Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1978, Side 51

Frjáls verslun - 01.12.1978, Side 51
sýnda í sjónvarpi. Enginn annar miðill hefur svipaðan áhrifamátt. Árásir á fjölþjóða- fyrirtæki Fyrir málstað iðnrekstrar eru almenn sameiginleg rök, en einstaka greinar hafa sérstaklega legið undir gagn- rýni. Sérstakar árásir hafa verið gerðar á fjölþjóðafyrir- tæki og olíufyrirtæki. Erfitt er að skilgreina, hvað sé fjöl- þjóðafyrirtæki, af því að næstum öll stórfyrirtæki eru með starfrækslu í meira en einu landi, en vissar fyrirtækja- samsteypur virðast hafa legið sérstaklega vel við gagn- rýni og ein af þeim er ITT, sem hafði almenningsálitið mikið á móti sér í kringum 1973. í Evrópu var það metið sem slæmt dæmi um kapitalisma amerískrar gerðar. Að hluta til var þetta afleiöing vissra mistaka, sem höfðu verið gerð, en frekar mátti þó rekja það til fyrra skorts á stefnumótun almannatengslanna. Fyrirtækið brást þannig við þessu óvinveitta andrúmslofti að hrinda af stað umfangsmikilli almenningstengsla-herferð. Hún hófst 1974 og var beint að ríkisstjórnum, embættis- mönnum, háskólamenntuðum mönnum og starfsmönn- um fyrirtækisins. Herferðin var vandlega skipulögð og vanrækti enga hlið almenningstengsla allt frá samskipt- um fyrirtækisins við blöðin að beinum auglýsingum. Þetta síðasta á einkum við Bretland og árangurinn var stórfenglegur. Eða eins og Nigel Rowe skrifaði: „Stjórnendur ITT í Evrópu velkjast ekki í vafa um umfang þess verkefnis, sem fyrir liggur í því að bæta fyrirtækisorðspor ITT. Nú er verið að gera áætlanir um samskonar auglýsingaherferð fyrirtækisins í öðrum löndum, og um að víkka út aðra þætti áætlunarinnar, einkum á sviði samskipta við blöðin. Þótt gagnrýn- endur þess haldi því fram, að meiri grundvallarbreyt- ingar þurfi að gera á stefnu og hegðun fyrirtækisins, áður en það nær fullri fyrirtækisvirðingu, telur ITT að vandamálið verði leyst með því að brúa „upplýsinga- bilið". Verkefni sem vitað er, að muni krefjast langtíma, samfelldra aðgerða." (Parkinson and Rowe, Communicate, bls. 196.) Augljósasta þýðing þessarar sögu liggur í árangrinum, sem náðist með kröftugri og vel skipulagðri herferð. Enn merkilegra var þó ástandið, sem skapast hafði, vegna fyrri skorts á stefnu. Fram til 1973 hafði það verið vani fyrirtækisins, að skeyta ekki um gagnrýni, hversu skað- leg og illa upplýst sem hún var. Með öðrum orðum sagt, neyðaraðgerðirnar hefðu ekki verið nauðsynlegar, ef ekki hefði komið til aðgerðarleysi fyrri ára. Þegar loks var gripið til aðgerða var það í stórum stíl og kostaði verulegt fé. Herferðin var árangursrík, en hefði átt að vera ónauðsynleg. Olíufélögin lágu enn betur við höggi, að hluta til vegna fjárhagsárangurs þeirra og að hluta til vegna þess að viðurkenna verður, að þau fela í sér hættu við umhverfið vegna tankskipaóhappa, olíumengunar, olíuleka og eldhættu. Um 1970 komu amerísku olíufé- lögin undir almannaárás. Þau urðu að fást við nýjar reglugerðir, verðstöðvun og fjandsamleg blöð, eða eins og formælandi iðnaðarins viðurkenndi: „Þörfin var auðvitað fyrir boðmiðlun. Við höfðum ýmislegt til málanna að leggja og margt af því hefði leitt til skjótari skilnings á markmiðum þeirra, sem þjóðfé- lagið nú vildi ná. En iðnaðurinn var einfaldlega ekki undir það búinn að fást við vandamálið á sviði boð- miðlunar." (Parkinson and Rowe, Gommunicate, bls. 162.) Svar Gulf Oil við þessu ástandi var að hefja þjálfun stjórnenda sinna í almannatengslum. Svar Mobil Oil var annað. Það notaði sjónvarpið og hóf gagnárás í blöðum. Ennþá er lærdómsríkast, hvernig ástandinu var leyft að verða til. Átökin sem þurfti til andsvara við árásum al- mennings voru miklu meiri en þau, sem þurft hefði til að fyrirbyggja þær. Ályktunin verður óumflýjanlega sú, að þögn sem stefna sé ófær í nútíma þjóðfélagi. Einu sinni kunna að hafa verið þeir tímar, að stofnanir, sem voru í nægilega sterkri stöðu, gátu látið almenningsálit sem vind um eyru þjóta. Þannig er ástandið ekki í dag. Eina raunhæfa stefnan er að þróa góð samskipti við dag- blöðin og aðra fjölmiðla og mynda með því svo hagstæða ímynd í augum almennings, að árás sé ólíkleg. Og það sem er bezta stefan fyrir einstök fyrirtæki er einnig bezta stefnan fyrir atvinnureksturinn í heild og sýnist viðeig- andi að Ijúka þessu með því að fara með nýjasta og e.t.v. síðasta lögmál Parkinsons, sem er á þessa leið: Tómarúmið sem myndast þegar boðmiðlun er van- rækt, fyllist fljótlega af slúðri, rangfærslum, heimsku- hjali og óþverra.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.