Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 23
Suðurland hefur verið í stöðugum saltfiskflutningum til Miðjarð-
arhafsins.
# Nesskip
Skipafélagið Nesskip hf. var
stofnað í janúar 1974. f febrúar
þaða sama ár tók félagið við
sínu fyrsta skipi m.s. Suður-
Iandi, sem keypt var frá Finn-
landi. í lok febrúar á síðasta
ári keypti Nesskip m.s. Vestur-
land, sem áður var m.s. Hvals-
nes.
Vöruflutningaskipið Suður-
land er milliþilfarsskip 499
brúttórúmlestir að stærð. Burð-
argeta er 1700 tonn og rúmmál
lesta er 75.000 rúmfet. Vetur-
inn 1975 var skipinu breytt í
kæliskip til að það gæti flutt
saltfisk frá íslandi til Miðjarð-
arhafslanda.
Síðan 1975 hefur m.s. Suður-
land verið nær eingöngu í
flutningum á saltfiski til landa
við Miðjarðarhaf og flutt laust
salt frá Túnis til íslands.
M.s. Vesturland er 297 brúttó-
rúmlestir, burðargeta 1250 tonn
og rúmmál lesta skipsins er
61.000 rúmfet. Skipið er útbúið
síðutönkum og eru því lestar-
rými skipsins eins og kassi.
Þetta fyrirkomulag auðveldar
mjög losun og lestun á öllum
varningi, og hefur skipið líkað
vel til flutninga á brettavörum,
fiskimjöli í sekkjum og lausu
formi og hvers konar stærri
förmum.
Á síðasta ári fluttu 'bæði
skipin samtals 39.580 tonn af
vörum í 31 ferð, þó ber að geta
þess að m.s. Vesturland var
rúma 10 mánuði í rekstri hjá
Nesskip.
Frá íslandi fluttu skipin út
sjávarafurðir, samtals 18.þ39
tonn. Til fslands frá erlendum
höfnum voru flutt samtals
15.041 tonn, og á milli hafna
hér innanlands voru fluttar
1410 smálestir samtals og mæl-
ir þar stærst áburður frá Á-
burðarverksmiðjunni í Gufu-
nesi.
Milli hafna erlendis fóru
skipin fjórar ferðir og fluttu
samtals 4.590 tonn af vörum.
Skipin komu 146 sinnum til 40
hafna á landinu til að ferma og
afferma vörur á árinu 1976.
Bæði skipin komu 56 sinnum
til erlendra hafna í samtals 19
löndum. Flestar viðkomur er-
lendis voru Portúgal, 10 sinn-
um og Túnis, 9 viðkomur.
M.s. Suðui’land fór í all sér-
stæða ferð á árinu 1976, en þá
var fluttur saltfiskfarmur frá
Keflavík til Matadi í Zaire, og
hefur íslenskt skip ekki flutt
fiskfarm áður til þessa lands.
Framkvæmdastjóri Nesskip
er Guðmundur Ásgeirsson, fyrr-
verandi skipstjóri.
# Þorvaldur Jónsson
Þorvaldur Jónsson, skipa-
miðlari gerir út vöruflutninga-
skipið Svan i eigu Nes hf.
Grundarfirði. M.s. Svanur er
smíðaður í Fiskarstrand í Nor-
egi 1972 og er 299 brúttórúm-
lestir og getur flutt 1300 tonn
af vörum. Skipið er keypt hing-
að til lands 1974.
M.s. Svanur er systurskip
m.s. Vesturlands og er eins og
það útbúið síðutönkum, sem
auðvelda mjög losun og lestun.
Svanur hefur aðallega flutt út
fiskimjöl til Norður Evrópu-
hafna, en auik þess verið í flutn-
ingum milli hafna erlendis með
timbur og járn m.a.
Hingað til lands hefur vöru-
flutningaskipið Svanur flutt
salt, timbur, járn og gjall. Á
síðasta ári flutti skipið 20.653
tonn í 20 ferðum.
# Skipafélagið Víkur
Skipafélagið Víkur hf., sem
stofnað var árið 1969 gerir út
tvö vöruflutningaskip Eldvík
og Hvalvík. Eldvík hefur verið
í eigu skipafélagsins Víkur í 3
ár, en fyrir tveimur árum var
skipinu breytt í kæliskip.
Skipafélagið Víkur hefur átt
Hvalvík síðan í apríl 1975.
Burðargeta m.s. Eldvík 2832
DWT (burðargeta mínus vatn,
vistir og olía) ens lestar eru um
120.000 rúmfet. Undanfarin 2Vz
ár hefur Eldvík eingöngu verið
í saltfiskflutningum til Spánar,
Portúgal, Ítalíu og Grikklands.
Skipið hefur flutt salt hingað
til lands. Á síðasta ári fór Eld-
vik alls 7 ferðir utan með salt-
fisk, en skipið hefur lestað salt-
fisk á allt upp í 25 höfnum áð-
ur en siglt er utan. Áhöfn á
Eldvík er 12—13 manns. Á síð-
asta ári flutti Eldvík 15.846
tonn af saltfiski út.
Vöruflutningaskipið Hvalvík
hefur eingöngu verið í leigu-
siglingum fyrir erlenda aðila,
nú upp á síðkastið fyrir sænska
aðila i ýmiss konar flutningum.
Hvalvík hefur m.a. siglt til
ýmissa Evrópulanda, Ameríku
og Afríku.
Burðargeta skipsins er 4410
DWT (burðargeta mínus vatn,
vistir og olía) Lestir eru 219000
rúmfet. Áhöfn skipsins er 14
manns.
L
FV 1 77
23