Frjáls verslun - 01.09.1974, Blaðsíða 7
Það mun alltaf vera
að koma betur og betur
á daginn, að samningar
vinstri stjórnarinnar við
Breta um lausn land-
helgismálsins hafi verið
Bretum mjög í hag.
Ljóst er, að brezk fiski-
skip munu samkvæmt
samkom'ulagi við ís-
lenzku ríkisstjórnina frá
í fyrra geta veitt meira
hér við land en að þeim
kvótamörkum, sem Bret-
ar gerðu sjálfir tillögu
um í samningaviðræðum
en íslcnzk stjórnvöld
höfnuðu þá.
Ólafur Jóhannesson,
viðskiptaráðherra, fór til
Moskvu fyrir skömmu að
ræða olíumálin og skuld-
irnar við Rússa á fund-
um með sovézkum ráða-
mönnum. Hraðaði ráð-
herrann för sinni sem
mest hann mátti, því að
í ljós hafði komið, að
Hannes Jónsson, nýskip-
aður sendiherra í
Moskvu, var farinn að
ræða uppgjör skuldanna
í Sovét við æðstu menn
eystra án þess að hafa
fengið neitt umboð til
þess héðan að heiman.
Vanalega staldra nýskip-
aðir erlendir sendiherrar
við í 10 mínútur eða svo,
þegar þeir afhenda Pod-
gorny forseta trúnaðar-
bréf sín, en Hannes sat í
70 mínútur og sendi
langa skýrslu heim um
það, hvernig hann hyggðr-
ist gera upp við Pod-
gorny!
Frysting loðnu hefur
verið vaxandi þáttur í
freðfiskiðnaðinum á und-
angengnum nokkrum
loðnuvertíðum. Hafa Jap-
anir sem k'unnugt er
keypt þessar afurðir fyr-
ir upphæðir, er vaxið
hafa mikið milli ára und-
anfarið. Alvarlegir erf-
iðleikar ku hafa gert
vart við sig í samkomu-
lagsumleitunum við Jap-
ani um áframlialdandi
kaup vegna þess að þeir
vilja meira hrognamagn
í loðnunni en verið hef-
ur til að dreifa eftir
vinnumeðferðina hér-
lendis. Hafa hrognin
hrists úr loðnunni í
flokkunarvélum. Til þess
að verða við óskum
Japana myndi þ’urfa ein-
staklingsbundna með-
höndlun og til þess er
vinnukraftur alltof dýr
hérlendis.
Allar horfur eru tald-
ar á, að skipt verði um
útvarpsráð í vetur en til
þess þarf að vísu laga-
breytingu. Framsóknar-
menn hafa fengið nóg af
yfirgangþ Njarðar Njarð-
vík og Ólafs Ragnars i
ráðinu en ekki liggur
ljóst fyrir, hvern
menntamálaráðherra
Framsóknar myndi skipa
til að gegna formennsku
í nýju ráði.
Örlygur Hálfdánarson,
bókaútgefandi, er fyrir-
liði þeirra- Framsóknar-
manna í ráðinu nú.
Margir spá því þó, að
Indriði G. Þorsteinsson
yrði fyrir valinu. Miklar
sögusagnir hafa gengið
um að Andrés Björnsson,
útvarpsstjóri, ætli senn
að hætta störfum. Það er
jafnframt látið fylgja, að
Ólafur Jóhannesson hafi
heitið Magnúsi Torfa Ól-
afssyni því að skipa
hann útvarpsstjóra, ef
Andrés hætti. Á móti
hefur dr. Gunnar G.
Sohram svo einnig ver-
ið nefndur líklegur í
embættið.
Sennilegt er talið, að
Magnús Jónsson, fyrrver-
andi fjármálaráðherra,
gefi ekki kost á sér til
endurkjörs sem varafor-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins á landsfundi hans
næsta vor. Þegar hafa
skapazt nokkrar umræð-
ur um nýjan varafor-
mann. Fjórir alþingis-
menn flokksins eru
helzt taldir koma til
greina, þeir Matthías Á
Mathiesen, Matthías
Bjarnason, Ingólfur Jóns-
son og Albert Guð-
mundsson. Frá sjónar-
miði landsbyggðarmanna
koma þeir Matthías
Bjarnason og Ingólfur
Jónsson helzt til álita en
öðrum finnst, að ekki
verði horft framhjá
glæsilegum kosningasigri
Matthíasar Á. Mathiesen
í Reykjaneskjördæmi.
Nánir samstarfsmenn
Gunnars Thoroddsen
segja hann ekki hafa hug
á að taka við varafor-
mannsembættinu, enda
myndi það brjóta í bága
við sjónarmið hans um
dreifingu valds í flokks-
forystunni, sem lágu því
til grundvallar, að hann
tókst á hendur embætti
formanns þingflokks
Sjálfstæðisflokksins á
sínum tíma.
Megn óánægja ríkir
hjá vissum hópum Fram-
sóknarmanna vegna sam-
komulagsins við Banda-
ríkjamenn út af varnar-
málunum. Ekki er það
þó fyrst og fremst afstað-
an með eða á móti vörn-
um, sem þessu veldur,
heldur hitt, að þeim
finnst Einar Ágústsson
hafa verið í fáránlegri
aðstöðu í málinu.
FV 9 1974
7