Frjáls verslun - 01.09.1974, Síða 19
Chicago. Hverjar hugrenningar skyldu nú almcnnt eiga sér stað hjá fólki, þegar á borgina er
minnzt? Þá er ekki bara átt við íslendinga heldur beinlínis þann hluta heimsbyggðarinnar,
sem ætla má að sakir uppfræðslu og reynslu geti ályktað nokkuð rökrétt. Þrátt fyrir alla
sannleiksleit samtíðarmannsins og gnægð tæki færa til að hafa það er réttara reynist verður
mörgum hált á svellhm og tilhneigingin til dæ ma og draga í dilka eftir fordómum og alls
konar kreddum er óneitanlega nokkuð rík í mönnum.
Chicago,- borg í grænum búning
Miðstöð lista og menningar — IMilljónaborg sem kemur á óvart
Það skal játað, að á sama
hátt og munnvatnskirtlarnir í
hvutta litla fóru að starfa við
bjölluhljóminn í líffræðatil-
rauninni hérna forðum, runnu
ósjálfrátt upp fyrir greinarhöf-
undi myndir af A1 Capone og
byssubófum hans, morðingjum
af yngri kynslóðinni og
skyndikonum, reykspúandi
verksmiðjustrompum og
skuggalegum skýjakljúfum,
þegar hugsað var til ferðarinn-
ar til Chicago.
Og vissulega hefur saga
þessarar stórborgar við vötn-
in miklu verið með litskrúð-
ugra móti. Hún lifir á fornri
frægð, sem þó er í miklu ó-
samræmi við nútímann eins og
fljótlega rennur upp fyrir
mönnum þegar þangað er
komið.
HREINLEG BORG.
íbúar í Chicago eru nú um
3,6 milljónir, sem er ekki til-
takanlega stór hópur miðað
við íbúafjölda í stærstu borg-
um Evrópu um þessar mundir,
að ekki sé talað um mannhaf-
ið í þéttbýli í Austurlöndum
fjær.
Skýjakljúfar eru að sjálf-
sögðu til í Chicago en þeir eru
eins og hvítþvegnir miðað
við margar byggingar, stórar
og smáar í öðrum erlendum
borgum, sem íslendingar kann-
ast við.
Sírenuvælið endurómar í
strætum Chicago óhugnan-
lega oft á okkar vísu, eins og
eitthvað voðalegt sé á seyði
en í tíðni glæpa af versta tagi
hafa aðrar stórborgir fyrir
löngu slegið gömlu metin frá
Chicago, og miðað við banda-
rískar aðstæður telzt það til
tíðinda, að í jafnstórri borg, sé
mönnum óhætt að vera á
ferli á götum úti um nætur,
vitaskuld ekki í öllum hverf-
um.
„GRÆN BYLTING“.
Þetta er mikil breyting
frá fyrri tímum. Mannlífið hef-
ur tekið á sig gjörbreytta
mynd frá því sem var á bann-
árunum, og borgarbragurinn
er allur af öðrum toga spunn-
inn. Mikil áherzla hefur verið
lögð á „græna byltingu“ í
borginni og nágrenni hennar
og hefur þannig verið búið til
nýtt graslendi á uppfyllingu
út í Michigan-vatni, sem borg-
in stendur við. Þar eru stórir
garðar með listaverkum og
leikvöllum. Hjólreiðastígar
liggja meðfram ströndinni og
inn í skógana norðan við
borgina. Þeir eru greinilega
mikið notaðir. Með sérstökum
ráðstöfunum á seinni árum
hefur tekizt að halda Michi-
gan-vatni svo hreinu að
Chicagobúar bregða sér nú
í nokkurra mínútna akstur
norður fyrir skýjakljúfana í
miðborgarkjarnanum og synda
í vatninu á sólríkum sumar-
dögum. Á veturna er vatnið
svo hinn heppilegasti vett-
vangur fyrir skautahlaupara.
í Chicago koma skýrlega fram
einkenni meginlandsveðrátt-
unnar með allt að 40 stiga
FV 9 1974
19