Frjáls verslun - 01.08.1972, Síða 12
að til tíðinda dragi á lands-
fundinum, hefur það ekki sett
þau merki á samstarf helztu
framámanna flokksins og
flokksmanna almennt, sem
margir virðast hafa búizt við.
„Jú. Það kunna að verða
gerðar einhverjar breytingar,
þegar landsfundurinn kemur
saman,“ sagði einn af eldri
mönnum í flokknum fyrir
nokkru. „Hverjar veit ég ekki.
Við getum valið milli svo
margra mikilhæfra manna.
Það eru ekki bara Jóhann,
Gunnar og Geir. Við eigum
líka Ingólf og Magnús.“
„BÚROKRATINN“
MAGNÚS TORFI.
Sárrar gremju gætir hjá fé-
lögunum í Samtökum frjáls-
lyndra og vinstri manna vegna
skerfs þingmanns þeirra og
ritstjóra Bjarna Guðnasonar til
sjónvarpsþáttarins um „Breiðu
bökin“ ekki alls fyrir löngu.
Þótti hann ekki beysinn.
Finnst þeim, að Bjarni hafi af-
hjúpað sig illilega sem skrýt-
inn og lélegan stjórnmálamann.
Hefur Bjarni þegar fallið
nokkrar tröppur í mannvirð-
ingastiganum innan samtak-
anna fyrir bragðið og óvíst
að honum og formanni Mennta-
málaráðs, fr. Ingu Birnu Jóns-
dóttur, gangi jafnvel og áður
aðförin að hinni öldnu kempu,
Hannibal Valdimarssyni.
Huldumaður samtakanna á
ráðherrastól, Magnús Torfi Ól-
afsson, lætur jafnlítið á sér
kræla og áður. Embættismönn-
um fellur vel við þennan
prúða og hlédræga yfirboðara
en hinir sjálfskipuðu menning-
arvitar og sjálfumglöðu eðal-
steinar í kúltúrlífinu eru ó-
sparir á gagnrýni á aðgerðar-
leysi ráðherrans. Eitt músík-
séníið hefur látið hafa þetta
eftir sér: „Magnús Torfi er
alltaf að lesa einhver skjöl.
Hann sýnir ekkert frumkvæði
en hefur á skömmum tíma orð-
ið fyrirmyndar búrokrat.“
Iðnaður:
Stóraukinn innflutningur gólfteppa
Leggst íslenzk teppaframleiðsla niður, þegar EFTA-tollar lækka næst?
Innflutningur á gólfteppum
hefur farið mjög vaxandi síðan
ísland gerðist aðili a.ð EFTA.
Einn teppainnflytjandi tjáði
FV, að allar horfur væru á
að teppasalan hjá honum yk-
ist um 200% á þessu ári mið-
að við sölu í fyrra.
Tollur á innfluttum teppum
frá EFTA-löndunum er nú 65
% en lækkar niður í 56% árið
1974. Innlendir teppaframleið-
endur eru svartsýnir og sjá
fram á afar kröpp kjör, þegar
enn frekari tollalækkun kemur
til framkvæmda. Hefur heyrzt,
að Álafoss h.f. muni algjörlega
leggja sína teppaframleiðslu
niður og fleiri kunna að gera
slíkt hið sama.
TEPPI FYRIR RÚMAR
45 MILLJ. 1971.
Innflutningur á teppum er í
tveim tollskrárflokkum. Ann-
ars vegar eru hnýtt teppi og
hins vegar „önnur gólfteppi“.
í fyrra voru flutt inn „önnur
gólfteppi“ þar á meðal ofin
gólfteppi fyrir 45 millj. 265
þús. Árið 1970 nam innflutn-
ingur þeirra 18 millj. 356 þús.
og 1969 var hann 7 millj. 326
þús. Langmest er flutt inn af
gólfteppum frá Bretlandi eða
fyrir 30 millj. 905 þús í fyrra.
12
Danmörk var í öðru sæti með
4 millj. 62 þús. og írland í
þriðja með 2 millj. 308 þús.
Á tímabilinu janúar—júní í
ár voru flutt inn gólfteppi í
þessum tollskrárflokki fyrir
rúmar 25 milljónir.
Og hvað segja teppaframleið-
endur á íslandi um samkeppn-
ina við síaukinn innflutning?
VTÐBRÖGÐ
FRAMLEIÐENDA.
Hjá Vefaranum h.f. fékk
FV þær upplýsingar, að fram-
FV 8 1972