Frjáls verslun - 01.01.1973, Side 9
island
S jávarútvegur:
Spáð 4% mínnkun þorskafla
Islendinga 1973
— þrátt fyrir aukna sókn og aukna aflahtutdeild.
Mýir saltfiskmarkaðir að opnast? E-
Samkvæmt riti Framkvæmda-
stoínunar ríkisins, Þjóöarbú-
skapunnn, — framvindan 1972
og horfur 1973 — kemur fram,
að í ágústlok 1972 hafi orðið
ljóst, að talsverð minnkun
sjávarafla yrði á liðnu ári.
í ágústlok var þorskafli orð-
inn tæplega 19 þúsund tonnum
minni en á sama tíma í fyrra.
Sömuleiðis haiði átt sér stað
aflaminnkun á humar og
síld. Verðmæti sjávarvörufram-
leiðslu var hins vegar sem
næst óbreytt fyrstu átta mán-
uði ársins miðað við sama
tíma 1971. Hagstæð þróun
útliutningsverðs hefur þannig
haldið áfram frá hinu geysi-
háa verðlagi 1971. Aðeins
fiskimjöl og lýsi voru undan-
tekning frá þessari þróun.
Þrátt fyrir sama útflutnings-
verðmæti í fyrra og á árinu
1971 eiga sjávarútvegur og
fiskvinnsla nú í miklum erfið-
leikum. Miklar kostnaðar-
hækkanir og minnkandi afli
hafa valdið verulegri rýrnun
á afkomu þorskveiða og fryst-
ingar, og eins hafa breyt-
ingar á samsetningu aflans
haft í för með sér lakari nýt-
ingu í frystingu en áður. Af-
koma fiskiflotans er að sjálf-
sögðu næm fyrir aflasveiflum,
bæði að því er varðar tekjur
sjómanna og rekstrarafkomu
útgerðarinnar. Þegar ljóst varð,
hver staða útgerðarinnar var,
ákvað ríkisstjórnin að beita
sér fyrir lagasetningu, þar sem
leyft væri á seinustu þremur
mánuðum ársins að taka fé úr
Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðar-
ins til þess að greiða niður
fiskverðið frá október til 1.
janúar.
MINNKANDI
ÞORSKAFLI
Samkvæmt áðurgreindriheim-
ild telja fiskifræðingar Haf-
rannsóknastofnunarinnar, að
allar líkur séu til þess, að
heildarþorskafli við ísland
verði minni á þessu ári en
hann varð á árinu 1972, þrátt
fyrir vaxandi sókn. Ljóst er, að
um vaxandi sókn íslendinga
verður að ræða, þar eð tölu-
verð aukning verður á flotan-
um. Einnig er erfitt að spá
fyrir um, hvaða áhrif útfærsla
landhelginnar hefur á veiðar
við ísland og hvort íslending-
um takist að ná aukinni afla-
hlutdeild 1973. Sigfús A.
Schopka áætlar, að heildar-
þorskaflinn við íslandsstrend-
ur árið 1973 geti orðið 350.000
tonn, miðað við um 400.000
tonn árið 1972. Ef reikna má
með, að hlutdeild íslendinga
aukist upp í 65% af heildar-
aflanum, verður heildarþorsk-
afli Islendinga árið 1973 um
225.000 tonn. Heildaraflinn ár-
samkvæmt áætlunum er reikn-
að með, að aflinn minnki um
4%, þrátt fyrir aukna sókn og
aukna aflahlutdeild af miðun-
um. Rétt er þó að ítreka, að
hér er um þorskafla að ræða
eingöngu, svo að erfitt er að
ið 1972 er áætlaður um 240.000
tonn og kemur þá í ljós, að
dæma um útlitið út frá þess-
um tölum einum saman.
MARKAÐSHORFUR —
FRYSTUR FISKUR
Samkvæmt athugunum Fram-
kvæmdastofnunarinnar hefur
meðalhækkun á íslenzkum
sjávarafurðum verið um 7Y2-
8% á fyrstu átta mánuðum
1972. Ef horft er fram til árs-
ins 1973 er að sjálfsögðu erfitt
um að spá. Þó virðast engar
blikur vera á loíti um væntan-
legt verðfall á helztu fram-
leiðsluafurðum sjávarútvegs-
ins. Flestar afurðir frystiiðn-
FV 1 1973
9