Frjáls verslun - 01.12.1978, Page 48
treysta okkur, viö veröum aö sýna í gegnum áranna rás,
aö viö séum trausts veröir, Viö verðum dæmdir eftir þvi
sem viö gerum, fremur en því sem viö segjum. Fólk
verður aö læra af reynslu, aö það sem viö segjum er
sannleikur og þaö sem viö lofum aö gera gerum viö. Einn
veikleiki nútíma iönreksturs er, hve oft og hratt fyrirtæki
skipta um eigendur. Fyrirtæki A er keypt af fyrirtæki B,
sem viö vitum aö er dótturfyrirtaeki C, sem er í hættu aö
veröa yfirtekið af fyrirtæki D.
Oft er okkur sagt, að þessar breytingar valdi aukinni
hagkvæmni aö lokum og vissulega hindra þær tilveru of
margra sjálfsánægðra, roskinna og dreymandi fyrir-
tækjastjórna. Gallinn er hinsvegar sá, að almennir
starfsmenn vita ekkert um stjórnendurna, sem þeir eiga
að vera að vinna fyrir. Starfsfólkiö verður oft ruglað og
dálítiö öfugsnúiö við stöðugar breytingar í stjórnun. í
verzlunarfyrirtækjum er oft gert átak til þess að sýna
stöðugleika ákveðins fyrirtækis. Setningar eins og
„stofnað 1834" eru á bréfhausnum og yfir verzlunar-
glugganum í Aðalstræti stendur: „stofnaö 1921". Viö-
skiptavinum er þannig sýnt fram á, aö fyrirtæki hafi
oröstír, að þaö hafi ekki verið stofnað í gær og hverfi ekki
á morgun. Hinar hrööu breytingar nútímans kunna aö
leiða til góðs, en gefa okkur litla hugmynd um, hvaö sé á
seyði og sérhver breyting rýrir traust. Þá veröur aö vinna
til þess á nýjan leik. Á því verður ekki nógsamlega
hamrað, að traust er undirstöðuatriði í boömiðlun og
miölun boða tekst ekki, ef annar aðilinn trúir ekki orði af
því, sem honum er sagt.
Góö boðmiðlun kann aö vera til aðstoðar, þegar
óvæntan vanda ber aö höndum, en þaö verður að vera
Ijóst, aö góöri boðmiðlun er ætlað aö koma í veg fyrir aö
slíkt ástand skapist. Almannatengsl byggjast á langtíma
áætlun, en árangurinn á skilgreiningu markmiða. Al-
mannatengslastjóra (AT-stjóra) kann aö vera falið, aö
bæta orðspor fyrirtækis, en áætlun hans veröur aö vera
nákvæmari en þaö. Hvers konar orðspor er talið æski-
legt? Á hvaöa sviðum er fyrirtækið veikt fyrir gagnrýni?
Hvernig er hægt aö koma í veg fyrir aö sú gagnrýni eigi
rétt á sér? Myndun hagstæðs orðspors hjá almenningi er
þannig stööugt skapandi verkefni, en ekki röð ótengdra
tilrauna til aö verja fyrirtækið margvíslegum ásökunum,
allt frá lélegum vinnuaöstæðum til mengunar umhverfis-
ins.
AT-vandamál. Hvaða boðum viljum
við koma til skila?
Alger sigur í þessari herferð byggist á því, að yfirmaður
almannatengsla sé hluti af æðstu stjórn fyrirtækisins. Ef
hann er ekki í þeirri stöðu, sé hann aðeins deildarstjóri,
er hættan sú, að ímyndin sem komið er á framfæri sé
röng. Hagstæð frétt, sem seinna reynist röng, kann að
baka fyrirtækinu mikið tjón. Allri viðleitni til að bæta
ímyndina, verður að fylgja að minnsta kosti jafn sterk
viðleitni til að bæta veruleikann. Þannig þarfnast al-
mannatengslastjórinn stuðnings stjórnarinnar allrar.
Það má ekki henda, að hann segi blaðamönnum staöar-
ins frá áætlun um að minnka reyk, ef ekkert hefur verið
gert eða jafnvel undirbúiö til að framkvæma hana. Boð-
miðlun er einnig tvíhliða og AT-stjórinn verður alltaf að
meta svörunina við því sem hefur verið gert og kanna
svið þar sem meira hefði mátt gera. Þegar sendinefnd
kemur á fund forstjórans má segja, að AT-stjórinn hafi
HÓTEl M/CLIFELL
Gisting
HÓTEL
MÆLIFELL
Aðalgötu 7
Sauðárkróki
Sími 95-5265
Almennur hótelrekstur.
Matur, kaffi, smurt brauð.
Gistipláss fyrir um 20 manns.
Opið 7,30—11,30.
Vínveitingar allt árið.
Á hótelinu er setustofa með
sjónvarpi og útvarp er í öllum
herbergjum.
Opið allt árið.
Bílaleiga VW 1200.
Car Rental.
Heitur og kaldur
matur allan daginn.
Bar opinn
frá klukkan 8
á kvöldin.
VERIÐ VELKOMIN
48