Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1978, Blaðsíða 49

Frjáls verslun - 01.12.1978, Blaðsíða 49
brugðizt. Hati kvörtunarefnið verið til, hefði hann átt að vita um það. Hann hefði átt að bregðast við áður. Markmið AT-herferðarinnar hlýtur að vera mismun- andi eftir fyrirtæki eða fyrirtækjahóp, en einnig er um að ræða sameiginlegan boðskap, sem iðnreksturinn sem heild og stofnanir hans verða að koma á framfæri. Þessi boðskapur nær yfir vítt svið, en umfram allt verður að kenna fólki að viðurkenna þrjár einfaldar hugmyndir. ( fyrsta lagi: Veröldin, sem við byggjum var sköpuð af iðn- rekstri og myndi hrynja á örskammri stundu án áfram- haldandi iðnrekstrarátaka. I skóla var okkur kennt um framfarir tengdar trú og lýðræði, menntun og frlesi. Okkur hættir til að gleyma framförum tengdum vekjara- klukkunni, rakvélablaðinu, bílum, ritvélinni og kúlupenn- anum. Veröld okkar er vélvædd og stöðugt háð olíu og raforku. Til er fólk sem talar um steinsteypufrumskóginn, grætur gerviyfirbragð umhverfis okkar og heldur því fram, að við værum heilbrigðari og ánægðari, ef við lifð- um enn hinu einfalda lífi forfeöranna. Þessi skoðun á fullan rétt á sér, en hún hjálpar okkur ekki nú. Við hefðum ef til vill getað hafnað vélvæðingu, en í raun gerðum við það ekki. Afleiðingin er, að lífsafkoma milljóna manna í iðnaðar- löndunum er háð olíu og raunar einnig hinni áköfu leit að nýjum olíulindum. Hvort sem okkur líkar betur eða verr erum við háð iðnaðarframleiðslu um Ijós og hita, hreyfanleika og mat. Þverri olíubirgðir stöðvast vinna, borgir myrkvast, sjúkrabíllinn kemst ekki á slysstað og skurðlæknirinn sér ekki til að gera uppskurðinn. Það verður að minna menn á það aftur og aftur, að iðnrekstur er lífæð þjóðfélagsins. Kennarar benda fólki á hversu mikilvægt er, að það hafi atkvæðisrétt. Raunar er miklu mikilvægara að eiga eitthvað í kvöldmatinn. Fyrst iðn- rekstur skapaði veröldina, sem við búum í, og heldur henni gangandi, þá á iðnfrömuðurinn rétt á nokkrum almenningsstuðningi. Hann vinnur bráðnauðsynlegt og erfitt verk, og það er fásinna, að ríkisstjórnir og almenn- ingur geri honum það verkefni enn erfiðara. Fyrst þarf að skapa f jármagnið Stöðugt þarf að leggja áherzlu á aðra hugmynd, sem sé, að fyrst þarf að skapa fjármagnið til þess að hægt sé að eyða því. Án skattskylds hagnaðar af iðnrekstri hefði stjórnmálamaðurinn enga velferðaráætlun fram að bjóða og góðverkamaðurinn gæti ekkert gott af sér látið leiða. öll athygli almennings beinist að aðferðum til að eyða peningum, þar sem milljónum er varið i menntun, mill- jónum til heilbrigðismála og síðasta milljónin fer til stuðnings við listir. Milljónir að auki, sem við ekki einu sinni eigum til fara í það að kaupa og styrkja fjandskap fyrri nýlendna okkar. Allar þessar aðferðir til að eyða peningum eru metnar dyggðugar og skynsamar. Heið- urinn fer allur til stjórnmála- og embættismannanna, sem hafa eyðslu að hlutverki sínu. Þar í mót er lítill gaumur gefinn verksmiðjum og verkstæðum, togurum og bóndabýlum, sem eru hinar raunverulegu uppsprettur auðsins. Ráðherrar geta með stolti bent á milljónir fólks, sem hefur verið menntað (ef svo er hægt að komast að orði), sem nýtur þjónustu lækna og tannlækna og um síðir ellilauna. Þessi framgangur kann að vera aðdáun- arverður, en það var ekki minna afrek að veita þessu sama fólki kornflögur í morgunmat, stígvél og skó, frakka og reiðhjól. Það sem meira er, öll hin hriktandi yfirbygg- ing stjórnvalda og þar með opinber eyðsla, hvílir á herð- um þeirra, sem sjá fyrir afli þeirra hluta er gera skal. Atvinnuöryggi stærsti greiðinn Þriðja og síðasta hugmyndin, sem þarf að ítreka er, að atvinnurekstur, þótt hann sjái fyrir vinnu, er ekki rekinn í þeim tilgangi. Fjölmiðlaathygli beinist að velferðaráætl- unum, sem þjóna illa stæðu fólki, en stærsti greiði, sem við gerum fátækum manni er að veita honum stöðuga og sanngjarnlega launaða atvinnu. ( launaðri vinnu getur hann séð um sig sjálfur, sparað, fjárfest og vonast eftir frömun. Atvinnurekandinn hefur því gert meira fyrir manninn en nokkur annar, endurveitt honum nytsemi og þar með sjálfsvirðinguna. Þegar mikið atvinnuleysi er, reynir velþenkjandi ríkisstjórn að gera slíkt hið sama, venjulega án minnsta árangurs. Enda þótt atvinnurek- andinn sé vafalaust mesti velgerðarmaður launþegans, rekur hann ekki atvinnustarfsemi sína til þess að veita atvinnu. Gerði hann það, yrði hann gjaldþrota á nokkrum vikum og óhæfur til að veita atvinnu. Markmið hans er umfram allt, að ná þeirri arðsemi, sem tryggir að rekstur hans geti þraukað. Jafnskjótt og hann missir sjónar af því markmiði, er fall hans öruggt. Meira en það, stefna hans hlýtur að vera að hafa eins fátt fólk í vinnu og unnt er og borga því ekki meira en raunvirði vinnunnar. Eðlisbreyting verður í atvinnurekstri, sem er þjóðnýttur eða nær einokunaraðstöðu. í stað þess að veita þjónustu gegn greiðslu, er nú tilgangurinn að veita stórum og vaxandi hópi vinnuafls þægilega lífsafkomu. öll reynsla okkar af atvinnurekstri hlýtur að leiða til þeirrar niður- stöðu að atvinna, eins og hamingja og heilbrigði, fæst ekki hjá þeim, sem hafa það eitt að markmiði að veita hana. Öruggasta leiðin til þess að verða veikur er, að hafa miklar áhyggjur af heilsunni. Sá sem einbeitir sér að því að vera hamingjusamur, verður örugglega óham- ingjusamur. Á sama hátt má segja, að þeir sem stefna að því að búa til atvinnu geri ekkert annað en að skapa hrakföll, Þannig er sá árangur atvinnurekstursins að veita milljónum atvinnu, afrek, sem yrði ómögulegt jafn- skjótt og atvinnuveiting væri gerð að stefnu hans. Engin stofnun er jafn örugglega á vítisvegi og sú, sem er til eingöngu til hagræðis fyrir starfsmenn sína. Nóg er til af slíkum stofnunum í heiminum og tala þeirra fer vaxandi. Auðvelt er að þekkja þær af vissu andrúmslofti, sérstakri afstöðu til viðskiþtavinarins, almennri vanrækslu, og til- hneigingu til að koma of seint og fara snemma. Til þess að skapa atvinnutækifæri verður að gleyma atvinnunni sem slíkri og stefna eingöngu að velsæld. Að koma boðskapnum á framfæri Nú þegar við höfum skilgreint tilgang boðmiðlunar okkar verðum við að íhuga stílinn. Hvort sem boðskap okkar er útvarpað, hann er fluttur í töluðu máli eða prentaður verður að orða hann þannig, að hann nái sem mestum árangri. Við getum skilgreintstíl þannig, að hann sé áhrif persónuleika á það, sem við segjum, skrifum eða gerum. Við vitum að við megum ekki miðla boðum of oft, það jafngildir því að miðla ekki. Nákvæm tímasetning er mikilvæg, af því að það sem kemur of fljótt er oft jafn gagnslaust og það sem kemur of seint. Loks vitum við, að boðskapurinn verður að vera Ijós, sterkur og stuttur. Umfram allt verður hann að vera einkennandi fyrir manninn, sem flytur hann. (boðskapnum mega ekki vera löng eða tæknileg orð og árangurinn er mestur, þegar flest orðin eru stutt og hvert þeirra eins og hamarshögg. Stundum, ekki alltaf, er rétt að krydda með fyndni. Þetta er af tveimur ástæðum. (fyrsta lagi vegna þess, að dálítil fyndni gerir boðskapinn mannlegan frekar en skrif- 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.