Frjáls verslun - 01.09.1974, Síða 49
Greinar og uifttSI
EiSutverk hagmálastofnana
” eftir eSr. SuðniMiitd ÍViagnússon, prófessor
Ekkert er eðlilegra en að
stofnanir í þjóðfélaginu taki
breytingum í samræmi við
breyttar aðstæður og að nýjar
stofnanir verði til. Hitt er svo
annað mál, hvort þetta þarf að
gerast, með miklum svipting-
um eða nafnabreytingum með
skömmu millibili.
Þar sem ný stofnun hefur
tekið til starfa á hagsviðinu,
Þjóðhagsstofnun, og breyting-
ar eru í vændum á Fram-
kvæmdastofnun ríkisins, er
ekki úr vegi að rekja hér í
stuttu máli hlutverk hagmála-
stofnana, eins og þau eru skil-
greind í lögum.
Á sviði efnahagsmála verður
að telja fjórar stofnanir veiga-
mestar, Hagstofu íslands,
Seðlabanka íslands, Fram-
kvæmdastofnun ríkisins og
Þjóðhagsstofnun — og er þá
talið í aldursröð. Mörg mál
heyra beint eða óbeint undir
ýmis ráðuneyti, eins og á-
kvarðanir í sambandi við verð-
lagsmál. Nokkur samtök hafa
komið á fót hagdeildum, svo
og viðskiptabankar, en ekki
verður fjallað um þá starf-
semi.
HAGSTOFA ÍSLANDS.
Hagstofan er elst framan-
greindra stofnana, en lög um
’hana eru frá 1914. Annast
stofnunin margvíslega frum-
gagnasöfnun, vísitöluútreikn-
inga og skýrsluútgáfu. Lengst
af hefur hún heyrt undir fjár-
málaráðiherra. í fráfarandi
stjórn heyrði hún undir
menntamálaráðuneytið, en nú
fer forsætisráðherra með mál-
efni hennar.
í 1. gr. laganna frá 1. jan.
1914 segir, að Hagstofan
„standi beinlínis undir ráð-
herranum,“ og tekið er fram,
að hún skuli „safna skýrslum
um landshagi á íslandi, vinna
úr þeim og koma þeim fyrir
almennings sjónir.“
í 3. gr. segir, að Hagstofan
skuli „aðstoða landsstjórnina
með hagfræðis útreikningum
og skýringum, er hún óskar
eftir, og gefur henni álit og
yfirlýsingar, þegar þess er leit-
að.“
SEÐLABANKI ÍSLANDS.
Lög um Seðlabanka íslands
eru frá 1961. Þar segir m. a.
í 3. og 4. gr.:
„Hlutverk Seðlabankans er:
1. að annast seðlaútgáfu og
vinna að því, að peningamagn
í umferð og framboð lánsfjár
sé hæfilegt miðað við það, að
verðlag haldist stöðugt og
framleiðslugeta atvinnuveg-
anna sé hagnýtt á sem fyllst-
an og hagkvæmastan hátt;
2. Að efla og varðveita
gj aldeyrisvarasj óð, er nægi til
þess að tryggja frjáls við-
skipti við útlönd og fjárhags-
legt öryggi þjóðarinnar _út á
við;
3. að kaupa og selja erlend-
an gjaldeyri, fara með gengis-
mál og hafa umsjón og eftirlit
með gjaldeyrisviðskiptum;
4. að annast bankaviðskipti
ríkissjóðs og vera ríkisstjórn-
inni til ráðuneytis um allt, er
varðar gjaldeyris- og peninga-
mál;
5. að vera banki annarra
banka og peningastofnana,
hafa eftirlit með bankastarf-
semi og stuðla að heilbrigðum
verðbréfa- og peningaviðskipt-
um;
6. að gera sem fullkomnastar
skýrslur og áætlanir um allt,
sem varðar hlutverk hans;
7. að annast önnur verkefni,
sem samrýmanleg eru tilgangi
hans sem Seðlabanka.
í öllu starfi sínu skal Seðla-
bankinn hafa náið samstarf
við ríkisstjórnina og gera
henni grein fyrir skoðunum
sínum varðandi stefnu í efna-
'hagsmálum og framkvæmd
hennar.
Sé um verulegan ágreining
að ræða við ríkisstjórnina, er
Seðlabankastjórn rétt að lýsa
honum opinberlega og skýra
skoðanir sínar. Hún skal engu
að síður telja það eitt megin
hlutverk sitt að vinna að því,
að sú stefna, sem ríkisstjórnin
markar að lokum nái tilgangi
sínum.“
Sem greina má, eru öll tví-
mæli tekin af um það hver
ræður, ef ágreiningur verður
milli ríkisstjórnar og Seðla-
banka. Þetta mun ekki vera
gert í löggjöf nálægra landa.
FRAMKVÆMDASTOFNUN
RÍKISINS.
Lög um Framkvæmdastofn-
un ríkisins voru sett í tíð fyrr-
verandi ríkisstjórnar, eins og
öllum er kunnugt. Var Efna-
hagsstofnun jafnframt lögð
niður, en lög um hana voru
frá 1966, enda þótt hún hefði
starfað frá 1962.
Hluti stofnunarinnar er orð-
inn að Þjóðhagsstofnun. Verð-
ur því ekki fjallað um hlut-
verk hagrannsóknadeildar,
nema í sambandi við almenn
ákvæði.
Um hlutverk stofnunarinnar
segir svo (í ýmsum lagagrein-
um):
„Framkvæmdastofnun ríkis-
ins er sjálfstæð stofnun, sem
er ríkisstjórninni til aðstoðar
við stefnumótun í efnahags- og
atvinnumálum. Hún annast
hagrannsóknir og áætlanagerð
og hefur með höndum heildai'-
FV 9 1974
49