Frjáls verslun - 01.05.1978, Síða 56
Guðmundur Jónasson hf:
I byggöum og óbyggðum
Miönætursólarflug til Gríms-
eyjar er heillandi ferð, sem Vængir
bjóða upp á. Lagt er upp frá
Reykjavík kl. 19.00 að kvöldi. Á
leiðinni norður er millilent á Siglu-
firði. Þegar komið er til Grímseyjar
er eyjan skoðuð, en í eyjunni er
fuglalíf mjög fjölbreytt og margt er
að sjá og skoða.
Flugferðir til Mývatns hafa notið
mikilla vinsælda, ekki hvað síst hjá
útlendingum, enda er staðurinn
rómaður fyrir náttúrufegurö. Aö
Mývatni er flogið daglega á sumr-
in, tvær ferðir á dag um helgar.
Vængir hafa yfir að ráða tveimur
Twin Otter flugvélum 19 sæta og
tveimur Islander 9 sæta vélum, auk
smærri vélar, og leigðar eru vélar
eftir þörfum.
Flugfélagið Vængir flýgur mikiö
innanlands í leiguflugi eins og
áður sagði en auk þess til Færeyja
og Grænlands.
Guðmundur Jónasson hf. sér-
leyfis- og hópferðarbifreiðir er
landsþekkt fyrirtæki fyrir ferðir
sínar með íslendinga og erlenda
ferðamenn undanfarna tvo áratugi
a.m.k.
[ sumar verða farnar 12 og 13
daga ferðir um byggðir og
óbyggðir landsins. Fyrstu 12 daga
ferðirnar hefjast 18. júní og fariö
verður á hverjum sunnudegi í
sumar fram til 20. ágúst, en þá
hefst síðasta ferðin.
Ferðatilhögun 12dagaferðanna
er í aöalatriðum þannig, að ekið er
frá Reykjavík um Kaldadal að
Húsafelli, þaðari til Akureyrar í
Tjörnes og Hljóðakletta aö Detti-
fossi, Heröubreiöarlindum inn í
Öskju og aftur að Herðubreiðar-
lindum og ekið að Mývatni þar sem
dvalist er í tvær nætur. Eftir það er
haldið suður Sprengisand í Nýja-
dal, sem er við Tungnafellsjökul,
komið í Landmannalaugar að Eld-
gjá og aftur í Landmannalaugar,
Ekið er síðan sem leiö liggur að
Gullfossi og Geysi og að Laugar-
vatni, en þaðan til Reykjavíkur.
Farið er í fyrstu 13 daga feröina
25. júní og í þá síðustu 6. ágúst.
Ekið er frá Reykjavík að Skaftafelli,
þar sem gist er í tvær nætur og
dvalist viö náttúruskoðun og
gönguferðir. Frá Skaftafelli er
haldið til Hafnar í Hornafirði og
þaðan í Hallormsstaðaskóg. Síöan
er haldið inn í óbyggðir nánar til-
tekið í Kverkfjöll norðan í Vatna-
jökli. Úr Kverkfjöllum er ekið aö
Mývatni, dvalist þar í tvo daga og
umhverfið skoðaö, þetta umhverfi,
sem hefur heillað útlending svo
mikið. Loks er ekið suður
Sprengisand í Nýjadal, Land-
mannalaugar að Eldgjá, aftur í
Landmannalaugar og til Reykja-
víkur.
Átlu leið um Snœf ellsnes?
í Ólafsvík
starfar
sumarhótel.
Erum einnig með
opið yfir veturinn.
Snæfellsnes er
frægt fyrir
stórbrotið
og fagurt
landslag.
SKOÐIÐ
SNÆFELLSNES
GISTIÐ
HJÁ OKKUR
38 vel búin tveggja manna herbergi.
Vistlegur matsalur.
Heimilislegur matur, kaffi og kaffibrauð, grillréttir allan
daginn.
Þægileg setustofa þar sem spjallað er saman og horft á sjón-
varp.
SJÓBÚÐIR HF.
Ólafsvík — Sími (93) 6300 og 6304
56