Frjáls verslun - 01.04.1974, Blaðsíða 57
kalt borð eða heitan mat, ljúffenga danska
rétti í hádeginu. Veitingahúsin selja einnig
ýmsa kjöt- og fiskrétti, danska rétti og hið
fræga danska smurða brauð og bjór, sem Dan-
mörk er þekkt fyrir.
Coq d’Or á H. C. Andersen götu, Viking á
Báðhústorginu og Wiwex á Vesterbrogade eru
meðal vinsælla veitingastaða í Kaupmannahöfn.
Þjórfé
Eins og í mörgum löndum, tíðkast að gefa
þjórfé í Danmörku. Venjulega er burðarmönn-
um gefnar 2 danskar krónur fyrir hverja ferða-
tösku, sem þeir bera. Á veitingahúsum og 'hót-
elum er þjónustugjald oft innifalið í reikningn-
um. Leigubílstjórum er minnst gefið 10-15%
af ökugjaldi. Oftast er þjónustugjald fyrir hár-
greiðslu innifalið í reikningnum. Dyravörðum,
sem veitt hafa sérstaka þjónustu er yfirleitt
ekki gefið meira en 2 danskar krónur.
Skemmtanir
Kaupmannahöfn, sem er yfir 800 ára göm-
ul yngist með hverjum deginum, segir ein-
hversstaðar. Fjölmargt er hægt að gera sér til
skemmtunar meðan dvalizt er í viðskiptaerind-
um í Kaupmannahöfn. Flestir láta hið fræga
Tívolí ekki fram hjá sér fara, þegar borgin er
sótt heim.
Borgin býður einnig upp á leiksýningar,
kvikmyndasýningar, dansleiki og næturklúbba,
sem eru yfir 30 að tölu í borginni.
Viðskipti
Allflestar verzlanir í Kaupmannahöfn hafa
opið frá kl. 9-18.00 frá mánudegi til fimmtu-
dags. Á föstudögum eru flestar verzlanir opnar
til kl. 19 eða 20. Á laugardögum er verzlunum
lokað 'M. 13.00.
Bankar hafa opið frá kl. 9.30-15.00. A
fimmtudögum og föstudögum er einnig opið
frá kl. 16.00-18.00. Lokað á laugardögum.
Að komast leiðar sinnar
Auðvelt er að komast frá flugvellinum, ann-
að hvort með áætlunarvögnum, leigubifreiðum
eða fótgangandi. Strætisvagnar eru í ferðum
um alla borgina frá kl. 5 að morgni til kl.
0.30 eftir miðnætti. Eftir þann tíma aka
nokkrir vagnar um borgina á 20 mínútna fresti
til kl. 2.30 eftir miðnætti. Einnig ganga neðan-
jarðarlestir um borgina allan daginn. f»á er
auðvelt að fá leigubifreiðar.
Stokkhólmur
Grundvöllur var lagður að höfuðborg hins
gamla konungsríkis Svíþjóðar á 13. öld. I
gamla borgarhverfinu eru kyrrlátar steinlagðar
götur og gamlar byggingar, sem hafa sérstak-
an svip. Allt umhverfi borgarinnar er mjög
fallegt.
Hótel
Hótelin í Stokkhólmi eru orðlögð fyrir þrifn-
að og frábæra þjónustu. Charlton hótelið, 57A
Kungsgatan, Grand Hotel Royal, 8S. Blasie*-
holmshamnen og Hotel Reisen 12-13 Skepps-
bron eru meðal góðra fyrsta flokks hótela í
Stokkhólmi. Þeir kaupsýslumenn, sem sækja
Stokkhólm heim að sumarlagi, og kjósa að
dveljast á ódýrum hótelum geta m. a. gist
Hotel Jerum, 21 Studentbaeken.
Veitingahús
íslenzkir kaupsýslumenn kunna að meta
sænskan mat, sem bæði er á boðstólum á hótel-
um og veitingahúsum. Á allflestum veitinga-
húsunum er seldur bjór og áfengir drykkir.
Á síðustu árum hafa risið í Stokkhólmi veit-
ingahús, sem hafa á boðstólum kínverska,
ítalska, þýzka, ungverska og austurríska rétti.
Aurora Cellar veitingahúsið, 11 Munkbron,
Fem smá hus, 10 Nygránd og Nya Bacchi, 5
Járntogsgatan eru meðal fjölda ágætra veit-
ingahúsa í Stokkhólmi.
Þjórfé
Þjónustugjald er innifalið í reikningnum á
hótelum og veitingastöðum. Þó er venja að
gefa þjónum og þjónustustúlkum litla upphæð
í þjórfé. Ekki er ástæða að gefa burðarmönn-
um og öðrum þjórfé, en leigubílstjórar fá
venjulega 10-15% af ökugjaldi í þjórfé.
Skemmtanir
Á Norðurlöndum eru dagarnir langir að sum-
arlagi og dimmir því seint. Þetta gefur tæki-
færi til útiskemmtana, sem tíðkaðar eru í
Stokkhólmi á Skansen og Kungstrádgárden. I
Kungstrádgárden eru kabarett sýningar öll
sunnudagskvöld að sumarlagi. LeiMiús eru op-
in frá ágústlokum og fram í miðjan júní.
Kungliga Dramatiska Teatern sýnir nútímaleg
og klassísk verk og Kungliga Teatern gengst
fyrir söngleikjum og balletsýningum. Cullberg
balletflokkurinn heldur einnig balletsýningar,
sem njóta mikilla vinsælda. Þá eru fjölmargir
dansstaðir og kvikmyndahús í borginni. I
óperuklúbbunum, í Ambassadeur og á Grand
Royal Hotel eru m. a. næturklúbbar.
Viðskipti
Verzlanir eru venjulega opnar frá kl. 9 eða
9.30 á morgnana til kl. 18. Á laugardögum er
oftast opið til kl. 13.00 eða 14.00 í sumum
verzlunum. Að vetrarlagi eru margar stórverzl-
anir opnar til kl. 20.00 á mánudögum og föstu-
dögum og til kl. 16.00 á laugardögum. í Stokk-
hólmi er fjöldi stórverzlana.
FV 4 1974
57