Frjáls verslun - 01.01.1973, Blaðsíða 55
Hvert tímabil áætlunarinnar
gefur til kynna eftirfarandi
atriði:
a. Upphœð, sem verja skal til
auglýsinga
b. Skiptingu upphœðarinnar
milli kostnaðarliða
c. Stœrð auglýsinga, birtingar,
staðsetningar í fjölmiðlum
d. Tímabil, dagsetningar, end-
urskoðun áœtlunar.
Tillögur um auglýsingadreif-
ingu byggjast á ýtarlegum upp-
lýsingum um hegðun fjölmiðl-
anna, svo sem útvarps, sjón-
varps, dagblaða, vikublaða,
tímarita, notagildi dreifibréfa,
bæklinga, sýninga o. s. frv.
Allt verður þetta að vinnast
innan ramma fjármagnsáætl-
unarinnar, sérstöðu auglýsinga-
efnis og eðli vörunnar. Skrif-
legar auglýsingapantanir, við-
skiptasamningur við fjölmiðl-
ana, staðfesting á birtingartíma,
staðsetning auglýsinga, litur,
verð og annað. Auglýsingafyrir-
tækið hefur eftirlit með birt-
ingum og gerir athugasemdir
fyrir hönd viðskiptavinar síns,
ef staðfestri auglýsingapöntun
er ekki fylgt.
Auglýsingafyrirtæki semja
um hæsta, mögulegan afslátt
fyrir birtingar auglýsinga. All-
ur afsláttur gengur óskertur ti]
auglýsandans. Fyrir umsjón
birtinga auglýsingaefnis legg-
ur auglýsingafyrirtækið 15% á
nectóverð birtingareikninga, svo
og á nettóverð reikninga fyrir
aðkeypt efni. Á hinn bóginn
ábyrgist auglýsingafyrirtækið
greiðslur fyrir birtingar til fjöl-
miðlanna.
Verð á hinni eiginlegu gerð
auglýsingaefnis, — teiknistofu-
vinnu, kvikmyndun, ljósmynd-
un o. s. frv., reiknast samkvæmt
gjaldskrá félags teiknara, kvik-
inyndargerðarmanna, ljósmynd-
ara.... enda eru viðkomandi
starfsmenn fyrirtækjanna full-
gildir félagar starfsgreina- og
stéttarfélaga.
Samvinnan er
grunnur væntanlegs
árangurs.
Þörf fyrir sérmenntað fólk
í auglýsingagerð og auglýsinga-
þjónustu er brýnni en nokkru
sinni fyrr. Við slík störf „má
ekki gutla á neinum“, svo ég
noti hér uppáhaldsorðtak gam-
allar barnaskólakennslukonu
minnar, sem tók það ákaflega
nærri sér, ef einhver nemenda
hennar kom ólesinn í tíma.
Auglýsingafyrirtæki er staður
hugverksins. Staður sköpunar,
„brain-storming“, auglýsinga-
herferðarinnar. Staður þar sem
viðskiptavinurinn tekur þátt i
skipulagningu, val á hugmynd-
um, tillögum, ljósmyndum,
texta og öðru því, sem að lok-
um er bundið í myndamóti,
offsetfilmu, kvikmynd eða ljós-
mynd, og myndar eina heild:
Auglýsingar í kynningar- og
söluherferð. Þess vegna er sam-
vinna í auglýsingagerð grunnur
væntanlegs árangurs.
Starfsmenn Argusar rœða mólin við Davíð Scheving Thorsteins-
son framkvœmdastjóra Smjörlíkis h.f.
Ólafur útskýrir tillögur fyrir viðskiptavini.
FV 1 1973
55