Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1978, Blaðsíða 40

Frjáls verslun - 01.05.1978, Blaðsíða 40
Varðveitið það sem íslenzkt er segja erlendir ferðamenn á íslandi Birna Bjarnleifsdóttir, formaður Félags leið- sögumanna skipuieggur ferðir fyrir erlenda kaupsýslumenn um Island og skrifar um erlenda ferðamenn á íslandi. Þegar blaðamaður Frjálsrar verzlunar bað mig að skipuleggja heimsókn erlendra „bisness" manna um l'sland, eins og það var orðað, benti ég á að ferðaskrif- stofur tækju að sér að skipuleggja ferðir fyrir erlenda ferðamenn. Ferðaskrifstofurnar fengju svo leiðsögumenn til að framkvæma ferðirnar samkvæmt því. í Ijós kom síðan að ferð ,,bisness“mannanna átti að vera ímynduð, farin í þykj- ustu og meira af gamni en alvöru. Jafnframt var aðeins óskað eftir rabbi um erlenda ferðamenn á ís- landi. Ég lét því til leiðast, meira vegna íslenzkra leiðsögumanna almennt, sem alltof sjaldan fá tækifæri til að ræða eöa taka þátt í undirbúningi ferða. Það eru þó leiðsögumenn, ásamt bílstjórum, sem framkvæma ferðirnar og þekkja af eigin raun aðstæður á leiöum og stöðum svo og viðbrögð farþega. Nú vill svo til að margir þeirra erlendu ferðamanna, sem hingað koma, eru kaupsýslumenn í við- skiptaerindum. Sumir þeirra koma til að reka viðskiptaerindi hér, aðrir eru á leið milli Evrópu og Ameríku til erindreksturs öðrum hvorum megin Atlantshafsins. Sem Flug- leiðafarþegum býðst þeim ódýr 1 — 3 daga viðdvöl á Islandi, sem sumir telja upplagt að nota til að taka saman í afslöppuðu umhverfi árangur af erfiðri viðskiptaferð, áður en erill viðskiptalífsins hefst á ný heima fyrir. Ýmsar starfsstéttir hafa haldið hér ráðstefnur með fyrirlestrum um sín sérsvið, s.s. tannlæknar, dýralæknar, kennarar, endur- skoðendur, hjúkrunarkonur, lög- fræðingar, verkfræðingar og tæknifræðingar svo að eitthvað sé nefnt. Milli fyrirlestra eða í lok ráð- stefnunnar fara þátttakendur í skemmtiferð. Einnig hafa komiö hingað starfshópar, sem náð hafa ákveðnu marki í starfi, selt hjól- barða fyrir ákveðna upphæð, smíðað húsgögn í ákveðinn ára- fjölda, stjórnað sporvögnum, selt tryggingar, stjórnað tölvum, fram- leitt höfuðverkjatöflur eða selt ferðir til Islands. Verðlaunin eru skemmtiferð til íslands. Yfirleitt fá allir þessir hópar sams konar afgreiðslu og þeim sýndir sömu staðirnir hér á landi. Auðvitað má segja að þátttakend- ur í skemmtiferð séu fyrst og fremst ferðamenn, sem eru að slappa af frá daglegu amstri og um leið kynnast nýju landi og þeirri þjóð, sem það byggir. Stöku sinnum hefur verið reynt aö fella kynnis- og fræðsluferöir inn í skemmtiferðir sérhópanna og kynna þeim t.d. samsvarandi starfsgrein hér. En af ýmsum ástæðum virðast íslenzk fyrirtæki almennt ekki geta sinnt slíkum heimsóknum. En kunna menn ekki allt betur þarna í útlandinu, kunna sumir aö spyrja? Varla koma útlendingar hingað til að læra að smíða hús- gögn eða fara með tölvur, rækta tún eða tómata. Það er nú samt þannig að þó að útlendingurinn þekki e.t.v. Peztu aðferðina fyrir sjálfan sig, er alltaf forvitnilegt að sjá, hvernig aðrir framkvæma hlutina, ekki sízt fólk í svona af- skekktu og sérstæðu landi eins og íslandi. Ferðamenn vilja ekki síður kynnast þjóðinni, sem þeir eru að heimsækja en sjá landið og nátt- úruna. Allra helzt vilja ferðamenn kynnast því, sem taliö er sérkenni þess lands, sem þeir gista. Eða er ekki svo með okkur ís- lendinga, þegar við ferðumst til framandi landa? Nema þá helzt íslendingur í sólarlandi, sem hvergi er talinn falla inn í formúlu. Þarlendir leiðsögumenn eiga aldr- ei náðugri daga en þegar ferða- mennirnir eru íslenzkir. Tilgangs- laust að tala, enginn hlustar. Flér á landi geta erlendir ferða- menn valið á milli margs konar ferða. Islenzkum ferðaskrifstofum hefur fjölgaö síöustu mánuðina, eitthvað tæplega tuttugu hafa ferðaskrifstofuleyfi. Nokkrar leggja megináherzlu á aö sólbaka l’slendinga erlendis, en aðrar skipuleggja ferðir hér innanlands nær eingöngu. Farþegar í þeim ferðum eru nær eingöngu erlend- ir. Þeir, sem stanza aðeins einn dag í Reykjavík, geta valið á milli nokkurra eins dags ferða. Kynnis- ferð um Reykjavík tekur 2V4 klst., venjulega er ekið um austur- og vesturhluta borgarinnar, gamla miðbæinn og heimsótt þrjú söfn. Stærsti hluti safngesta á Islandi eru útlendingar. Um helmingi lengri tíma tekur ferð til Krísuvíkur-Grindavíkur og ferð í Hvalstöðina. Algengustu heilsdagsferðir (9—11 klst.) eru farnar til Gullfoss-Geysis-Þing- valla, um Kaldadal í Borgarfjörð, austur í Vík í Mýrdal og í Þjórsár- dal. Einnig bjóðast flugferöir til staða utan Reykjavíkur og ferðir út frá þeim, t.d. er flogiö til Akureyrar og farið þaðan austur að Mývatni og flogið til Reykjavíkur um kvöld- ið. Flugferðir til Vestmannaeyja, til að skoða ummerki eldgossins, eru enn vinsælar. Lengri ferðir standa allt frá 3 dögum upp í 6 og jafnvel 13 daga. Annað hvort er gist í tjöldum ein- göngu (tjaldferðir) eða á hótelum (hótelferðir). Heimsóttir eru helztu 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.