Frjáls verslun - 01.01.1978, Page 57
Fi-á Melgraseyri er farið i
Vatnsfjörð, sem allir kannast
við úr íslandssögunni og síðan
í Reykjanes. Þar er Reykjanes-
skóli, héraðsskóli og grunn-
skóli. í Reykjanesi er jarðhiti
og auðvitað sundlaug og iþrótta-
hús. Þar er hægt að tjalda og
skoða selinn liggjandi í mak-
indum á skerjunum. Frá
Reykjanesi er siglt inn að Arn-
gerðareyri en þaðan má fara á
bíl eftir Langadal og er mað-
ur þá á ieiðinni yfir heiðar og
í Bjarkarlund.
Nú tíðkast það á sumrin að
taka bílinn með sér um borð í
Fagranesið, ýmist á ísafirði eða
á Arngerðareyri og stytta akst-
urstímann um leið og notið er
fegurðar Djúpsins á siglingu.
0 Ein lengsta
laxveiðiá landsins
I Langadal er ein lengsta
laxveiðiá á landinu u.þ.b. 43
km frá efsta til neðsta veiði-
svæðis, en þar eru 28 veiðidag-
ar á ári.
En frá Arngerðareyri fer
Fagranesið að‘ ICyri í Mjóafirði
sem er einn fallegasti fjörður-
inn í Djúpinu og með afbrigð-
um veðursælt. Þar er skógur
og áningarstaður sem opnaður
var í fyrsta sinn sumarið 1976.
í Mjóafirði er búið á 6 myndar-
legum býlum. Frá Eyri er um
2ja tíma akstur í Bjarkarlund,
en styzt er í Bjarkarlund frá
Bæjum, 1 tími og 40 mínútur.
Undir venjulegum kringum-
stæðum siglir Fagranesið aftur
til ísafjarðar frá Eyri í Mjóa-
firði, nema flytja þurfi bíla til
ísafjarðar, þá er komið við aft-
ur á Bæjum.
# 12 tíma fer&
Öll siglingin og stöðvanir á
viðkomustöðunur^, eða þar til
kcmið er til ísáfjarðar aftur
tekur u.þ.b. 12 klukkustundir.
Kristján Jónasson sagði að
reikna mætti með því að 12
tíma ferðin myndi kosta 3000
kr. á farþega á næsta sumri,
4200 kr. á Hornstrandir og til
baka eftir viku, en auk þess
yrði boðið upp á 6 tíma ferðir
um Út-Djúpið og myndu þær
kosta 1500 kr.
FESTI
GRINDAVÍK
YÐAR ÁNÆGJA - OKKAR STOLT
önnumst öll mannamót, stór og smá. Að-
eíns nokkur „nútima” hænufet frá ys og
skarkala höfuðborgarinnar. Við bjóðum
allaþá aðstöðu tilhverskonarmannamóta,
er best gerist. Þjónustan er indæl og verð-
ið eftir þvi.
FÉLAGSHEIMIUÐ FESTI
GRINDAVÍK - SIMI 92-8255 og 92-838
M
M
M
M
*M
__—I
Framleiðum allskonor bólstruð
húsgögn og
klœðum T
SSSSSíí-
Hverflsooli, 76
15103
FV 1 1978
57