Frjáls verslun - 01.12.1978, Side 15
ordspor
Athygli hefur vakiö að leiðtogar Alþýðu-
bandalags og Sjálfstœðisflokks hafa hvatt
flokksmenn sína til að vera viðbúnir
kosningum á næsta ári. Þingmenn Al-
þýðuflokksins hafa verið í startholunum
að því er virðist þessa mánuði, sem liðnir
eru af þingtímanum. Nú er enn meiri al-
vara á ferðum en nokkurn tíma fyrr, segja
þeir, sem fylgjast með gangi mála hjá
þingflokki A Iþýðuflokksins. Vilmundur
Gylfason er þegar farinn að búa sig undir
kosningaátök á nœstu mánuðum og mun
hafa farið fram á leyfi frá kennslu í
Menntaskólanum þegar líða tekur á vet-
urinn í því augnamiði að hevja kosninga-
haráttu.
Margar sögur hafa verið sagðar um
samninga leikara við sjónvarpið og hvað
leikarar fái fyrir snúð sinn vegna fram-
komu í sjónvarpsleikritum. Blöðunum
hefur gengið erfiðlega að fá nákvæmar
upplýsingar um taxta enda hefur hvor-
ugur aðili viljað tjá sig um það.Birgir ísl.
Gunnarsson, fyrrverandi borgarstjóri,
tók þátt í örstuttu atriði í áramótaskaupi
sjónvarpsins fyrir skömmu. Hann sagði
frá vþí síðar í gamansömum tón að hann
hefði verið búinn að gleyma þessu þar til
hann fékk senda ávísun frá útvarpinu, 50
þúsund krónur vegna framkomu í ára-
mótaskaupi, — samkvæmt taxta Félags
ísl. leikara!
Þeir sem fylgjast með stjórnmálaskrifum
blaðanna hafa um nokkurt skeið velt því
fyrir sér hver greinahöfundurinn Dufgus í
Tímanum vœri. Sérfrœðingar vorir segja
að loknum ítarlegum rannsóknum á úr-
taki hugsmíða þessa höfundar, að á bak
við nafnið Dufgus leynist Jón Helgason,
fyrrverandi ritstjóri Tímans.
Þeir Landsbankamenn vöknuðu upp við
illan draum fyrir nokkru. Úr landi var
flogin flugvél frá flugfélaginu Vængjum,
sem sagt er að bankinn hafi átt 60 milljón
króna veð í. Vélin hafði verið seld til
Bandaríkjanna en bankinn hafði veitt
flugfélaginu lánafyrirgreiðslu gegn veði í
umræddri fiugvél. Nú mun almennt gilda
samkomulag milli íslands og annarra
landa um meðferð slíkra mála þannig að
bankinn ætti áfram kröfu í flugvélina —
með þeirri undantekningu þó að slíkt
samkomulag mun ekki gilda við Banda-
rikin. Er því óljóst hver úrslit þessa máls
verða.
Fyrirtækið Hagkaup, sem rekur um-
fangsmikla verzlun i Reykjavík hefurhaft
í undirbúningi að setja á stofn verzlunar-
fyrirtæki á Akureyri. Hafa samningar
staðið yfir við forstöðumenn bílaverk-
stæðisins Baugs um að Hagkaup fengi
aðstöðu í húsnœði þess. Það fylgir sög-
unni að þessi þróun mælist að sjálfsögðu
mjög illa fyrir hjá forráðamönnum
Kaupfélags Eyfirðinga, sem ekkert kœri
sig um að fá slíkan keppinaut sem Hag-
kaup inn í sitt umdœmi. Samkvœmt
áreiðanlegum fréttum að norðan hefur
KEA tjáð sig reiðubúið til að ganga inn í
hvaða tilboð sem Hagkaup gerir Baugs-
mönnum um kaup á verkstœðisskemm-
unni.
15