Frjáls verslun - 01.09.1974, Side 33
Ferðalög ■ Bandaríkjunum:
Ymsir möguleikar til skemmtiferða
frá Chicago
Járnbrautafélagið Amtrak og Greyhoundvagnarnir bjóða ferðamönnum
hagstæð kjör
Chicago er afarákjósanleg samgöngumiðstöð fyrir þá, se<m ætla
að sjá sig um í Bandaríkjunum. Það er ekki einungis, að fl'ug-
félögin bjóði upp á tíðar ferðir þaðan hvert á land sem er,
í næstum bókstaflegri merkingu, heldur sameinast líka marg-
slungið net járnbrauta og leiðakerfi áætlunarvagna í einum
punkti, Chicago.
Auk hinna ágætu flugsam-
gangna frá Chicago gefst ferða-
mönnum í Bandaríkjunum
kostur á að nota sér einkar á-
hugaverð ferðatilboð Amtrak-
járnbrautarfélagsins og Grey-
hound-vagnanna.
IJrval
járnbrautaferða
Hjá Amtrak er hægt að velja
milli fjölmargra ferða, t. d.
6 daga ferð til Colorado meS
sérstökum skoðunarferðum um
fjallahéruð ríkisins. Hún kost-
ar $215.00, innifalið: járn-
brautarferðin, gisting og skoð-
unarferðir. Onnur ferð um
þessar slóðir í 8 daga kostar
$365.00. Fyrir sama verð er
líka hægt að fara í vikuferð
með lest og langferðabílum til
Glacier Park í Montana og inn
í Kanada. Allt er innifalið,
líka fæði. Vikuferð í Yellow-
stone-þjóðgarðinn kostar
$348.00, allt innifalið, og fyrir
$553.00 er hægt að fá 11 daga
ferð til vesturstrandarinnar, til
Seattle í Washingtonríki og
Vancouver í Kanada. Á þeirri
leið eru nokkrir af fegurstu
stöðum í Bandaríkjunum, í
skóga- og fjallahéruðum norðr
vesturríkjanna.
Sumarbústaðir
í Flórida
Marga fýsir þó kannski
fremur að komast í sumarhlý-
indi á baðströndum. Því þá
ekki að njóta sólargeislans i
Flórída? Amtrak hefur á áætl-
un sinni fjölda ferða til Flor-
ida og er járnbrautarfargjald-
ið frá Chicago til Orlando
$104.00 báðar leiðir. Sérstök
fjölskyldufargjöld eru líka í
gildi.
í Flórída býður Amtrak svo
gistingu í litlum, en vel búnum
smáhýsum, sem svipar í útliti
til sumarbústaða á íslenzka
vísu. Húsin eru með sérstöku
loftkælikerfi, eldhúsið er búið
öllum þægindum, litsjónvarps-
tæki eru í öllum húsunum og
á svæðinu í kring eru grasflet-
ir og sundlaugar, boltavellir
og golfvöllur og bátar fyrir
þá, sem vilja bregða sér á
sjóskíði eða til fiskveiða.
Fyrir tvo kostar dvölin á
þessum stað, sem nefnist
„Vaca Sun Village", $112.00 í
eina viku, en séu fjórir saman
í húsi kostar vikudvölin $38.50
á mann. Fjölskylduafsláttur
er veittur og kostar dvölin t.
d. $ 126.00 á viku fyrir allt að
sex manns og $147.00 fyrir
allt að átta manna fjölskyldu.
Gestum á þessum stað er
boðið upp á sérstök vildar-
kjör í sambandi við aðgang
að skemmtigarðinum Disney-
world. Það tekur ekki nema
15 mínútur að komast þangað
í bíl frá Vaca Sun Village.
Langi menn í siglingu um
Karabíska hafið geta þeir
keypt járnbrautarferð frá
Chicago til Miami fyrir
$122.00 og stigið þar um borð
í skemmtiferðaskip frá Nor-
wegian Caribbean Lines og
siglt um höfin blá í viku eða
hálfan mánuð. Vikuferð kostar
frá $320.00 til $940.00 en hálfs
mánaðarferð $590.00 til
$1260.00
Amtrak
tours
X/ÍlaVScatjor^
in Florida's
Fun Country
FROM $56.00 - 8 DAYS, 7 NIGHTS
PER PERSON DOUBLE OCCUPANCY
NOT INCLUDING RAlL FARE
AMM64
Einn af kynningarbækling-
um járnbrautanna.
FV 9 1974
33