Frjáls verslun - 01.12.1978, Qupperneq 19
anna í vináttulandsleikjum, aö viö
greiðum flugfar og annan kostnaö
frá Kaupmannahöfn, og þeir taka
við okkur í Kaupmannahöfn. Tekj-
ur HSI hafa m.a. minnkað mjög
mikið vegna þess, hve uppihalds-
kostnaður hefur hækkað gífur-
lega, og er allt frá 700 þúsund upp
í eina milljón fyrir eitt lið, eftir því
hve marga daga það er hér.
Ef hins vegar er um heims-
meistarakeppni eða Olympíu-
keppni að ræða greiða liðin sjálf
kostnað við ferðir og uppihald.
18 milljónir í fjáröflun.
Brúttófjáröflun Handknattleiks-
sambands íslands, fyrir utan styrki
og tekjur af landsleikjum voru 18
milljónir á síðasta starfsári, en
reikningar sýndu rúmlega 3 milljón
króna rekstrarhalla.
— íþróttaforystumenn eru betl-
ararnir á (slandi sagöi Júlíus og
kvað skýrt að orði. Þeir starfa allir í
sjálfboðavinnu og eyða miklu af
frítíma sínum í þetta starf, og
styrkja oft íþróttastarfið af eigin fé.
Sagðist hann búast við mann-
eklu í framtíðinni í störf forystu-
manna í íþróttahreyfingunni, því
fáir vildu taka við störfum sem
byggðust á endalausu betli og
rukkunum og oft bæru stjórnar-
menn persónulega ábyrgð á
skuldum gagnvart viðkomandi
lánadrottnum.
Sama fjárveiting og s.l. ár hjá rík-
inu.
Niðurstöðutölur rekstrarreikn-
inga HSÍ á s.l. ári voru 38 milljónir
króna, og sagöi Júlíus að sú tala
mundi örugglega hækka nú á
þessu ári.
Á fjárlögum 1979 er gert ráð fyrir
60 milljón króna fjárveitingu til ÍSÍ,
en það er sama upphæð og var á
fjárlögum fyrir árið 1978. — Þetta
sýnir skilningsleysi stjórnvalda í
landinu gagnvart íþróttahreyfing-
unni í landi þar sem 35-50% verð-
bólga er á ári, og greinilegt, að
stjórnmálamenn vanmeta þátt
íþróttahreyfingarinnar til heil-
brigðis, hollustu og uppeldis æsk-
unnar í landinu. Af þessari upp-
hæð fékk HSÍ nú á þessu ári 1700
þúsund krónu útbreiðslustyrk og 2
milljónir úr afreksmannasjóði. En
'samanlagt dugar það fyrir einni
ferð af fjórum til ’frnrTm og þá eru
eftir allir aðrir þættir, svo sem
húsaleiga, sem er 1-1,5 milljónir á
ári, þjálfaralaun, útbreiðslustarf,
almennur rekstur o.s.frv. o.s.frv.
Það er því augljóst, að þessi
styrkveiting, þó sumum finnist
mikil, ristir ekki djupt í starf HS(.
Bestu leikmennirnir erlendis.
— Það hefur verið vandamál í
handknattleiknum, að allir okkar
bestu leikmenn eru erlendis. Það
gerir það að verkum, að við höfum
ekki getað stillt upp okkar sterk-
asta liði. Okkur hefur reynst ókleift
að fá þá alltaf til leiks, vegna
kostnaðarins, sem það hefur í för
með sér.
Nú er framundan undankeppni
fyrir Olympíuleikana 1980, og fer
hún fram á Spáni. Þar eiga íslend-
ingar að mæta Tékkum og (srael-
um, og sagði Júlíus, að ísland ætti
að eiga góða möguleika. Tvö efstu
liöin komast áfram í átta liða úr-
slitin, og sagði hann að ef íslandi
vegnaði vel myndi það verða lyfti-
stöng fyrir handknattleiksíþróttina
og HSÍ um leið, því forsenda
Vöruflutningar
Kristjáns og
Jóhannes
Borgartúni 8 Sauðárkróki
sími 95-5622
Vöruflutningar milli Reykjavíkur og Sauðárkróks.
Umboð fyrir Coca Cola og ölgerðina Egil Skalla-
grímsson.
Afgreiðsla í Reykjavík:
Vöruflutningamiöstööin
Borgartúni 21.
19