Frjáls verslun - 01.12.1978, Side 36
Kaupsýslumenn kvarta
— Fleiri ferðast með Concord
Allir hafa heyrt um þær miklu
verðlækkanir sem orðið hafa á
flugferðum og þau margvíslegu
sérfargjöld, sem á boðstólnum
eru. Sérstaklega hefur verið mikið
um þau í Bandaríkjunum. Af öllu
þessu hefur leitt, að farþegafjöldi
hefur farið mjög vaxandi.
Ferðamenn, sem ferðast í við-
skiptaerindum, eru uppistaðan í
flugferðum og hafa margir þeirra
kvartað sáran yfir þeim töfum og
öðrum þrengingum, sem þeir hafa
orðið fyrir af þessum sökum. Þeir
borga yfirleitt fullt verð fyrir far-
miða sína og sárnar því eðlilega að
verða að standa í biðröðum með
fólki, sem ef til vill greiðir helming
þess, sem þeir gera í fargjald.
Þrenns konar farmiðar.
Flugfélög í Bandaríkjunum
reyna nú að bregðast við þessu
með því að koma á þriggja farmiða
kerfi í flugvélum. Þeir sem sitja
aftast borga margvísleg sérfar-
gjöld og fá minni þjónustu, ekki
frátekin sæti, verri mat og verða að
sætta sig við að þeirra sæti séu
fyllt fyrst. Sé eitthvaö rými aflögu,
er það notað til að aðrir farþegar
geti haft rýmra um sig og þá sér-
staklega lögð áhersla á að þjón-
usta sé betri og greiðari, bæði á
jöröu niðri og í lofti. Fremst sitja
svo þeir fáu, sem ferðast á fyrsta
farrými.
Þá er farþegum á þessu millifar-
rými oft veitt ókeypis vín, val um
tvo rétti í mat, og leyft að fara með
meiri farangur inn í flugvélina. Enn
önnur flugfélög hafa tekið þá
stefnu, að lækka fargjöld á fyrsta
farrými, þanníg að þau séu aðeins
20% hærri en hjá öðrum.
Concord-þjónusta best.
Verst hefur þó ástandiö orðið á
leiðum yfir Atlantshaf. Nú er svo
komið að flestir kaupsýslumenn,
sem eiga þess kost, reyna að
ferðast með hljóðfráu þotunni
Attention bi tsiness fliers:
Whenyott travel
on Amefican Airlines
YOU GET
WHATYOU
BWIOR.
Nowifu/l fare treatmentfor
thefuílfaie passenger.
Including a special
Coach section forfull, fare
passengers only.
Concord. Þeir segja að þar sé
þjónustan best. Vélin er helmingi
fljótari í ferðum, sem sparar þeim
Roy Hattersley, ráðherra verð-
lagsmála í Bretlandi, er íslend-
ingum kunnur, síðan hann kom
hingað til viðræðna við íslenska
ráðamenn um landhelgismál fyrir
nokkrum árum. Hann hefur nú
skotið auglýsendum í Bretlandi al-
varlega skelk í bringu, þar sem
hann hefur hótað að setja opin-
berar takmarkanir á auglýsingar, í
öllum fjölmiðlum.
Hann kvaðst helst ekki vilja
neyða auglýsendur til eins eða
annars en nauðsynlegt yrði að
setja þeim reglur, ef þeir ekki
gerðu vissar lagfæringar af sjálfs-
dáðum.
Kvartanir hans eru tvær. Ann-
arsvegar telur hann auglýsingar
ekki efnahagslega æskilegar,
nema stundum, og hinsvegar telur
hann að þær séu oft ekki félags-
lega ábyrgar. Hann sagði fyrir
skömmu í ræðu, að enginn drægi
I mikla þreytu og þar er auðvelt að
fá staðfestar pantanir, sem stand-
| ast.
Tvær hliðar á málinu
,,Tvær hliðar eru á þessu máli.
Með öryggi má halda því fram að
öllum gæðum fylgi hugsanlega
einhverjir gallar. Auglýsendur geta
birt bæði rangar og villandi upp-
lýsingar. Þeir geta haldið gang-
andi úreltri framleiðslu, losað fyr-
irtæki við gamlar birgðir og tafið
fyrir því að ný framleiðsla komi á
markaðinn og að nýjungar séu
framleiddar. Þá geta auglýsing-
arnar sjálfar og framleiósluvör-
urnar, sem þær kynna, haft slæm
áhrif á lífið og umhverfið."
Hattersley segist telja, að stofn-
un auglýsenda, sem á aö fylgjast
með að þeir fari rétt með og gæti
siðgæðis, hafi ekki nægileg völd
og geti því ekki gengið nægilega
langt. Hann segist loks hafa
áhyggjur af auglýsingum fyrir börn
og aðra viðkvæma hópa, svo sem
fátækt fólk.
Breskum auglýsendum
það í efa að auglýsingar gegndu
mikilvægu hlutverki í viðskiptalíf-
inu og sagði síðan:
36