Frjáls verslun - 01.06.1973, Qupperneq 95
— Heyrðu, hvað starfar þú
annars um þessar mundir?
— Ég er dvergur í sirkus.
•— Nú, en þú ert að minnsta
kosti i,60, maður.
— Já. ég er nefnilega í fríi
í dag.
— ★ —-
Knattspyrnumaðurinn nafn-
togaði lézt og kom í himnaríki.
Var það mákill fagnaðarfund-
ur. Allir strákarnir, sem spil-
uðu með honum voru mættir
og klöppuðu honum á axlirnar,
þar sem ofboðlitlir vængstúfar
voru rétt að birtast.
— Jæja, strákar, sagði knatt-
spyrnumaðurinn frægi. Af-
hverju komum vóð ekki upp
old-boys-liði og skorum á þá
þarna í neðra.
— Það þýðir ekkert, sagði
Sánkti-Pétur og hristi hausinn.
Þeir vinna okkur alltaf.
— Nú, en við höfum alla
beztu leikmennina.
— Já, en fjandinn hefur alla
dómarana.
— ★ —
— Læknarnir halda því
fram, að alkóhól sé lífshættu-
legt.
—Það finnst mér þó skrít-
ið. Ég veit ekki betur en að
það séu miklu fleiri gamlir
alkóhólistar en gamlir læknar.
— ★ —
— ★ —
Hún var sæt og einstaklega
aðlaðandi að sjá. Hún var ein.
Flestir karlmennirnir á barn-
um voru frá sér numdir af
fegurð hennar en lögðu ekki
í að taka hana tali. Nema Siggi
Hann kláraði úr glasinu í
hvelli, lagaði til bindið og tók
sér sæti á stól við hliðina á
henni og brosti myndarlega
til hennar.
— Veiztu svolítið, sagði hann
blítt. Mér finnst mjög miður
að sjá stúlku eins og þig eyði-
leggja mannorðið með því að
hanga svona á barnum. Nú
skulurn við koma eitthvað ann-
að þar sem andrúmsloftið er
hagstæðara og huggulegra —
eins og til dæmis heim í íbúð-
ina mína.
— ★ —
— Svo virðist, sem það
gangi erfiðlega að fá skýr
svör frá yður, ráðherra, við
þessum spurningum okkar,
sagði sjónvarpsfréttamaðurinn
í viðtalsþættinum. Kannská
þér vilduð nú reyna að svara
almennilega í eitt skipti. Segið
mér: Hver er uppáhaldslitur-
inn yðar?
— Köflótt, svaraði ráðherr-
ann.
— ★ —
FV 6 1973
95