Frjáls verslun - 01.02.1973, Blaðsíða 71
Félagsmál verzlunarinnar:
Skipulagsbreytingar hjá
*
Verzlunarráði Islands
Búast má við allverulegri
breytingu á starfsemi V.Í., nú á
næstunni, og er margt sem veld-
ur því. í fyrsta lagi má nefna,
að síðastliðin ár hafa staðið yfir
miklar umræður um starfsemi
ráðsins og skipulag samtaka at-
vinnulífsins, þar sem fram kom
hugmynd um að V.Í., F.Í.S. og
K.í. sameinuðust í einum heild-
arsamtökum, Viðskipta- og iðn-
aðarráði íslands.
Þessar umræður leiddu svo til
þess að lögum ráðsins var breytt
á framhaldsaðalfundi þess þann
8. febr. s.l. í öðru lagi má nefna,
að nýr framkvæmdastjóri hóf
störf við ráðið á þessu ári, og er
búizt við að hann hyggi á ýms-
ar breytingar á störfum ráðsins.
MARKMIÐ
LAG ABREYTING A
Á aðalfundi V.í. 1972, var
kosin nefnd, sem skyldi undir-
búa tillögur um breytingar á
lögum ráðsins. Þegar nefndin
hóf störf kom fljótlega í ljós,
að ekki var framkvæmanlegt,
að svo stöddu, að framfylgja
þeim hugmyndum, sem áður
höfðu komið fram um Við-
skipta- og iðnaðarráð íslands.
Málið tók því þá stefnu í með-
förum nefndarinnar og stjórn-
ar r'áðsins, að áhrif hins al-
menna félagsmanns eru stórauk-
in, þannig að stjórn V.í. verður
hér eftir mun óháðari hinum
samtökunum en verið hefur, en
við hlið stjórnarinnar er mynd-
að Formannaráð, sem fær það
hlutverk, að tengja saman fé-
lögin. Starfsemi Formannaráðs-
ins verður óháð stjórninni, og
mun það móta starfsemi sína
og áhrifasvið eftir eigin hug-
myndum. Stjórn V.í. hefur nú
alllengi verið með þeim hætti
að félögin, sem aðild eiga að
ráðinu, tilnefna um helming
stjórnarinnar, en almennir fé-
lagar kjósa hinn helming stjórn-
arinnar úr sínum hópi. Þetta
fyrirkomulag hefur, a.m.k. að
sumra dómi, leitt til þess, að
raunveruleg stjórn ráðsins hef-
ur verið í höndum annarra fé-
lagssamtaka, sem ekkert greiða
til starfseminnar, en hinir al-
Áhrif hins almenna
félagsmanns eru
stóraukin þannig
að stjórn V.í. verður
hér eftir mun óháðari
hinum samtökum
verzlunarinnar en verið
hefur.
mennu félagsmenn, sem kosta
starfsemina, fá litlu ráðið, eða
finnst það og verða því áhuga-
lausir. Höfuðhlutverk verzlun-
arráðs verður ávallt að vinna
við hlið alþingis og ríkisstjórn-
ar, að löggjafarstarfi og al-
mennri stjórnsýslu.
Megin styrkur ráðsins ligg-
ur í því að innan þess eru menn
með reynslu og þekkingu á at-
vinnulífinu, sem ekki er að
finna hjá opinberum stjórn-
mála- og embættismönnum.
Þess vegna geta verzlunarráð
haft margt nýtt fram að færa
og komið fram sem fulltrúi at-
vinnulífsins. Ef starfsáhugi fé-
lagsmanna ráðsins minnkar, er
tilvera þess í hættu og Verzl-
unarráð er engum til gagns ef
félagsmenn vilja ekki leggja á
sig ólaunaða vinnu í þágu þess.
Megin tilgangur lagabreyting-
anna er að endurvekja áhuga
hins almenna félagsmanns, sem
ýmsum hefur þótt orðinn of
lítill.
NÝ STJÓRNSKIPUN V. í.
Félagsmenn fá nú að kjósa
18 manna stjórn V.í. með bein-
um kosningum, þar sem hver
félagsmaður fær 1 atkvæði fyr-
ir hverjar 1.000 kr., sem hann
greiðir í árgjöld til ráðsins.
Aðalfundur verðúr haldinn
annað hvert ár og fer þá fram
stjórnarkjör til næstu tveggja
ára, en það árið sem aðalfund-
ur er ekki haldinn verður hald-
ið Viðskiptaþing, þar sem tekin
verða til umræðna þau mál, sem
helzt eru á baugi hverju sinni.
Stjórn ráðsins skipa 18 full-
trúar, sem kosnir eru af félags-
mönnum en auk þess eiga for-
menn F.Í.I., F.Í.S. og K.I. sæti
í stjórn ráðsins. Stjórnin kýs
sér sjálf formann og 5 manna
framkvæmdastjórn beinni kosn-
ingu.
Formannaráð kemur við hlið
stjórnarinnar með sjálfstæðan
starfsvettvang, þar sem for-
menn allra þeirra félaga, sem
aðild eiga að V.Í., geta komið
saman og myndað sameigin-
lega forystu fyrir atvinnulífið
í landinu. Framkvæmdastjórar
þeirra sömu félaga munu svo
halda fundi sín á milli og vinna
sameiginlega að þeim málum
sem Formannaráðið felur þeim.
Varnaglar í lögum ráðsins
eru tveir, og báðir gegn því að
fámennur og fjársterkur hóp-
ur manna geti náð of miklum
völdum innan ráðsins, sem er
FV 2 1973
67