Frjáls verslun - 01.12.1978, Síða 9
Þorsteinn Pálsson, ritstjóri hefur verið ráð-
inn forstjóri Vinnuveitendasambands íslands,
frá og með 1. mars 1979 að telja.
Þorsteinn Pálsson er fæddur á Selfossi 29.
október 1947. Hann tók stúdentspróf frá Versl-
unarskóla íslands 1968. Stundaði hann síöan
nám við lagadeild Háskóla íslands og lauk
laganámi vorið 1974.
Jafnhliða námi starfaði Þorsteinn sem
blaðamaður á Morgunblaðinu, eða frá 1970, og
skrifaði þá einkum um stjórnmál.
Að loknu embættisprófi varð hann fastráðinn
blaöamaður við Morgunblaöið, og starfaði þar
fram til sumars 1975, en þá varð hann ritstjóri
dagblaðsins Vísis.
— Starf mitt, sagði Þorsteinn Pálsson,
veróur að veita forstöðu Vinnuveitendasam-
bandi íslands, en á því hvílir öll gerð kjara-
samninga fyrir vinnuveitendur. Vinnuveitenda-
sambandið er einnig málsvari í hagsmunamál-
um atvinnufyrirtækjanna í landinu.
Meðlimir í VSÍ eru nú 3.822, og hefur aukning
á fjölda meðlima frá árslokum 1974 verið 54%. í
Vinnuveitendasambandinu eru fyrirtæki í öllum
atvinnugreinum, um landið allt, ýmist meðlimir í
gegn um hin ýmsu sérgreinasambönd eins og
t.d. Félag íslenskra iðnrekenda og Samband
fiskvinnslustöðva, eða sem meðlimir einstakra
vinnuveitendafélaga á tilteknum stöðum, eins
og t.d. Akureyri og Vestmannaeyjum. Einnig
eru þess dæmi að einstök fyrirtæki séu beinir
meðlimir innan VSÍ.
Vinnuveitendasamband íslands var stofnað
1934. Nú starfa alls á skrifstofu sambandsins
12 manns, og skiptist starfsemin í samninga-
deild, hag- og tæknideild, en VSÍ hefur einnig
með höndum mikla útgáfustarfsemi.
Valdimar K. Jónsson, prófessor við Háskóla
íslands er nú tekinn við formennsku í Bandalagi
háskólamanna, BHM.
— Kjaramálin og sú launaskerðing, sem við
höfum orðið fyrir eru efstu mál á baugi hjá
okkur, sagði Valdimar. Við viljum mótmæla
þessu þaki, sem sett hefur verið á, og viljum
ekki viðurkenna 5% vísitöluskerðingu vegna
lækkunar skatta á láglaunafólk og þessar fé-
lagslegu umbætur, vegna þess, að ekkert
samráð hefur verið haft við okkur varðandi
þetta mál, bætti hann við.
Valdimar er fæddur í Hnífsdal í Norður-lsa-
fjarðarsýslu 20. ágúst 1934. Hann tók stúd-
entspróf frá Menntaskólanum á Akureyri, og
fyrrihluta verkfræðiprófs frá Háskóla íslands
1957. Hann tók vélaverkfræðipróf 1960 frá
Verkfræðiháskóla Kaupmannahafnar, og fór
síðan til framhaldsnáms til Bandaríkjanna og
tók doktorspróf frá háskólanum í Minnesota
1965.
1965—69 stundaði Valdimar kennslu við
Lundúnaháskóla, en sneri síðan til Bandaríkj-
anna á ný, og var prófessor við ríkisháskólann í
Pennsylvaníu til 1972, en þá sneri hann heim
og tók við prófessorsstöðu í verkfræði- og
raunvísindadeild Háskóla íslands.
Bandalag háskólamanna, sem Valdimar er
formaður í hefur nú starfað í 20 ár, og er Valdi-
mar sjöundi formaður þess. BHM beitir sér fyrir
ráðstefnu einu sinni á ári, um málefni er varða
háskólaborgara og þjóðfélagið í heild. Gekkst
félagið m.a. á síðastliðnu hausti fyrir einni slíkri
ráðstefnu um launamál og verður önnur ráð-
stefna haldin á haustinu 1979.
Sagöi Valdimar, að þessi fimm manna stjórn
BHM héldi stjórnarfundi vikulaga. Ákvæöi í
lögum þess kveða á um, að enginn megi sitja í
stjórn lengur en tvö kjörtímabil, eöa fjögur ár.
§
II'
9