Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1978, Side 38

Frjáls verslun - 01.05.1978, Side 38
á fenf og flugi flfl opna landifl og vernda pafl Úr þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum. Þar er náttúra staðarins mjög fjölbreytt. Hann á sér mjög merka jarðsögu. Rætt viö Árna Reynisson, framkvæmdastjóra Náttúru- verndarráðs. Hlutverk Náttúruverndarráðs á sviði ferðamála er tvíþætt — að opna landið og vernda það. Þetta virðast í fljótu bragði vera and- stæður, einmitt þess vegna er það heillandi verkefni að aðstoða landsmenn við að njóta náttúr- unnar, fræöast um hana, reyna afl sitt við hana án þess að spilla þeim verðmætum sem okkur þykir hvað vænst um. Friðlýstir staðir á landinu öllu eru nú um 50. Sum landsvæöi eru friðuð af vísindalegum ástæðum m.a. votlendi og eyjar, en önnur eru svæði sem ferðamenn sækja mikið, og eru friðuð einkum til stuðnings við útivist og náttúru- skoðun almennings. Meðal þess- ara friðlanda eru Hveravellir, Herðubreiðarfriöland, Hvanna- lindir, Lónsöræfi, Hornstrandir og Vatnsfjörður. Þjóðgaröar íslands eru þrír: Þingvellir, Skaftafell og Jökulsárgljúfur. Árni Reynisson er framkvæmdastjóri Náttúruvernd- arráðs, og við hann spjallaöi F. V. um verkefni Náttúruverndarráðs og ýmsa markveröa staði á land- inu. Eyþór Einarsson, grasafræð- ingur, er formaöur Náttúruvernd- arráðs, en auk hans og varafor- manns eiga sæti í ráðinu sex menn og sex varamenn. Fjöldi ferðamanna á örfáum svæðum mjög mikill Náttúruverndarráö vinnur að því að sögn Árna, að friðlýsa fleiri svæði sem þjóðgarða eða frið- lönd, þar á meðal undir Jökli, um- hverfi Landmannalauga, umhverfi Tungnafellsjökuls, Þórsmörk og Kverkfjallasvæðið. Þá má nefna Skagann á milli Eyjafjarðar og Skjálfanda og Víkur og Loðmund- arfjörð fyrir austan, sem hafa svip- að gildi. — Við höfum áhyggjur af því, að fjöldi ferðamanna á nokkr- um svæðum er orðinn býsna mik- ill, m.a. vegna þess að álagsþol gróðurs, einkum á hálendinu er mjög lítið. Við höfum reynt að friða og hvíla vissa bletti, sem orðið hafa fyrir meiri ágangi en aðrir og vernda svæðin fyrir akstri. Við höfum gæslufólk á þessum stöð- um til að framfylgja verndarráö- stöfunum og einnig til að leiðbeina fólki. Það er brýn þörf að létta af þeim stöðum sem mest eru sóttir, einkum er talað um Þórsmörk, Landmannalaugar og Herðu- breiðarlindir í þessu sambandi. Það má gera bæði með því að rækta upp tjaldflatir utan náttúru- legu vinjanna og með því að vekja athygli á fleiri stöðum. Flest um- hverfisvandamál á stöðum ferða- manna má rekja til bílsins, og einn þýðingamesti liðurinn í áætlunum okkar er því að efla gönguferðir sagði Árni Reynisson. Þjónustustöð reist í Ásbyrgi Þjóðgarðurinn við Jökulsár- gljúfur var stofnaður 1973. Þjóð- garðurinn nær með Jökulsá að vestan, frá Dettifossi niður á miðj- an Sand, um 35 km vegalengd, en flatarmál hans er um 100 km2. Jörðin Ásbyrgi er í eigu hins opin- bera og sá staður er mjög rómaður fyrir náttúrufegurð. Ásbyrgi hefur veriö í umsjá Skógræktar ríkisins frá 1928. Nú er fyrirhugað aö Ás- byrgi verði hluti af þjóðgarðinum, en þó áfram [ eigu Skógræktar- innar. Ákveðið er að koma upp þjónustustöð þjóðgarðsins í mynni 38

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.