Frjáls verslun - 01.09.1974, Síða 15
Samningar og lán
Eftir Júrí Kanin, hagfræftiiegan ráðunaut APINI
Samstarf Sovétríkjanna og nokkurra kapítalískra, landa,
(Frakklands, Þýzka sambandslýðveldisins, Austurríkis, Finn-
lands, Japan, Bandaríkjanna, Englands og ftalíu), verður æ um-
fangsmeira. Það byggist á langtímasamningum og víðtækum
sáttmálum milli einstakra sovézkra samtaka. og erlendra fyrir-
tækja og nær til mála á sviði verzlunar og efnahags, vísinda
og tækni, lána og skulda.
Með slíkum samningum er
kleift að framkvæma víðtækar
og fjárfrekar langtímaáætlan-
ir. Eins og kunnugt er, vinna
Sovétríkin að framkvæmd stór-
áætlana í Síberíu, norðurhér-
uðum landsins og á Austur-
ströndinni. Þar fer fram
vinnsla hinna ríku auðlinda
landsins, bygging voldugra
iðnaðarsamsteypa, vegagerð,
lagning gas- og olíuleiðslna.
Þar eru byggðar brýr, nýjar
borgir og þorp. Sem dæmi um
framkvæmdirnar má nefna, að
á þremur undanförnum árum
hafa verið byggð og tekin í
notkun 1200 stór framleiðslu-
fyrirtæki. Á fimm árum (1971-
1975) nemur fjárveitingin til
framkvæmdanna þar 501 mill-
jarðii rúblna.
VESTRÆNIR KAUPENDUR.
Nú á ætlun þessi að verða
enn víðtækari vegna áhuga
vestrænna viðskiptavina lands-
ins á að kaupa framleiðsluna.
Þess vegna er þörf á miklu
viðibótarfjármagni. Þá koma
til framkvæmda langtímalán,
eins og tíðkast í venjulegum
milliríkjaviðskiptum. Innflutt
fjármagn erlendra aðila í Sov-
étríkjunum leiðir ekki til þess,
að upp rísi fyrirtæki í einka-
eign á sovézkri grund.
Stjórnin í Kreml hefur lagt sívaxandi áherzlu á samninga um efnahags- og viðskiptamál við ríki
V.-Evrópu og Japan.
FV 9 1974
15