Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1973, Page 68

Frjáls verslun - 01.01.1973, Page 68
Sigurður Magnússon, fyrrv. formaður Kaupmannasamtakanna: Skipulagsmál verzlunarsamtakanna Oftlega hefur verið rætt um skipulagsmál verzlunarsamtak- anna undanfarin ár. Nauðsyn þess að taka þau til endur- skoðunar og finna þeim það form, sem geti skilað árangri og áhrifum í hlutfalli við afl- ið sem býr í hinum frjálsa atvinnurekstri, ef honum er stefnt nokkurn veginn í sam- eiginlegan farveg, í stað þess að hann kvíslist í margar átt- ir, rétt eins og óreglulegur ár- farvegur í rigningartíð eða vorleysingum. ÝTARIÆG GREINARGERÐ Tilefni þess að ég sendi Frjálsri Verzlun hugleiðingar í þessum efnum er það, að fyrir nokkru gafst mér tæki- færi á að lesa „Álitsgerð nefndar“. sem skipuð var til að semja skýrslu á grundvelli framkominna hugmynda um þessi mál, en boðað var til sérstakrar ráðstefnu vorið 1971 a Hornafirði til að ræðá ýtarlega þetta víðfeðma mál- efni. Og með því að ég um árabil átti all mikinn þátt í að þoka þessum málum áleið- is, svo sem síðar verður að vikið, fannst mér til hlíða að leggja nokkur orð í belg, enda mun ætlazt til þess að sem flestir geri sér far um að fylgjast með framvindu þess- ara mála og leggja á ráðin, hvernig bezt muni staðið að væntanlegri endurskipulagn- ingu. Álitsgerðin, sem samin er af framkvæmdastjórum K.Í., F.Í.I., F.Í.S. og V.Í., auk Sveins Björnssonar, verkfræð- ings, er mjög greinargóð skýrsla um hvernig félagsleg- um málefnum umræddra sam- taka er háttað í dag. Jafn- framt er þar að nokkru greint frá forsögu málsins og foi sendum þess, að alvarlega er farið að hugsa fyrir endur- skoðun og breytingum. Segir m.a. í kaflanum um mark- mið endurskipulagningarinnar, „Að tengsl samtaka við- skiptalífsins hafi verið losara- leg innbyrðis og máttur þeirra Sigurður: „Málefni verzlunar- innar hafa verið notuð sein eins konar skiptimynt í hrossa- kaupum ýmissa stjórnmála- spekúlanta." og áhrif jafnvel farið dvín- andi þegar samanburður sé gerður við aðrar félagshreyf- ingar í landinu. Hins vegar verði að freista þess að sam- hæfa það félagslega afl sem samtökin búi yfir.“ Hér eru vissulega orð í tíma töluð, sem verður að gefa fyllsta gaum í þjóðfélagi vaxandi stétta- áhrifa. í heild sinni ber álitsgerðin þess vitni, að höfundar henn- ar hafa gert sér far um að gera málefnið sem aðgengileg- ast fyrir hina almennu félags- menn, enda telja þeir það megin tilganginn með starfi sínu að vekja áhuga og skiln- ing almennt á vettvangi við- skiptalífsins á nauðsyn sterkr- ar sameiginlegrar félagsupp- byggingar eftir leiðum, sem þeir útfæra nánar. Höfundarn- ir taka þó skýrt fram, að frá upphafi hafi þeir litið svo á, að þeir hafi unnið þetta verk- efni sem óháðir einstaklingar og að þeir hefðu ekki gengið svo langt að setja fram t.d uppkast að lögum fyrir sam- tökin í endurskipulögðu formi. Slíkt væri naumast tímabært fyrr en málið hefði verið kynnt betur hlutaðeigandi að- ilum. Þessi afstaða nefndarinnar verður að teljast mjög eðli- leg, en rétt er þó að menn geri sér grein fyrir því, að einmitt með setningu laga og reglna fyrir hið væntanlega skipulag má búast við að leysa þurfi hinar viðkvæm- ustu og vandmeðförnustu hlið- ar málsins, a.m.k. ef marka má af umræðum og undirtekt- um á liðnum árum, þegar skipulagsmálin hafa verið til umræðu. EINU SINNI VAR Sú var tíð, að samtök smá- kaupmanna voru aðilar að Verzlunarráði íslands. Á árun- um eftir síðari heimsstyrjöld- ina, þegar skömmtun og út- hlutun leyfa var í algleym- ingi, töldu fyrirsvarsmenn Kaupmannasamtakanna hins vegar, að málefnum sínum væri betur borgið með því að vera ekki í ráðinu og happa- sælla mundi fyrir samtökin og félagsmenn þeirra að draga sig út úr Verzlunarráðinu og vinna að málefnum smásölu- verzlunarinnar á eigin vegum. 68 FV 1 1973

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.