Frjáls verslun - 01.09.1974, Side 77
Skagaströnd:
Þeir lepja ekki
lengur dauðann úr skel
Líklega þekkja flestir landsmcnn frétlir þær sem bárust frá
Skagaströnd fyrir nokkrum árum. Þar var greinilegt að menn
löptu dauðann úr skel. Þegar fiskurinn var horfinn úr Húnaflóa
virtist stoðunum kippt undan öllu atvinnulífi þeirra á Skaga-
strönd. Þegar fréttamaður F.V. kom til Skagastrandar á dögun-
um varð hann vitni að gjörbreytingu á öllum háttum manna
þar.
Lárus Guðmundsson heitir
hinn ungi sveitarstjóri Skaga-
strandarhrepps, viðskiptafræð-
ingur að mennt, og hefur hann
gegnt starfi sínu í 2 ár.
Lárus sagði okkur að á
Skagaströnd væru nú starf-
andi skipasmíðastöð, sem væri
að smíða þrjá 30 lesta eikar-
báta, saumastofa, sem gengi
bærilega, og síðast en ekki
sízt rækjuvinnsla og rekstur
skuttogara, en tvö síðarnefndu
atriðin hafa gert Skagaströnd
að byggilegu plássi á ný, svo
mjög að þar er nú uppbygging
í fullum gangi.
Rækjuvinnsla með vélum
hófst seint árið 1972 og taldi
Lárus að þar hefði öfugþróun-
inni verið snúið við svo um
munaði, enda hafa 45 manns
atvinnu af rækjunni, mest hús-
mæður. Rækjubátar l’rá Skaga-
strönd eru nú 7 tals.ns.
Koma ski.itogarans Arnars
15. okt. 197ú var svo það sem
leysti síðust . hnútana í erfið
leikum Skagastranda'‘•'yggSai.
Það er Skagstrendir. ,ir hf.,
sem er eigandi togar ..i,- oað
félag er eign sveitarfé'L.fasins
og einkaframtaks á staðnum
Var þetta tíundi og síðasti
Japanstogarinn, sem keyptur
var. Sendu þeir Sk.agstrending-
ingar nenn og gátu forðast
misiok, sem urðu hjá öðrum.
Hefur togarinn síðan fært hrá-
efni jafnt og þétt í frystihús-
ið, 3-4 sinnum í mánuði, og
reksturinn gengið vonum
framar, veiðarfæratjon t. d.
ekki orðið, en rekstrargrund-
völlurinn margrómaði þó ekki
verið fyrir h : di enn ser.i
komið er. „Það nré iullyrða að
hér á Skagaströr.d hefur fólk
. aknað til vitundar um að hcr
má gera ýmsa hluti,“ sagði
Lárus Guðmundssou.
Síðustu 2 árin hafa Skag-
strengingar unnið að gerð
vatnsveitu, fundu vatn í 5 km
fjarlægð frá þorpinu, en áður
var notazt við yfirborðsvatn.
Þá er í undirbúningi malbikun
eða olíumalarlagning á aðal-
götunni og á að ljúka því
verki í vetur eða næsta vor.
Húsbyggingavinna hefur
verið mikil á Skagaströnd, 25
hus byggð á 2 árum nú, að-
eins tvö hús höfðu verið byggð
á staðnum á 10 árum þar áður.
Líklega sýnir þetta hvað skýr-
ast sögu Skagastrandar síðustu
árin. Lárus kvað töluverðan
þrýsting frá fólki á Reykjavík-
ursvæðinu og víðar að setjast
að á Skagaströnd, enda væri
þar um góða tekjumöguleika
að ræða. Lárus taldi að á
Skagaströnd yrði fljótlega að
taka gatnagerðargjöld af hús-
byggjendum, enda væri það
hreppsfélaginu um megn að
ganga frá byggingalóðum
byggjendum að kostnaðar-
lausu.
Margar aðrar framkvæmdir
eru á döfinni á Skagaströnd,
m. a. er verið að gera grjót-
garð við innsiglinguna til að
verja höfnina, og íþróttavöllur
verður reistur.
íbúafjöldi Skagastrandar nú
er um 600, fór niður í 501, en
var mestur 630. Var staðurinn
á sínum tíma skilinn eftir sem
eyðimörk, þegar útgerðarmenn
hurfu til annarra staða með
báta sina, þegar fiskurinn
hvarf úr Húnaflóa.
Lárus Guðmundsson, hinn ungi sveitarstjóri á Skagaströnd.
Bak við hann er hin gamla síldarverksmiðja SR, sem cr notuð
lítillcga, en varð ckki sú lyftistöng, sem til stóð.
FV 9 1974
77