Frjáls verslun - 01.01.1973, Page 35
CUDO - gler hf:
Eftirspurn og sala stóraukizt
Fyrir ári síðan ákvað stjórn
CUDO—GLERS h.f. að skipu-
leggja í fyrsta sinn vandlega
auglýsingastarfsemi fyrirtækis-
ins og bað auglýsingastofuna
ARGUS að útbúa auglýsinga-
áætlun. „Okkur fannst áætlun-
in nokkuð dýr þegar hún kom“,
sagði Hilmar Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóri, „en þeir hjá
Argus sýndu okkur með rökum,
að það yrði miklu óhagstæðara
að draga úr planinu. Frá þeim
tíma hefur auglýsingastofan séð
um alla auglýsingastarfsemina
með slíkum ágætum, að eftir-
spurn og sala hefur stóraukizt,
en það eina sem háir okkur nú,
er að við getum ekki afgreitt
nógu ört.“ Hilmar bætti við,
að þetta létti einnig á starfs-
kröftum fyrirtækisins, að láta
Argus sjá um auglýsingarnar.
Stór liður í auglýsingaherferð-
inni er að kynna nafn fyrir-
tækisins og hefur það tekizt vel.
Þar að auki breytti Argus merki
CUDO—GLERS, með þeim ár-
angri, sagði Hilmar, að fólk
kannaðist nú við vörumerki fyr-
irtækisins miklu betur en áð-
ur. Að lokum sagði hann, að
þessari starfsemi yrði haldið á-
fram á komandi árum og fór
miklum viðurkenningarorðum
um auglýsingastofuna.
Rósir og frostrósir
Rósin i glugganum, augasteinn konunnar, lifir
aðeins I yl stofunnar - úti er islenzk veðrátta -
hún á lif sitt undir cinni rúöu.
CUDO-GLER
veitir tvöfalt öryggi,(ytri og innri þötting)
þolir snöggar hitasveiflur, (yfir 39* á klst.)
framleitt meö erlendri tœkrfi, þróaö viö Islenzka
staöhætti I meira on áratug ...
. . . til þess aö öllum megi vera hlýtt inni, blómin I
glugganum lifi, — noma auövitaö frostrósirnar.
| [ §] CUDOGLER HF
A M SKÚLAGÖTU 26.6IMI 20650
Loftleiðir hf:
Mest í dagblöðum á þessu ári
Við höfum auglýst einna mest
í dagblöðunum á þessu ári, sagði
Ásbjörn Magnússon, fulltrúi í
söludeild félagsins, en aftur á
móti lítið í útvarpi og sjón-
varpi.
Þá auglýsum við nokkuð í
landsmálablöðum og stærri
tímaritum, eins og t.d. Frjálsri
Verzlun. Við dreifum ætíð
stórum upplögum af áætlunum
og öðrum auglýsingaritum.
Ekki má gleyma því, að það
er orðin hefð að gefa skóla-
börnum stundaskrá á haustin
með merki Loftleiða.
»vorió góóa
grænt og hlýtt...«<
er þegar komiö
suöur íálfu.
LOFTLEIDIR Vorlækkun Loftleióa
ICELANDIC gildir frá l.apríl -15. maí
Félagið aðstoðar handknatt-
leiksliðin Fram, Víking, ÍR og
Ármann, með því að merkja
búninga þeirra og greiða fyrir
það.
Við sjáum sjálfir um dreif-
ingu auglýsinga félagsins, en
Torfi Jónsson, auglýsingateikn-
ari, útbýr þær fyrir Loftleiðir
Það má ætla að við auglýsum
fyrir 2—3 millj.kr. á ári, fyr-
ir utan mjög víðtæka kynn-
ingarstarfsemi.
Slippfélagið í Reykjavík hf:
Mikið lagt upp úr umbúðamerkingum
Á undanförnum árum hefur
fyrirtækið aukið mjög auglýs-
ingastarfsemina og leggur aðal-
áherzluna á að auglýsa máln-
ingarframleiðsluna, sem er
HEMPELS skipamálning og
VITRETEX húsamálning. í
sumar var mest auglýst á árinu,
en nauðsynlegt er að auka aug-
lýsingar á öðrum árstímum, til
þess að jafna afkastagetu ináln-
ingarverksmiðjunnar.
Þá er mikið lagt upp úr um-
búðamerkingum. Slippurinn
fylgir merkingu dönsku Hem-
pels-verksmiðjanna, en fyrir-
tækið hefur séð um nýjar og
athyglisverðar merkingar á
VITRETEX-vörum og öðrum
smærri málningarvörum, sem
það framleiðir. Auglýsingastofa
Kristínar sér um allar aug-
lýsingar, umbúðir og auglýs-
ingadreifingu fyrir Slippfélag-
ið.
FV 1 1973
35