Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1978, Page 41

Frjáls verslun - 01.12.1978, Page 41
Vísitölureikningsskil Grein eftir Símon Asgeir Gunnarsson, viðskiptafræðing Á undanförnum árum hafa notendur og semj- endur reikningsskila í síauknum mæli gert sér grein fyrir hversu vanmáttugt tæki hefðbundin reikningsskil eru við verðbólguaðstæður. Árs- reikningar fyrirtækja eru settir fram eftir reglum sem miðast við að verðlag sé stöðugt, þannig að ekki er tekið tillit til mismunandi verðgildis mæli- einingarinnar sem notuð er, krónunnar. Þær upplýsingar sem fram koma í ársreikningum eru með örfáum undantekningum byggðar á upp- runalegu kostnaðarverði og Ijóst er að slíkar upplýsingar hafa síminnkandi gildi þegar verðlag tvöfaldast á tveggja ára fresti eins og gerst hefur hér á landi síðastliðin ár. Erlendis hefur viðleitni í þá átt að bæta úr þess- um vanköntum hefðbundinna reikningsskila eink- um beinst að efnahagsreikningnum, þar sem þær upplýsingar sem í honum koma fram eru eðlilega eldri og þar með fjær raunveruleikanum en upp- lýsingar rekstrarreikningsins. Við óðaverðbólgu- aðstæður eins og verið hafa hér á landi að und- anförnu koma gallarnir ekki síður fram á rekstrar- reikningi og er af þeim sökum enn ríkari ástæöa til að viðhafa aðgerðir til leiðréttingar, þar sem not- endum reikningsskila veitist erfiðara að átta sig á brenglaðri mynd rekstrarreikningsins en efna- hagsreikningsins. Hér á landi ríkja þær aöstæður að engar form- legar reikningsskilareglur eru til nema þær sem bókhalds- og skattalög setja. Ársreikningar fyrir- tækja eru því í svo til öllum tilfellum skattaleg uppgjör og hefur lítil hreyfing verið hér á landi í þá átt að aðlaga reikningsskilin breyttum aðstæð- um þjóðlífsins. Ég tel nauðsynlegt að vekja íslenska lesendur og notendur reikningsskila til umhugsunar um hversu alvarlegt vandamálið er orðið. Erlendis telja færustu menn að nauðsynlegt sé að hafa uppi aðgerðir til leiðréttingar hefðbundinna reiknings- skila þótt verðbólgan sé ekki nema tíundi hluti þess sem hún hefur veriö hér á landi að undan- förnu. Því tel ég knýjandi að reyna að gera sér grein fyrir hvaða aðferðir við getum notað til að komast nær hinni ,,réttu“ mynd sem reiknings- skilunum er ætlað að gefa. Ein þeirra aðferða sem nota má til að leiðrétta þær villandi upplýsingar sem hefðbundin reikn- ingsskil geta veitt um afkomu og stöðu fyrirtækja hefur á ensku ýmist verið nefnd „General Price- level Accounting" eða „General Purchasing Power Accounting". Á íslensku tel ég eðlilegast að kalla slík reikningsskil annaðhvort „vísitölu- reikningsskil" eða „kaupmáttarreikningsskil" og mun ég hér á eftir nota hið fyrrnefnda. I sem skemmstu máli má segja að vísitölureikn- ingsskil feli í sér að allar fjárhæðir sem í þeim koma fram eru á jafngildu verðlagi. Til þess að umreikna fjárhæðir hefðbundinna reikningsskila þarf því að komast að á hvaða tíma þau viðskipti fóru fram sem að baki fjárhæðunum liggja og hver vísitalan sem miöað er við var á þeim tímamörkum. Með margföldun er fjárhæðin síðan umreiknuð til þess verðlags sem í gildi er á uppgjörsdegi. Þó ber að gæta þess að þetta á ekki við óefnislega (mone- tary) liði efnahagsreikningsins þar sem þeir liðir koma fram í hefðbundnum reikningsskilum á nafnveröi sínu og verðgildi þeirra á uppgjörsdegi er einungis það sem fjárhæðirnar sýna. Af þessu má þó ekki draga þá ályktun að vísi- tölureikningsskilin líti svo á, að verðbreytingar hafi engin áhrif á óefnislega liði efnahagsreikningsins. Þvert á móti er vakin sérstök athygli á þeim hagn- aði eða tapi sem fyrirtækin verða fyrir vegna minnkandi verðgildis peninga og þeirra krafna sem veita rétt til innheimtu eða kvöð til greiðslu peninga. Nokkrar meginreglur vísitölu- reikningsskilanna 1. Reglum hefðbundinna reikningsskila er beitt við vísitölureikningsskil að öðru leyti en því að í vísitölureikningsskilum er tekið tillit til almennra 41

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.