Frjáls verslun - 01.05.1978, Blaðsíða 52
hinu mikla. Ekið er frá Nýjadal
norður í Skagafjörð og að Hvera-
völlum, þar sem gist er í tvær
nætur.
Aó sjálfsögðu verður farið í
sumarleyfisferðir í Þórsmörk og
Landmannalaugar, en þangað er
einnig farið allar helgar frá því á
vorin og fram á haust.
Ráðgerðar eru feröir á Kjal-
vegssvæðið í júlí og ágúst. Þær
ferðir hefjast á föstudagskvöldum,
gist á Hveravöllum og í Kerlingar-
fjöllum, og farið verður inn í Þjófa-
dali, þegar fært er. Á heimleiðinni
er komið við í Hvítárnesi.
Dags og helgarferðir Ferða-
félags íslands standa allt árið um
kring og eru löngu orðnar lands-
þekktar. 7,— 9. júlí verður t. d. farið
á Tindafjallajökul, þann 14,—16. í
Landmannalaugar og Hraftinnu-
sker og 21.—23. sama mánaðar
verður farið inn í Þórsmörk, á
Fimmvörðuháls og að Skógum.
í dagsferöir verður m.a. farið í
söguferð út í Viðey, gengið á
Sveifluháls, farið að Tröllafossi,
sögustaðir á Þingvöllum skoðaðir,
og fjölmargt fleira.
VERSLUNIN ÞÓR HF.
FÁSKRÚÐSFIRÐI - SÍMI 97-4200
FJÖLBREYTT OG GOTT
VÖRUÚRVAL
FYRIR FERÐAMENN
Þið nefnið það við höfum það
Söluumboð: HOOVER
HANSPETERSEN
STÁLIÐN
Ferðaskrifstofa Úlfars Jacobsen:
Safariferðir og hring-
ferðir um landið
Úlfar Jacobsen er löngu lands-
þekktur fyrir hálendisferðir sínar.
Hann hefur nú boðið upp á slíkar
ferðir frá því árið 1950, eða í 28 ár.
í sumar verður hann enn á ferðinni
bæði um óbyggt háiendi Islands
og undirlendi í byggð.
Njáll Símonarson framkvæmda-
stjóri gaf F. V. upplýsingar um
fyrirhugaðar ferðir, sem Ferða-
Við Herðubreið.
52