Frjáls verslun - 01.08.1972, Page 35
FV 8 1972
BLAÐAUKI I
Keflavík:
Mjög óveruleg áhrif varnarliðsins
á fjárhag Keflvíkinga
- Rætt við Steinþór Júlíusson, bæjarritara.
Miklar byggingaframkvæmd-
ir standa nú yfir í Keflavíkur-
kaupstað og er verið að reisa
nýtt íbúðarhúsahverfi ofan
gamla bæjarins að suðvestan.
Að sögn Steinþórs Júlíussonar,
bæjarritara, hafa íbúðarhúsa-
byggingar í Keflavík að miklu
leyti legið niðri í 5 ár en nú
er búið að úthluta 1 hinu nýja
hverfi lóðum undir 65 einbýl-
ishús, 45 íbúðum í raðhúsum
og 22 garðhúsum. Gert er ráð
fyrir, að lóðir á þessum slóð-
um nægi í næstu 2-3 ár.
Norður af þessu hverfi er
svo farið að skipuleggja ann-
að íbúðarhúsasvæði, sem tilbú-
ið verður til úthlutunar á
næsta ári. Er þar með séð
fram á farsæla þróun í bygg-
ingamálum Keflvíkinga, sem
hafa eins og áður greinir, stað-
ið nokkuð í stað um árabil
með þeim afleiðingum, að fólk
hefur ekki getað byggt eins
og það vildi og því sett sig
niður annars staðar, í ná-
grannasveitarfélögunum eins og
t. d. Njarðvíkunum.
Iðnaðarlóðir hafa verið skipu-
lagðar á svæði upp af efstu
byggð í Keflavík, Iðavöllum,
og er þar byrjað að byggja
og öllum lóðum hefur verið
úthlutað. Ekki er það áberandi
að fyrirtæki flytjist til Kefla-
víkur úr öðrum byggðarlögum
en þó má nefna að fyrirtækið
Kol og salt flutti starfsemi
sína til Keflavíkur og rekur
þar nú Saltsöluna sf., sem
annast dreifingu á salti víðs-
vegar. Saltsalan var sett á
laggirnar í Keflavík fjrrir
tveimur árum og hefur nú
reist þar nýtt geymsluhús við
höfnina. Háttar svo til, að
hægt er að setja saltið niður
um þak hússins og losa það
svo að neðan.
í Kefiavík greiða menn 178
kr. í gatnagerðargjöld fyrir
hvern rúmmetra í einbýlishúsi.
Fyrir raðhús, keðjuhús, tvíbýl-
ishús og minni fjölbýlishús er
gjaldið 111 kr. á hvern rúm-
metra. Gjaldið fyrir stærri fjöl-
býlishús er 45 kr. á rúmmetra.
Fyrir verzlunarhús, iðnaðarhús
Steinþór Júlíusson,
bœjarritari í Keflavík.
og annað atvinnuhúsnæði
greiðast 25—150 kr. á rúm-
metra.
Miklar umbætur eru fyrir-
sjáanlegar hjá fiskiðnaðarfyrir-
tækjunum í Keflavík á næst-
unni og ennfremur hjá Kefla-
víkurbæ til að standast þær
auknu kröfur, sem gerðar eru
til hreinlætis og hollustuhátta
hjá matvælaiðjum.
Keflavík hf. hefur þegar
gengið frá lóð sinni og niðri
á Vatnsnesinu, þar sem fisk-
iðjufyrirtækin hafa aðstöðu
sína flest eru miklar fram-
kvæmair framundan. Bærinn
er að bjóða út gatnagerð þar,
sem kosta á um þrjár milljónir
með vatnsleiðslum og holræs-
um. Ársgömul áætlun, sem fyr-
ir liggur, gerir ráð fyrir 80-90
milljón króna kostnaði við
þær endurbætur í þessu sam-
bandi, sem bæjarfélagið þarf
að standa undir.
NÝTT FLÓÐAKÆSI.
Af öðrum framkvæmdum,
sem nú standa yfir hjá Kefla-
víkurkaupstað má nefna nýtt
flóðaræsi úr nýja íbúðahverf-
inu, sem áður var nefnt, og
niður í sjó. Verið er að grafa
sex metra djúpan skurð fyrir
ræsið eftir Aðalgötu og á það
að flytja skolp og yfirborðs-
vatn í tvöföldu kerfi.
Vandamál hafa áður skap-
azt í Keflavík vegna flóða,
þar eð gamla holræsakerfið
gat ekki tekið við öllu yfir-
borðsvatni og þurfti bæjar-
sjóður þá að borga hátt í eina
milljón í tjónabætur vegna
vatnsskaða, sem urðu á húsum.
Þá er verið að bera olíumöl
á þrjá kílómetra af gatnakerfi
bæjarins. Er þá samtals búið
að olíubera og malbika 11-12
kílómetra eða um helming af
öllum götum í Keflavík. Alls
verja Keflvíkingar tæpum níu
milljónum til gatnagerðar á