Frjáls verslun - 01.12.1978, Blaðsíða 27
Konur kaupa dýrari og vandaðri
fatnað- en sjaldnar.
Brynja og Valgerður Gunnarsdóttlr í Urðl.
meira fyrir fatnaö sem er vandaður
þó hann sé dýrari. Þær kaupa sér
aftur á móti sjaldnar fatnað. Einnig
finnst mér konur kaupa meira af
sportlegum fötum þ.e. fatnaði
sem hefur meira notagildi og þær
geta notað við mörg tækifæri.
Mondy-fatnaður er svokallaður
samstæður fatnaður þ.e. hver flík
gengur við aðra. Við höfum því
okkar föstu viðskiptavini sem
koma aftur og aftur."
Gott að versla
við Þjóðverja
,,Það er svolítið erfitt að flytja inn
frá Þýskalandi, því þýska markið
hefur hækkað mjög að undan-
förnu. Að öðru leyti er gott að
skipta við Þjóðverja því þeir eru
kröfuharðir við sjálfa sig og allt
| stendur hjá þeim eins og stafur á
bók. Við fluttum inn vörur frá Bret-
landi áður en vorum ekki nógu
ánægð með gæðin. Við viljum
fremur vera með vöru eins og frá
Mondy sem er fyrsta flokks bæöi
hvað varðar efni og frágang þótt
hún sé dýrari."
Mondy fatnaður á íslandi er
seldur á sama verði og í fram-
leiðslulandinu Þýskalandi. Aftur á
móti er fatnaðurinn dýrari á hinum
Norðurlöndunum vegna þess að
smásöluálagning er þar 100% í
þessum löndum.
En hvernig er að reka tísku-
verslun í Kópavogi? ,,Hér er góður
grundvöllur fyrir tískuverslun og
virðist hafa vantað slíka verslun
eftir að bæjarfélagið tók að
stækka svona ört. Einnig virðist
fólk sem býr í Reykjavík ekki
setja fyrir sig vegalengdina,"
sagði Brynja að lokum.
— rætt viö Brynju Pét-
ursdóttur í versluninni
Urði, Kópavogi.
„Við flytjum aðallega inn fatnað
frá Þýskalandi frá fyrirtækinu
Mondy, sem framleiðir mjög
vandaðan og skemmtilegan fatn-
að,“ sagði Brynja Pétursdóttir
eigandi verslunarinnar Urður að
Hamraborg 1, Kópavogi.
„Mondy-fatnaður er töluvert dýr
en gæðin eru líka eftir því góð. Mér
finnst konur nú á dögum vilja gefa
27