Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1978, Blaðsíða 65

Frjáls verslun - 01.05.1978, Blaðsíða 65
búningnum, ef aðstæður leyfa: ,,Þú stendur þig best í starfinu þegar þér tekst að hafa taumhald á skapinu". Þessi aðferð er líklegri til að hafa áhrif á það að starfs- maðurinn taki til greina þær kvart- anir um hegðun hans, sem á eftir fylgja. Aðalatriðið er að þú ákveðir tóninn, — ekki hann. Á þann hátt ert þú fær um að stýra þeirri þróun sem viðtalið tekur. Reyndu að girða fyrir árekstra. Ákveðin spenna fylgir ávallt við- tölum af þessum toga. Vertu við- búinn því aö á ákveðnu stigi við- talsins kunni að hitna í kolunum. Sú staða gæti komið upp þar sem starfsmaðurinn segir: „Þetta er ekki sanngjarnt, ég sé ekki ástæðu til að sitja undir svona svívirðing- um". Með því að svara í sömu mynt værir þú að opna leiðina til enn frekari árekstra og þar með að eyðileggja viðtalið. Þess í stað skaltu strax afgreiða þetta atriði sem aukaatriði og leggja áherslu á það sem þú telur skipta höfuðmáli. Á þann hátt gefurðu til kynna að þú munir ekki tilbúinn til að fara út í rifrildi. Segðu eitthvað á þessa leið: ,,Ég get vel skilið hversvegna þú bregst svona við þessu . . .“ Það lægir öldurnar og gefur starfsmanninum svigrúm til að draga saman seglin að nýju. Vertu viðbúinn að svara óvænt- um spurningum. Þú gætir auð- veldlega misst tökin á viðtalinu ef þú getur ekki svaraö spurningum án þess að hiksta. Dæmi: „Hvernig í ósköpunum getur þú ásakað mig fyrir skort á dómgreind?" Eða: „Úr því að þú vissir betur, hversvegna léstu mig ekki vita um það í stað þess að láta mig halda áfram í góðri trú?" í þessum tilvikum ber að foröast altækar skýringar og þær sem sóttar eru út fyrir fyrir- tækið. Þess í stað er um aö gera að svara þessum spurningum með staðreyndum þess máls sem þær snerta. Vertu því viöbúinn. Það geturðu með því að vera áður bú- inn aö kynna þér gaumgæfilega þau ákveönu mál, sem þú ætlar að taka fyrir í viðtalinu sem dæmi um þá vankanta sem laga þarf hjá starfsmanninum. Sláðu aldrei á léttari strengi í lokin. Ef þú ætlast til þess að við- talið beri árangur skaltu forðast það eins og heitan eldinn, að reyna að gera gott úr öllu undir lokin með því aö segja sem svo: „Það er engin ástæða til að taka þessu svona, þetta er ekki svona alvarlegt, ég tók bara svona til orða" . . . o.s.frv. Með þessu móti er veriö að taka botninn úr viðtal- inu, draga í land með flest allt sem rætt var um og þaö sem verra er, þú munt missa það álit starfs- manna þinna sem er grundvöllur þess að þér muni takast aö stjórna. Afsakanir á borð við; „já ég veit að það hefur verið mikið álag á starfsfólkið að undanförnu og of mikil streita á sinn hlut í ástand- inu" . . . eru aðeins til þess að al- varan að baki viðtalinu orkar tví- mælis. Þar með væri það gagns- laust. Nauðsynlegt er að halda sig við staðreyndir, benda á augljósa galla undanbragðalaust og ein- beita sér að því að fá starfsmann- inn til þess að líta raunsætt á sem flestar hliðar málsins. HÉRADSHEIMILIÐ VAlASK]/lLF FERÐAFÓLK! Athugið að í félagsheimilinu VALASKJÁLF fæst heitur og kaldur mat,ur allan daginn alla daga. Einnig kaffi, brauð, kökur og margt fleira. Útbúum hcitan og kaldan veizlumat. Smurt brauð og snittur. Sendum heim ef óskað er. Aðstaða fyrir fundi og veizluhöld, kvikmyndasýningar. Sundlaug á staðnum. Sætaferðir ti! og frá Hornafirði, Akureyri, Seyðisfirði (Færeyjaferjan). VEITINGAHÚSIÐ VALASKJÁLF EGILSSTÖÐUM Símar: 97-1262, 97-1261. 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.