Frjáls verslun - 01.05.1978, Blaðsíða 30
Philips smíðar
prívíddarsjónvarp
Þrívíddarsjónvarp kann að
verða á markaði í V-Evrópu
snemma á næsta áratug. Vís-
indamenn hjá Philips-verk-
smiðjunum í Hollandi eru að
vinna að gerð sjónvarpstækja
með flötum skjá, sem gætu
framkallað mynd með þrívídd-
aráhrifum.
Á sjónvarpshátíðinni í
Montreux í maí vöktu sænskir
uppfinningamenn mikia at-
hygli með þrívíddartækjum,
sem þeir eru með á tilrauna-
stigi. En til þess að geta notið
tækni Svíanna þurfa áhorfend-
ur að burðast með sérstök
gleraugu, sem bíógestir muna
eflaust eftir frá árunum milli
1950 og 60, þegar þrívíddar-
myndir lifðu sitt stutta skeið.
Uppfinning Philips krefst aftur
á móti engra sérstakra gler-
augna. Þarna virðist vera á
ferðinni mesta bylting í sjón-
varpstækni síðan litsjónvarps-
tæki voru fyrst framleidd.
Philips-fyrirtækið, sem gerir
ráð fyrir að komast mörgum
skrefum fram úr aðalkeppi-
nautum sínum með þessari
nýjung, er skiljanlega ófúst að
gefa mikið af upplýsingum um
áform sín. Þó er vitað, að hjá
Philips er verið að gera til-
raunir með flata skjái. Svo er
einnig hjá ýmsum öðrum sjón-
varpstækjaframleiðendum. í
Japan eru það Sanyo, Sharp og
Hitachi sem vinna að þremur
mismunandi gerðum tækja.
Þessi tæki verða laus við
venjulegu sjónvarpslampana
og geta hangið á vegg eins og
spegill. Philips stendur keppi-
nautum sínum framar að því
leyti, að verksmiðjur þess fyr-
irtækis eru að hanna flatan
skjá, sem býður áhorfendum
þá stórkostlegu nýjung að sjá
myndina í þrívídd.
Sérfræðingar á þessu sviði
telja, að Philips sé hugsanlega
svo langt á veg komið með til-
raunir sínar, að þrívíddartækin
verði komin á markað 1981.
Um það leyti renna út ýmsir
samningar Philips við aðrar
verksmiðjur um einkaleyfi til
framleiðslu á litsjónvarpstækj-
um.
Sjónvarpstækjamarkaður-
inn í Evrópu mun því verða
galopinn upp úr 1980. Jap-
anskir framleiðendur hafa
hingað til verið svo til útilok-
aðir frá markaðnum í V-Evrópu
með þeirri undantekningu þó,
að þeir hafa náð um 8% af
markaðsheildinni fyrir litsjón-
varp með minni tækjum sínum,
19 tommu og þaðan af minni.
Þar til nú hefur æviferill ham-
borgarans verið ein samfelld
frægðarsaga. Fyrstu hamborgar-
arnir voru seldir á heimssýning-
unni í St. Louis í Missouri-ríki í
Bandaríkjunum árið 1903. Það
segir sagan allavega. Þessi hand-
hægi aðalréttur varð fljótlega
partur af mataræði Bandaríkja-
manna. Það þurfti ekki mikla elda-
mennskuhæfileika til að hakka kjöt
og búa til bollu. Þaö var einfalt mál
að njóta hamborgarans fjarri mat-
borðinu, í bíl t.d. einhvers staðar
úti á hraöbrautum Ameríku.
Hamborgarinn hefur farið sem
stormsveipur um öll Bandaríkin og
er á góöri leiö með að ráðast á
matseðlana í flestum öðrum lönd-
um heims. Svo er veitingahúsa-
Japanir vilja hins vegar líka
koma stærri sjónvarpstækjum
sínum á markað í Evrópu.
Hyggja þeir á samstarf við
brezka framleiðendur í þeim
tilgangi. Risarnir á evrópska
sjónvarpsmarkaðnum myndu
sennilega standa af sér aukna
samkeppni en aðeins með
stórlega skertum hagnaði.
Philips er nú í fyrsta sæti með
sölu á þessu ári, sem nemur
tveim milljónum tækja, næst
kemur Grundig með 1.1 millj.
og AEG-Telefunken með 0.7 er
í þriðja sæti.
Ef Philips nær forystu í
framleiðslu á þrívíddartækjum
og fær sjónvarpsstöðvar til að
breyta sendistöðvum sínum,
reynist slíkt nauðsynlegt, er
hag þess fyrirtækis sæmilega
vel borgið í samkeppninni, því
að ótal möguleikar tif sölu á
einkaleyfum munu bjóðast
þegar og þar sem Philips kann
að óska.
keðjum eins og McDonalds fyrir aö
þakka.
Slæmar fréttir
Fyrir nokkru voru birtar slæmar
fréttir fyrir þessa amerísku upp-
finningu. Hópur efnafræðinga,
sem unnið hefur að rannsóknum í
tengslum við Washington Uni-
versity kynnti niðurstöður rann-
sókna sinna, sem leiða í Ijós, að
hamborgarar geta valdið krabba-
meini. Þegar hamborgarinn er
steiktur á járngrind eins og tíðkast
víðast á veitingastöðum, myndast í
honum svokallað ..mutagen", að
sögn vísindamannanna.
,,Mutagen“ getur leitt til breytinga
á genunum. Það hefur valdið
krabbameini í tilraunadýrum.
Hamborgarar
- hættulegir?
30