Frjáls verslun - 01.12.1978, Side 20
tekjuöflunar væri góöur árangur á
íþróttasviðinu.
Heildarútgjöld Reykjavíkurborgar
um 316 milljónir.
Heildarútgjöld Reykjavíkurborg-
ar til íþróttamála á þessu ári eru
um 316 milljónir króna, m.a. til
byggingar íþróttahúsa, sund-
lauga, uppbyggingar á Bláfjalla-
svæöinu o.fl.
Beinir styrkir Reykjavíkurborgar
af þessari fjárupphæð til íþróttafé-
laga í formi rekstrar-, kennslu- og
byggingastyrkja eru 130 milljónir.
Um stuöning Reykjavíkurborgar
viö íþróttahreyfinguna haföi Júlíus
þetta að segja: — Á sama tíma og
ríkisvaldið hefur sýnt skilnings-
leysi á málefnum íþróttahreyfing-
arinnar í landinu, hafa ráðamenn
Reykjavíkurborgar kunnað að
meta starf íþróttafélaganna í
borginni, sýnt skilning á vanda-
málum okkar og styrkt okkur í sí-
auknum mæli. Á síðustu 10-15 ár-
um hafa orðið stórkostlegar breyt-
ingar á íþróttaaðstöðu hér í
Reykjavík til hins betra, og er þess
skemmst að minnast, að á s.l.
sumri var tekinn í notkun nýr
glæsilegur íþróttavöllur, sérstak-
lega hannaður með tiliiti til frjáls-
iþrótta, lagður gerviefni á hlaupa-
og stökkbrautum, sem stenst
kröfur þess er best þekkist er-
lendis.
Þess er einnig vert að geta, að
innan skamms tíma verður tekin í
notkun stórglæsileg stólalyfta í
Bláfjöllum, skíðafólki sem öðrum
er unna útiveru í íslenskri náttúru
til mikillar ánægju.
Það er ekkert launungarmál, að
borgaryfirvöld hafa haft hvetjandi
áhrif á íþróttastarfið, enda hafa
helstu forystumenn íþróttahreyf-
ingarinnar setið í borgarstjórn á
s.l. tíu árum, menn eins og Albert
Guðmundsson, Gísli Halldórsson
og Úlfar Þórðarson.
Ef þeir, sem nú stjórna málefn-
um Reykjavíkurborgar styðja jafn
vel við bakið á félögum í borginni
og hingað til hefur verið gert, og
stuðla um leið að þeirri jákvæðu
þróun sem átt hefur sér staö á
íþróttasviðinu, þá má íþróttahreyf-
ingin í Reykjavíkurborg vel við
una. Satt að segja hef ég alla trú á
að svo muni verða, sagði Júlíus að
lokum.
Vestur-Húnvetningar!
Það er
LÁN
að skipta við
Sparisjóðinn
Sparisjóðurlnn annast öll venjuleg sparlsjóðs-
viðskipti, svo sem ávöxtun sparlfjðr á almennum,
6 mánaða, 12 mánaða og 10 ára sparlsjóðsbók-
um svo og á vaxtaaukarelknlngum.
Einnig annast sparlsjóðurinn hverskonar Inn-
heimtur, heflr umboð fyrlr Lífeyrlssjóð verka-
manna, annast útborgun bóta frá Trygglnga-
stofnun rfklsins og heflr tll lelgu öryggishólf tll
afnota fyrlr vlöskiptamenn.
Vestur Húnvetningar.
Efllð ykkar eigin lánastofnun, og gerlð hana
þannlg færa um að elga æ ríkarl þátt I uppbygg-
Ingu atvlnnulífs og hverskonar hagsmuna hér-
aðsbúa.
Afgreiðslutími:
Alla vlrka daga kl. 11—12 og 13—16.30.
Sparisjóður Vestur-Húnavatnssýslu
Hvammstanga — Sfmar 1310-1410
BLÁFELL
Skagfiröingabraut 29
Sími: 95-5168
Sauðárkrókur
Verslun og kvöldsala.
Almenn þjónusta víð ferðamenn.
Algengar vörur fyrir ferðamenn.
Sælgæti, pylsur, samlokur, öl, gos, ís,
kaffi, dagblöð, niðursuðuvörur, juice,
harðfiskur o.fl.
Filmur.
Hamborgarar og heitar samlokur fram- .
reitt beint í bílinn.
Ferðamenn ætíð
velkomnir.
20