Frjáls verslun - 01.12.1978, Qupperneq 12
STIKLAÐ Á STORU...
Norræn matvælarannsókna-
nefnd
Island hefur nýlega gerzt aðili að
norrænu matvælarannsókna-
nefndinni, sem starfað hefur í mörg
ár með þátttöku Danmerkur, Finn-
lands, Noregs og Svíþjóðar.
Hlutverk nefndarinnar er að þróa
og samræma aðferöir við matvæla-
rannsóknir.
Innan nefndarinnar eru starfandi
nokkrar undirnefndir, hver á sínu
sviði. Ein þeirra fjallar um aðferðir
til rannsókna í matvælagerlafræði
og önnur um eiturefni í matvælum.
Auk þeirra eru svo nefndir, sem
vinna að aðferðum til ákvörðunar á
aukaefnum og til mælinga á
ýmsum næringarefnum í mat.
Á vegum Heilbrigðisráðuneytis-
ins hefur verið starfandi vinnuhóp-
ur til undirbúnings þátttöku Islands
í nefndinni, og hefur hann unnið
undir stjórn Ingimars Sigurðsson-
ar, deildarstjóra.
Kynnisferðir kaupmanna
Sem þátt í þeirri viðleitni Félags
ísl. iðnrekenda, að auka tengsl
kaupmanna og framleiðenda,
ákvað stjórn félagsins að efna til
tveggja kynnisferða kaupmanna í
iðnfyrirtæki á ári hverju. Ferðir
þessar hafa verið skipulagðar í
samstarfi við Kaupmannasamtök
íslands. Á þessu ári hafa verið
farnar tvær ferðir, í apríl og sept-
ember. I hvorri ferð voru þátttak-
endur 20 talsins. Kynnisferðirnar
hófust klukkan 09:00 að morgni og
stóðu til klukkan 19:00 síðdegis.
Hvorn daginn voru heimsótt 6 iðn-
fyrirtæki, starfsemi þeirra kynnt ít-
arlega fyrir kaupmönnum og efnt til
stutts umræðufundar, þar sem
framleiðendur sátu fyrir svörum.
Verðhækkanir á innyflum
I nóvemberbyrjun voru fluttar út
um 162 smálestir af innyflum til
manneldis í Bretlandi. Mjög mikil
verðhækkun fékkst frá árinu áður,
t.d. á lifur, sem hækkaði úr 28
pence pundið í 58 pence nú. Er
þetta talin ánægjuleg breyting á
þessum markaði, þar sem illa hefur
gengið að fá nokkrar verðhækkanir
á þessum vörum síðastliðin ár. Auk
þess voru í sömu ferð sendar 149
smálestir af frystum lungum til
Bretlands. Á þeim fékkst nokkur
hækkun frá fyrra ári, eða 27 pence
á kg í stað 24 pence árið áður.
Þá hafa fryst lambaeistu einnig
verið flutt út í nokkrum mæli, nú
síðustu árin til Bandaríkjanna,
þangað sem fóru 48 smálestir af
framleiðslunni 1977. f haust fékkst
einnig umtalsverð hækkun á þeim,
og eru þau nú seld á 85 cent pund-
ið, en hæsta sala síðasta ár var 61
cent. Virðist vera vaxandi eftir-
spurn eftir þessari vöru.
Erlend umboðslaun Sam-
bandsins
Umboðslaun, sem íslenzkir inn-
flytjendur fá frá erlendum við-
skiptafyrirtækjum sínum, hafa verið
nokkuð til umræðu manna á meðal
undanfarið. Af þeirri ástæðu var
lagt fram á blaðamannafundi, sem
stjórnarformaður og forstjóri Sam-
bandsins héldu 27. nóv., yfirlit um
umboðslaun í Innflutningsdeild árið
1977.
Þar kemur fram, að umboðs-
launin námu 125,3 millj. kr. hjá
Búsáhaldadeild, Vefnaðarvöru-
deild og Birgðastöð. Sala þessara
deilda var hins vegar samtals
1.480,9 millj. kr. og nema umboðs-
launatekjurnar því 8,5% af henni.
Það er þó tekið fram, að í þessari
tölu eru innifalin umboðslaun af
sölu til annarra aðila eh kaupfélag-