Frjáls verslun - 01.01.1977, Side 79
f NÝJU HÚSNÆÐI
— 1973 byggðum við nýtt
bílaverkstæði sem er áfast við
eldra húsnæði vélsmiðjunnar,
og síðastliðið ár var tekið í
notkun nýtt húsnæði 400 m- að
stærð þar sem við getum tekið
að okkur allar stærri viðgerðir
eins og togaravélar og fleira.
Bílaviðgerðirnar eru á öllum
sviðum og fá ferðamenn alla
hugsanlega þjónustu sem þá
vanhagar um. Annars er ekki
mikið um ikomu ferðafólks en
fer þó fjölgandi. Hér á Vest-
fjörðum eru alltof fáir bifvéla-
virkjar miðað við fjölda tækja.
Hingað kemur mikið frá ísa-
firði þar sem þeir anna ekki
öllu þar og eins kemur mikið
frá öðrum fjörðum en með
bættum samgöngum lengist við-
gerðartímabilið hjá þeim, Þá
stendur okkur mjög fyrir þrif-
um hversu samgöngur eru
strjálar yfir vetrarmánuðina.
Allir þungaflutningar þurfa að
koma frá Reykjavík með skip-
um og á sumrin er þetta enginn
höfuðverkur því þá höfum við
bílana. Það þarf að ljúka við
vegagerð á þeir.ri heiði sem er
okkar eini farartálmi, Þorska-
fjarðarheiðinni, ti'l að hægt sé
að lengja tímabilið sem biíarn-
ir geta verið að.
JÁRNSMÍÐI í SÍLDAR-
VERKSMIÐJUNNI
Að lokum sagði Guðmundur
að næsta stórverkefni sem væri
fram undan eftir að byggingu
sundlaugarinnar lyki væri öll
járnsmíði í sildarverksmiðjuna
ef nægur mannskapur fengist,
en þegar er byrjað á smíði
þurrkarans.
Byggingarþjónusta Jóns Fr. Einarssonar:
Tilbúin íbúð ■ rað-
húsi fyrir 5,5
milljónir
Byggingarþjónusta Jóns Fr.
Einarssonar Bolungarvík verð-
ur 20 ára á næsta ári en hún
byrjaði sem trésmíðaverkstæði
og byggingarverktaki 1958.
Blaðamaður FV hitti Jón að
máli þegar hann var á ferð í
Bolungarvík fyrir skömmu.
Jón sagði að fljótlega eftir að
fyrirtækið var stofnað hefðu
verið keyptar mjög fullkomnar
vélar til innihurðaframleiðslu
og voru þeir hinir fyrstu og
lengi vel þeir einu sem fram-
leiddu innihurðir á Vestfjörð-
um. Nú framleiðir trésmiðjan
alla glugga, hurðir og eldhús-
innréttingar.
'— Helztu byggingarverkefni
í gegnum árin má telja allar
byggingar sem byggðar hafa
ve.rið í Bolungarvík á þessu
tímabili en af stórum verkum
er það ráðhúsið, verzlun Einars
Guðfinnssonar, barnaskólinn,
síldar- og loðnuverksmiðjan,
frystihúsið og svo eigið verzlun-
arhúsnæði.
NÝ SUNDLAUG
Aðalverkefnin sem nú eru í
gangi er að ljúka sundlauginni,
sem á að taka í notkun nú um
mánaðarmótin. Þá er verið að
stækka loðnuverksmiðjuna og
frystihúsið. Lokið var við
smíði 8 íbúða í tveim raðhúsum
á síðasta ári auk 4 einbýlishúsa.
Á döfinni eru áframihaldandi
íbúðabyggingar, verið er að
skipuleggja hverfi með 20 íbúð-
um, sem byrjað verður á í
sumar ef lóðir og aðrar aðstæð-
ur verða fyrir hendi.
MIKIL EFTIRSPURN EFTIR
ÍBÚÐUM
— Hér er mikil eftirspurn
eftir íbúðum og hefur aukist
þrátt fyrir að mikið sé byggt.
Fyrir ári síðan voru til íbúðir
á lager ef svo má segja en nú
hefur það alveg snúist við,
þannig að bæjaryfirvöld hafa
mikinn hug á því að setja fullan
kraft í íbúðabyggingar og í því
sambandi er verið að skipu-
leggja ný svæði. Þessi bær hef-
ur mestu möguleikana af byggð-
arlögunum á Vestfjörðum til
verulegrar stækkunar enda nóg
landrými eða tveir dalir. Aðrir
staðir eru byggðir á eyrum við
snarbrattar hlíðar svo land-
rými er þar af skornum
skammti.
— Söluverð íbúða er töluvert
lægra en samsvarandi í Reykja-
vík i hverju sem það liggur,
því hér kostar jafn mikið að
byggja auk flutningskostnaðar
á allt efni. Annars tökum við
okkar efni sem máli skiptir
beint frá útlöndum. Hér eru að
vísu engin gatnagerðargjöld í
nýju 'hverfunum svo þar er eini
hugsanlegi munurinn. íbúð í
raðhúsi 90 m- allt tilbúið úti
sem inni seldum við á síðasta
ári á 5,5 milljónir.
Jón Fr.
Einarsson,
fram-
kvæmda-
stjóri
Byggingar-
þjónust-
unnar.
FV 1 77
79