Frjáls verslun - 01.01.1973, Blaðsíða 61
Gísli B. Björnsson, teiknari FÍT,
framkvæmdastjóri Auglýsingastofunnar hf.
Heildarsvipur fyrirtækis
Með heildarsvip er hér átt við frágang, gerð og útlit alls
þess, sem snýr að starfsfólki, umhverfi, viðskiptavinum og
almenningi.
Helztu þættir eru:
a) Merki og skrift, þ. e. viss Ieturgerð til víðtækra nota
hjá fyrirtækinu.
b) Útlit pappíra fyrirtækis.
c) Útlit á skrifstofum og öðrum byggingum, snyrti-
mennska og málun húsa, skilti og merkingar utan og
innan húss.
d) Bílar, verkfæri og fleiri merktir hlutir.
e) Auglýsingar í blöðum, tímaritum, sjónvarpi og annars
staðar.
f) önnur prentuð gögn, bæklingar, plaköt og fleira því
skylt.
g) Ytri umbúðir og neytendaumbúðir.
h) Gluggaútstillingar. sýningarbásar o. fl.
i) Annað, svo sem búningar starfsfólks og margt fleira.
Á alla þessa þætti þarf að irtækis. Allt of mörg dæmi eru
líta sem liði í heildarsvip fyr- um stefnuleysi og handahóf í
þessum efnum. Mörg dæmi eru
um gloppótt mat, einstakir
þættir í góðu lagi, en aðrir
mjög slæmir. Sem dæmi má
nefna:
• Útlit húss (arkitektúr), gott
eða sæmilegt, en léleg
skilti, mismunandi gerða og
stærða, eyðileggja útlit
hússins.
• Nýtízku skrifstofuaðstaða
og húsgögn, en pappírar,
bréfsefni, umslög, reikning-
ar o. fl. í algjöru hirðuleysi,
ósamstæðir og sviplausir.
® Auglýsingar i góðu lagi, en
útstillingagluggar vanhirtir
og sóðalegir, og ekki hirt
um að skipta um útstillingu
í gluggum mánuðum saman,
eða að gluggarnir eru jafn-
vel ekki notaðir.
Þetta eru dæmi um, að það,
sem ber fyrir augu þúsunda
er vanrækt og látið mæta af-
gangi, en eytt í þætti, sem
færri sjá og njóta. Á þessum
tímum aðhalds og skipulagn-
ingar í stjórnun fyrirtækja
gæti maður vænzt þess, að
þessum þáttum væri meiri
gaumur gefinn.
Allt, sem ræður útliti fyr-
irtækis, er beint stjórnun-
aratriði forystumanns þess, og
að mínu mati mjög veigamikill
þáttur, svo þýðingarmikill, að
tilviljun og stjórnleysi ætti
ekki að ráða. Stjórn fyrirtækis,
forstjóri eða fulltrúi hans, eiga
að fjalla skipulega um þennan
þátt og leita til þeirra aðila, er
reynslu og menntun hafa.
Hvað verður fyrst til athug-
unar? Að þessu sinni ætla ég
aðallega að fjalla um tvo
fyrstu þættina, þ. e. merki og
skrift og pappíra fyrirtækis.
FV 1 1973
61