Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1978, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.05.1978, Blaðsíða 9
Þráinn Eggertsson, hagfræðingur, er fædd- ur í Reykjavík 1941. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1961. Hóf hag- fræðinám við enskan háskóla, og lauk þaðan B.A. prófi 1964. Á árunum 1964—65 var hann starfsmaöur OECD í París, lengst af staðsettur í Júgóslavíu. Þráinn hóf nám og kennslustörf við bandarískan háskóla 1965 og lauk þaðan doktorsprófi í hagfræði 1972. Var um tíma hagfræðingur hjá Seðlabanka íslands, en tók síðan við lektorsstöðu í viðskiptadeild Háskóla Islands, en því starfi gegnir hann nú. Þráinn hefur ásamt Ásmundi Stefánssyni haft umsjón með þáttum um efnahagsmál í sjónvarði, Alþýðufræðsla um efnahagsmál, sem hafa vakið mikla athygli. Um þessa þætti sagði Þráinn: — Það hefur veriö skemmtilegt að fá nasasjón af sjónvarpinu, sem er mikill furðuheimur. Tilgangur þessara þátta er að skilgreina algeng hugtök og skýra frá ýmsum staðreyndum um efnahagsmál, en foröast pólitísk deilumál. Ég vona, að okkur Ásmundi Stefánssyni hafi tekist að sýna að þetta sé hægt og að áhorfendur hafi haft gagn af þáttunum. Friðrik Pálsson, viðskiptafræðingur, tók um síðustu áramót við starfi framkvæmdastjóra Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, en hann hafði áður gegnt starfi skrifstofustjóra hjá fyrirtækinu frá því 1974. — Starf mitt sem framkvæmdastjóri S.I.F. sagði Friðrik — er fólgið í daglegum rekstri og stjórnun fyrirtækisins, en yfirgnæfandi meiri- hluti tímans fer I sölustarfsemi fyrir afurðir salt- fiskframleiðenda. Aðilar að Sölusambandi ís- lenskra fiskframleiðenda eru nú um 270. — S.Í.F. selur saltfisk mest til Miðjarðarhafs- landanna og eru Portúgalir þar langstærstu kaupendurnir, en Spánn, italía og Grikkland eru einnig stórir kaupendur. Ekki er búið að semja um kaup á saltfiski til Portúgals á árinu sagði Friðrik, — en Spánn kaupir svipað magn og undanfarin ár, 6000 tonn og búið er að selja til ítalíu 3800 tonn. Auk Friðriks er Valgarö J. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri S.Í.F. og sér hann um sölu á þurrkuðum saltfiski, sem aðallega selst í Suður og Mið-Ameríku og saltaðra ufsaflaka, sem seld eru til V.-Þýskalands. Friðrik Pálsson er fæddur 19. mars 1947 á Bjargi í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu. Eftir nám í Reykjaskóla í Hrútafirði, fór hann í Versl- unarskóla Islands og lauk þaöan stúdentsprófi 1969. Þaðan lá leiðin í viðskiptadeild Háskóla íslands, og lauk Friðrik þaðan viðskiptafræöi- prófi í janúar 1974, og tók því strax að námi loknu til starfa hjá S.Í.F. 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.