. Arabica er arabísk eins og nafnið bendir til. Hún vex í 500 metra hæð og ofar, ei bragðmikil og dýrasta baunin. BEZTA FÁANLEGA BAUNIN NOTUÐ IIÉR Þessa baun notar O. Johns- son og Kaabsr í Ríó kaffið, og er hún keypt frá Brasilíu, sem er mesta kaffiframleiðsluland í heimi. Sama baunin getur haft margs konar bragð og fer það m. a. eftir því hvar hún er ræktuð. Baunir, sem hér eru notaðar í Ríó-kaffi koma frá héruðum nálægt Ríó, og eru sterkar. Santos-kaffið er úr baunum annarsstaðar frá og er öðruvísi á bragðið o. s. frv. íslenzkir eru vanir sterku kaffi, enda fer það vel víð vatnið hér og fólk er búið að venja sig við það. Á síðari ár- um hefur fjölbreytnin svo auk- izt verulega og er hún fólgin í blöndun tegunda og er þá fjór- um til sex tegundum blandað saman. Sú framleiðsla getur oft og tíðum verið nokkuð erf- ið, þar sem baunirnar í hana koma víðsvegar að úr heimin- um. Uppskera i kaffiræktar- löndunum getur verið mjög misjöfn, og er því oft erfitt að fá nóg af hverri tegund fyrir sig. Neyzla á þessum kaffiblönd- um fer vaxandi, en Ólafur sagði, að það tæki iangan tíma að koma fólki upp á þessar nýj- ungar, af því að smekkurinn væri mjög ákveðinn hér og margir legðu hreint og beint ekki út í að reyna nýjar teg- undir. í kaffibauninni eru tvö aðal- efni, caffeal, sem gefur kaffi- bragðið, og coffein, sem fram- kallar hressandi áhrif. Mörg fleiri efni eru í henni, en þau eru hverfandi lítil hvert fyrir sig. NEYZLAN HÆTT AÐ AUKAST Neyzla kaffis hérlendis hefur staðið nokkuð í stað á undan- förnum árum miðað við fólks- fjölgun, en nokkrar sveiflur eru í kaffineyzlunni eftir velmeg- un. Þegar kaupgeta fólks minnkar, dregst kaffisalan sam- an, en sala á kaffibæti eykst að sama skapi, svo að líklega helzt kaffidrykkja nokkuð ó- breytt þrátt fyrir efnahags- sveiflur. Ólafur sagði að verð á kaffi hér væri lágt miðað við víðast annars staðar í heiminum, ef hliðsjón væri höfð af gæðum, því kaffið hér kæmi beint úr beztu héruðum Brasilíu. — FV 6-7 1972 39

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.