Frjáls verslun - 01.08.1972, Blaðsíða 53
við í spám Éfnahagsstofnunar-
innar á sínum tíma.
Það kappsmál, sem lagt hef-
ur verið á að auka kaupmátt
launa um 20% á 1—2 árum
hjá þeim lægst launuðu, er
hártogun í þjóðfélagi, eins og
okkar, því vegna sveiflna verð-
ur að líta til lengri tíma og
taka meðaltöl. Þótt óskandi sé,
að unnt verði með verðstöðvun-
arlögunum að viðhalda núver-
andi kaupmætti að mestu leyti,
er undiraldan þung. Erfitt er
að sjá, hvernig slík kaupmátt-
araukning fær staðizt til lengd-
ar, en eins og fram hefur kom-
ið, er hún langt umfram vöxt
þjóðartekna, og þótt allir fái
ekki þessa aukningu, hafa
flestir fengið umtalsverða
hækkun, sem hlýtur að verða
á kostnað stöðunnar út á við.
Óljóst er, hvernig bregðast
á við þeirri umsömdu 6%
hækkun launa, sem koma á
til framkvæda 1. marz 1973
skv. úrskurði Kjaradóms.
Allir vita, að verðstöðvun
getur ekki haldið öllum verð-
hækkunum í skefjum. Yfir-
borganir munu þróazt og und-
anbrögðum verður beitt. Al-
þýðusambandsþing er 1 haust
og friður verður væntanlega
fram yfir þann tíma til að
bregðast við vandanum. Hætt
er við, að erfitt verði að koma
saman fjárlögum á hausti kom-
anda og reyna muni á sam-
starfsvilja stjórnmálaflokk-
anna, þegar velja á næsta leik
og ákveða hvaða mönnum eigi
að hafa uppskipti á og hverj-
um eigi að fórna.
Lög og réttur:
PRÓKÍRUIJMBOÐ
Heimiidir og takmörk
Yfirleitt geta menn því að-
eins gert bindandi samninga
fyrir hönd annars aðila við
þriðja mann, að þeir hafi til
þess sérstaka heimild, umboð.
Verzlunarstjórar, forstjórar
fyrirtækja og aðrir slíkir hafa
stöðu sinni samkvæmt visst
umboð, en það getur verið tak-
markað á ýmsan hátt. Það er
því ekki rétt í viðskiptum milli
fyrirtækja eða í slciptum ein-
staklinga við þau að gera aJ-
mennt samninga, án þess, að
viðkomandi hafi kynnt sér um-
boð það, sem fyrirsvarsmaður
fyrirtækis þess, er hann sem-
ur við, hefur á hendi. Fari
fyrirsvarsmaður fyrirtækisins
út fyrir umboð sitt, kann
samningur, sem við fyrirtækið
er gerður, að reynast ógildur.
Það er ekki hvað sízt á sviði
verzlunar, sem þetta á við. En
óvissa um þetta efni í við-
skiptalífinu gæti vissulega orð-
ið tilefni tortryggni, sem væri
til baga. Úr þessu er bætt með
sérstöku umboði, prókúru, sem
ákveðnar reglur gilda um.
Samkvæmt lögum um verzlun-
arskrár, firmu og prókúruum-
boð getur firmahafi (ka.upmað-
ur, verksmiðjueigandi o.s.frv.)
gefið einhverjum manni eða
mönnum umboð, sem berum
orðum er kallað prókúra eða
prókúruumboð.
í prókúruumboði felst það,
að prókúruhafi hefur vald til
þess fyrir hönd umbjóðanda
síns að annast allt það, er
snertir rekstur atvinnu hans
og að rita firmað, það er að
segja það nafn, sem viðkom-
andi fyrirtæki er rekið undir
og notað er við undirskrift
undir skjöl þess, Þó má pró-
kúruhafi hvorki selja né veð-
setja fasteignir umbjóðanda
síns, nema hann hafi til þess
sérstakt umboð.
Ekki má binda prókúruum-
boð við ákveðinn tíma eða
takmarka það á annan hátt en
hér hefur verið frá greint. Sé
það gert, er takmörkun ógild
gagnvart öðrum mönnum, sem
ekki vita um hana. Hins veg-
ar hafa slíkar takmarkanir
fullt gildi milli prókúruhafa og
umbjóðanda hans. Brjóti pró-
kúruhafi í bága við takmark-
anir, sem gerðar hafa verið á
umboði hans, t.d. með því að
selja vörur fyrir lægra verð
en umbjóðandi hans hefur fyr-
ir mælt, er samningurinn þó
samt gildur gagnvart kaup-
anda, en prókúruhafa er skylt
að bæta húsbónda sínum það
tjón, sem hann bíður við það,
að fyrirmælum hans var ekki
hlýtt.
PRÓKÚRUUMBOÐ ER
AFTURKALLANLEGT.
Prókúruhafi getur ekki af-
hent öðrum umboð sitt. Þegar
prókúruhafi ritar firmað, skal
hann rita firmanafnið og bæta
við það orðum eða stöfum, sem
tákna umboð hans, svo sem
„per prókúru“, „pr. pr.“ eða
annarri skammstöfun þessara
orða og skrifa auk þess nafn
sitt. Ef prókúra er sameigin-
leg, þ. e. á hendi fleiri
manna sameiginlega, þarf að
gæta þess, að svo margir skrifi
undir, sem ákveðið var þegar
prókúran vaf gefin, ella verð-
ur undirskriftin ekki bindandi.
Afturkalla má prókúruumboð
hvenær sem er, en það fellur
ekki niður af sjálfu sér við
dauða umbjóðanda.
Verzlun eða fyrirtæki getur
tilkynnt prókúruveitingu til
verzlunarskrár þeirrar sem
firmað er ritað í eða ætti að
ritast í, (hjá borgarfógeta, bæj-
arfógetum og sýslumönnum),
ef það væri tilkynnt. Skal pró-
kúruhafi þá rita firmað og
nafn sitt í verzlunarskrána, sé
það ekki gert í tilkynningunni.
Ef skrásett prókúra er tekin
aftur, þá er nauðsynlegt að til-
kynna afturköllunina til hlut-
aðeigandi verzlunarskrár. Með-
an það hefur ekki verið gert
eða tilkynningin um afturköll-
unina ekki auglýst, getur pró-
kúruhafi eftir sem áður samið,
svo að gilt sé gagnvart um-
bjóðanda sínum, við þá, sem
ekki vissu um afturköllunina.
TAKMÖRK UMBOÐSINS.
Alveg eins og það er nauð-
synlegt fyrir aðila, sem semur
við fyrirtæki, að gera sér grein
fyrir umboði þess, sem hann
semur við fyrir hönd fyrirtæk-
isins, er það jafn nauðsynlegt
fyrir þann mann, sem umboð-
ið hefur á hendi að gera sér
FV 8 1972
41